Morgunblaðið - 26.04.2009, Qupperneq 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 2009
Opið hús
Næsta þriðjudag, 28. apríl, verður opið hús
í Menntaskólanum Hraðbraut
frá kl. 8.30 - 16.30.
Allir sem vilja kynna sér skólann
eru velkomnir.
T V E I MUR ÁRUM
Á UNDAN
Faxafeni 10 · 108 Reykjavík · Sími: 517-5040 · www.hradbraut.is
Tangónámskeið í Kramhúsinu - Vor 2009
Þrjú 6 vikna námskeið hefjast 28. - 30. apríl:
Byrjendanámskeið Þriðjudagar, kl. 19.30-20.45.
Intermediate Fimmtudagar, kl. 18.00-19.30.
Advanced Fimmtudagar, kl 19.30-21.00.
Kennarar: Bryndís og Hany
Skráning stendur yfir á www.kramhusid.is
og í síma 551 5103.
Dagskráratriði óskast
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is
Frá sýningu götuleikhússins 2007
17. júní í Reykjavík
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun
í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún
frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum
á sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppá-
komum. Hægt er að sækja um flutning atriða, uppákomur og viðburði
á vef þjóðhátíðarnefndar www.17juni.is. Umsóknum er einnig hægt að
skila í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem
þar fást. Umsóknarfrestur rennur út þann 7. maí n.k.
MÖRGUM hefur reynst erfitt að átta
sig á Bob Dylan og varla nema von í
ljósi þess hve hann hefur verið iðinn
við að skipta um andlit, eða réttara
sagt: Hann er með svo fjölbreytilega
ásýnd sem listamaður að hver plata
hans sýnir okkur nýja hlið sem er
frábrugðin öðru því sem við höfum
áður séð.
47 ár eru frá því sú fyrsta kom út.
Platan Together Through Life var
hljóðrituð á síðasta ári og átti ekki að
gefa hana út fyrr en í haust, en
skyndiákvörðun var tekin um að
skella henni út fyrir stuttu að því
Dylan hefur greint frá í viðtölum.
Lag fyrir kvikmynd
Kveikjan að breiðskífunni var að
franski leikstjórinn Olivier Dahan
leitaði til Dylans um að semja lag fyr-
ir kvikmynd sem hann væri með í
smíðum um söngvara sem bundinn
væri í hjólastól og héldi af stað í
ferðalag frá Memphis til New Or-
leans í leit að sjálfum sér. (Myndin
heitir My Own Love Song, er nú í eft-
irvinnslu og er meðal annars með
Renée Zellweger, Forest Whitaker
og Nick Nolte í aðalhlutverkum.)
Hann tók því vel, enda segist hann
hafa haft dálæti á kvikmynd Dahans
um Edith Piaf frá 2007.
Dahan bað Dylan um lag sem tón-
listarmaðurinn í hjólastólnum myndi
syngja undir lok kvikmyndarinnar og
úr varð lagið Life is Hard, sem kall-
aði síðan á annað lag og svo annað lag
þar til komin var breiðskífa: Toget-
her Through Life.
Dylan fer eigin leiðir
Allt frá því hann stakk í samband
og tók sér rafgítar í hönd fyrir bráð-
um 44 árum, hefur Dylan sýnt og
sannað að hann fer eigin leiðir, kærir
sig kollóttan um það hvað öðrum
finnst. Hann hefur líka sífellt verið að
breyta til, bregða sér í hvert gervið af
öðru, en er þó alltaf samur við sig
þegar grannt er skoðað.
Síðustu þrjár breiðskífur hans,
Time Out of Mind frá 1997, Love and
Theft frá 2001 og Modern Times frá
2006, hafa þannig verið lofaðar í há-
stert, en plöturnar þrjár þar á undan,
Under the Red Sky frá 1990, Good as
I Been to You frá 1992 og World
Gone Wrong frá 1993, fengu almennt
slæma dóm og því jafnvel haldið fram
að nú væri sá gamli búinn að syngja
sitt síðasta. Ef marka má fyrstu um-
sagnir um Together Through Life
eru menn á báðum áttum. Þeir sem
helst vildu framhald af Modern Tim-
es eru niðurdregnir, og að vonum, en
þeir sem helst kunna að meta kráku-
stíga Dylans eru sáttir og vel það.
Í skemmtilegu viðtali Bills Flanag-
ans við Dylan sem birt er á vefsetr-
inu bobdylan.com segir Dylan að
hann hafi vísvitandi reynt að hafa
sem mest undir á Modern Times,
koma sem víðast við til að kippa sjálf-
um sér í nútímann, en nú sé það að
baki og því geti hann snúið sér að
öðru.
Vísvitandi gamaldags
Hljómur á Together Through Life
er vísivitandi gamaldags, en ekki
bara það heldur minnir andrúmsloft
á plötunni, í textum, lögum og laga-
vali, á gamla tíma. Í áðurnefndu við-
tali segist Dylan einmitt hafa dálæti
á stemmningunni í Chess-hljóð-
verinu á sjötta og sjöunda áratugn-
um, en einnig að hann hafi þó ekki
fylgst svo með því á sínum tíma því
þá var hann upptekinn af þjóðlaga-
tónlist, hlustaði helst á Son House,
Leadbelly, Carter-fjölskylduna og
Memphis Minnie og langaði til að
semja lög eins og Woody Guthrie og
Robert Johnson. Hann segir reyndar
í spjallinu að sjötti og sjöundi áratug-
urinn hafi líklega verið fjörbrot „al-
vöru“ tónlistar; upp frá því hafi allir
verið að spila á tölvur.
Fjölsnærður Svona er birtingarmynd Bobs Dylans í dag.
Krákustígar Dylans
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn