Morgunblaðið - 26.04.2009, Qupperneq 52
SUNNUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 9°C | Kaldast 0°C
Austlæg átt, 5-10
metrar á sekúndu og
dálítil væta í flestum
landshlutum. Hlýjast
sunnanlands. »10
SKOÐANIR»
Staksteinar: Innilokaður … Wyman
Forystugrein: Endurskoðun sjávar-
útvegsstefnu ESB
Reykjavíkurbréf: Kosningabarátta
með nýju sniði
Pistill: Löskuð ímynd
Sjálfstæðisflokksins
Ljósvaki: Pósað með innyflunum
Fjarvistum hefur fjölgað …
Skiptir máli að nýta starfskrafta …
Auðveldar fartölvuvinnuna
Mikilvægt að þekkja réttindi sín
ATVINNA »
FÓLK»
Konur á barmi tauga-
áfalls í sjónvarp. »47
Ný skífa Bobs Dyl-
ans kemur út í vik-
unni. Árni Matthías-
son fjallar um feril
mannsins og kvik-
myndirnar. »44
TÓNLIST»
Krákustígar
goðsagnar
TÓNLIST»
Eftirlæti framleiðenda
og auglýsingafólks. »49
FÓLK»
Léku saman og hvað nú,
kossaleikur? »47
Forfallinn Ben &
Jerry’s-neytandi
segir frá heimasíðu
fyrirtækis þar sem
finna má „Grafreit
bragðsins“. »46
Nammi fyrir
nautnamann
VEFSÍÐA»
Menning
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Bjarni Ben kaus fyrstur
2. Afskrifa 75% fyrirtækjalána
3. Kanadískur drengur … kraftaverk
4. VG stoppaði ESB-lögin
HJÁLPARSTARF kirkjunnar hef-
ur á fyrstu mánuðum ársins fengið
yfir 200% fleiri beiðnir um aðstoð en
á sama tíma í
fyrra. Áður tók
stofnunin á móti
beiðnum frá 120-
130 fjölskyldum á
mánuði en nú er
sá fjöldi kominn
vel yfir 400.
Flestar hafa
beiðnirnar komið
af höfuðborg-
arsvæðinu og
Suðurnesjum.
Að sögn Vilborgar Oddsdóttur,
sem veitir innanlandsaðstoð Hjálp-
arstarfs kirkjunnar forstöðu, hefur
hjálparbeiðnum til presta á lands-
byggðinni fjölgað að undanförnu,
m.a. á Austfjörðum. Nýir hópar
fólks hafa bæst við, ekki síst yngri
fjölskyldur þar sem algengt er að
foreldrar séu á aldrinum 20-39 ára.
Karlar og konur eru jafnmörg en áð-
ur voru konur mun fleiri.
„Við sjáum einnig alltof marga
krakka á aldrinum 18-23 ára, sem
ekki voru í skóla og hafa misst sína
vinnu,“ segir Vilborg. | 28
200% fleiri
beiðnir
um aðstoð
Vilborg
Oddsdóttir
deildar í Hagaskóla, gerði á fyrstu klukkutímunum. Í
bakgrunni er Birna Þórðardóttir að neyta atkvæð-
isréttar síns en ekki fylgdi sögunni hvað hún kaus.
KOSNING fór rólega af stað að morgni kjördags. Á
meðan svo er getur verið gott að grípa í prjónana, líkt
og Þórgnýr Thoroddsen, starfsmaður sjöundu kjör-
Prjónað í rólegheitum á kjörstað
Þingkosningarnar fóru rólega af stað
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
HJÓNIN María Pétursdóttir og
Bragi Halldórsson í Ranimosk á
Laugaveginum eru um margt ólík
kollegum sínum í verslunar-
rekstri. Þau segjast enda ekki
vera verslunarfólk og trúa á sam-
vinnu en ekki samkeppni. Í þeim
anda lokaði „ekkiverslunarfólkið“
búðinni þegar búsáhaldabyltingin
stóð sem hæst til að geta mót-
mælt á Austurvelli og léði ekki
einu sinni máls á að færa út kví-
arnar þegar þeim stóð til boða að
opna samskonar búð í Leifsstöð á
dögunum.
„Það versta við velgengnina er
að verða fórnarlamb hennar, þá
hættir að vera gaman,“ segja þau.
María og Bragi segjast fyrst og
fremst reka búðina, sem jafnframt
er verkstæði, sér til ánægju, hún
sé tómstundagaman frekar en lifi-
brauð og í rauninni hálfgerð fé-
lagsmiðstöð. Þar ægir saman inn-
fluttum furðuverkum og list og
handverki eftir þau sjálf og unga
íslenska listamenn. Bolir, sem þau
þrykkja á myndir, tákn og orð eða
orðasambönd, tróna þar hæst, en
slíkir bolir hafa lengi tilheyrt
götukúltúrnum og verið notaðir
sem tjáningarmáti eða yfirlýsing
þeirra sem þeim skrýðast.
María er myndlistarmenntuð og
vann um skeið í Góða hirðinum, en
þaðan eru flestar innréttingarnar í
búðinni, og Bragi er sjálfmennt-
aður teiknari, grafískur hönnuður
og vefhönnuður. Bæði eru safn-
arar og áhugafólk um liðna tíð og
þau endurnýta oft gamla hluti með
því að setja þá í nýtt samhengi
eða gefa þeim annað notagildi.
Áherslurnar í búðinni virðast í
takt við tímann því þau segja að
aldrei hafi verið meira að gera en
síðan í byrjun október. | 14
Blómstrandi búð
Það versta við velgengnina er að verða fórnarlömb hennar
Þá hættir að vera gaman, segja hjónin María og Bragi
Morgunblaðið/Kristinn
Þjóðleg Bragi Halldórsson og María Pétursdóttir, eigendur verslunarinnar
Ranimosk við Laugaveginn, eru safnarar og áhugafólk um liðna tíð.
Skoðanir
fólksins
’Auðvitað á að vera vel girt í kring-um byggingarsvæðin þannig aðbörnin komist ekki inn en því miður ersú ekki raunin. Því miður er ekki að sjáað ástandið breytist á næstunni. » 33
DAGBJÖRT H. HÖSKULDSDÓTTIR
’Hræðsluáróður um að þjóðin séfyrirlitin og einskis metin máekki skerða sjálfsmynd og framtak;undirstöðuna til að taka á skuldumþjóðarinnar og efla framfarir í land-
inu. » 33
SIGRÍÐUR LAUFEY EINARSDÓTTIR
’Íslendingar hafa talið sig búa viðlýðræðislegar hefðir en reynslaundanfarins árs bendir til þess að lýð-ræðisþróun samfélagsins hafi ekkiverið jafnmikil og við töldum. » 32
BJÖRN BIRNIR
’Nú eru í vinnslu nokkrar heimild-armyndir um hrunið og búsá-haldabyltinguna. Enginn miðill er færum að flytja þjóðinni nýja og raunhæfasýn á atburði stundarinnar og tengslin
við fortíðina líkt og góð heimild-
arkvikmynd gerir. » 32
HJÁLMTÝR V. HEIÐDAL
’Gömlu húsin má lána eða leigjameðan ekki eru komnar framákveðnar og raunhæfar tillögur umannað og betra. Með vinnuframlagisínu og hugmyndaauðgi gæti ungt fólk
og listamenn glætt bæinn lífi og fjöri.
» 32
RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR
’Breytingar á Elliðaám eiga séru.þ.b. aldar langa sögu sem hófstmeð vatnsveitu 1909 og virkjun 1921en síðan tók hver framkvæmdin við afannarri. Kvíslar voru stíflaðar, Árbæj-
arlón myndað, hækkað var á Elliða-
vatni og það stækkað. » 31
ÞÓRÓLFUR ANTONSSON OG
FRIÐÞJÓFUR ÁRNASON
LÍKUR eru á því að hinn kunni leik-
stjóri David Lynch, sem meðal ann-
ars leikstýrði kvikmyndunum Fíla-
manninum og Blue Velvet og
sjónvarpsþáttunum Twin Peaks,
komi til landsins um mánaðamótin
næstu og haldi fyrirlestur um inn-
hverfa íhugun.
Sigurjón Sighvatsson kvik-
myndaframleiðandi hefur unnið að
því að fá Lynch til landsins til að
kynna hugmyndafræði sína fyrir Ís-
lendingum. Er það trú Lynch að án
innra jafnvægis sé útilokað að ná
ytra jafnvægi á öllum sviðum. | 48
Reuters
Leikstjórinn David Lynch leik-
stýrir, íhugar og fræðir.
Viðræður
um komu
Lynch