Morgunblaðið - 03.07.2009, Qupperneq 18
Innrás vampíranna
Blóð Sookie Stackhouse og
vampíran Bill mynda náin
tengsl í True Blood.
Forboðið
Edward og
Bella elskast
í Twilight.
Kynþokki og forboðnar ástir
VAMPÍRUR eru kynþokkafullar.
Það er eitthvað seiðandi og heillandi
við þær – eitthvað sem selst.
Vampíruæði koma alltaf reglulega
upp og lúra undir niðri þess á milli.
Það nýjasta er auðvitað Ljósaskipti
(Twilight), metsölubókin um ung-
lingavampírurnar sem síðan varð að
kvikmynd og skyndilega þráir ný
kynslóð unglingsstúlkna að eiga í eld-
heitu ástarsambandi við vampíru.
Nýr vampíruþáttur slær í gegn
Því miður er ósennilegt að það geti
orðið en þar til annað kemur í ljós
þarf lífið þó ekki að vera algjörlega
blóðsugusnautt, því í Bandaríkjunum
er komin enn ein viðbót í flóruna.
Þetta eru vampíruþættirnir True
Blood sem reyndar hafa ekki náð til
Íslands ennþá, en þeir eru byggðir á
bókunum Southern Vampire Mys-
tery Books eftir Charlaine Harris.
Fyrsta þáttaröðin var frumsýnd í
fyrra, á svipuðum tíma og Ljósa-
skipti. Hún sló strax í gegn og önnur
þáttaröðin byrjaði núna í júní.
Hin eilífa æska
Söguþráðurinn er í grunninn alls
ekki ósvipaður Ljósaskiptunum. Í
báðum tilfellum segir frá stúlku í
smábæ í Bandaríkjunum sem kynn-
ist dulrænum en fjallmyndarlegum
manni og fellur fyrir honum.
Það reynist að sjálfsögðu vera for-
boðin ást. Báðir eru vampírur. Báðir
eiga það sameiginlegt að vera hátt í
200 ára gamlir en það skiptir ekki
máli enda er eitt af því sem heillar við
vampírur hin eilífa æska.
Viska og líkamlegar nautnir
Þrátt fyrir að vera á besta skeiði
líkamlega og löðrandi í kynþokka eru
vampírupiltarnir því í ofanálag djúp-
vitrir, lífsreyndir og hnyttnir.
Skarpgáfaðir en samt með yfir-
bragð vonda stráksins. Þeir eru jú
eftir allt saman blóðsugur sem
stjórnast af líkamlegum nautnum.
Þegar saman koma forboðnar ást-
ir, rómantík, áhætta, ágirnd og húm-
or, þá er ekki nema von að fólk heill-
ist.
Á ferðum mínum um Nepal
hitti ég fyrir fakír sem
tjáði mér að
tilviljanakennd
skekkja í þróun
mannsins hafi orðið til
þess að maðurinn er ekki með skott.
Byggði hann staðhæfinguna á að maðurinn
væri eitt af örfáum hryggdýrum án skotts,
rófubeinið væri merki um rófu sem hafi af-
skræmst í þróun. Samkvæmt þessum líf-
fræðilega þenkjandi fakír hafa fósturvísar víst
rófu sem fóstrið síðan gleypir á síðari stigum
þroskans.
Ég velti því fyrir mér hvernig lífsstíll og
hegðun okkar hefði þróast, með skott í eft-
irdragi. Myndi skottið dingla af undirgefni
og sperrast er við gæfum okkur á tal við at-
hyglisverðt fólk? Ef skotthegðun myndi
samsvara sambærilegri hegðun heimilisdýra,
værum við þá tilfinningalega berskjaldaðari með
skott? Við gætum þá ekki leynt hamingju og gleði
jafn vel og í dag. Við værum ekki jafn svöl.
Vangaveltur um helgardjammið í slíkum heimi
skemmta mér. Allir væru að reyna að bera sig og
skottið sitt vel en geta ekki leynt gleði sinni og spennu
vegna klunnalegra skottsveiflna. Í halarófunni við
barinn blikkar stelpa með vingsandi stelpuskott strák
með mikið haladangl. Á dansgólfinu er stigið ein-
kennilegt tilbrigði við skottís. Strákur með feiminn
hala býður stelpu með fágað skott upp á drykk en
hún segir honum að fara í rass og rófu. Strákurinn
gengur í burtu með skottið á milli lappanna.
Miðbærinn yrði dillandi og dýrindis dinglumdangl.
Nema við hefðum tamið okkur sjálfstjórn og
skott-aga. Gætum falið tilfinningarnar bak við
eitursvalar skotthreyfingar. Hvað teldist þá vera
töff skott?
Stórir, þykkir og grófir halar myndu bera vott
um karlmennsku. Það væri jafnvel skammarlegt
að vera með lítinn og þunnan dindil. Pjattrófur
leggðu mikið upp úr áferðarfallegum og sléttum
skottum. Ástfangin pör hringuðu rófunum sam-
an og einhleypingar léku lausum hala eins og
rófustýfðir rakkar. Ungviðið myndi eltast við
rófuna á sjálfu sér.
Mig langar svolítið í skott. Stelpurófan ég
væri þá eflaust búin stjórnlausu, bjánalegu,
danglandi og berskjölduðu stelpuskotti.
gudrunhulda@mbl.is
Á föstudegi Guðrún Hulda Pálsdóttir
’Dillandi ogdýrindisdinglumdangl
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
Snjóþvegið 2009 Sumartíska Balmain virðist hafa
fallið í góðan jarðveg hjá stjörnunum.Victoria
Beckham og Fergie ásamt fleiri frægum sjást nú
iðulega í tættum skellóttum gallabuxum. Flott að
fara í háa hæla við og vera í stuttum svörtum jakka
með axlapúðum sem koma sterkir inn í haust.
Heitt núna
Eitt það heitasta í tískunni í dag er að vera í þröngum klóruðum gallabux-
um sem eru rifnar og tættar framan á lærum og hnjám.
Það er óþarfi að fara út í búð og kaupa nýjar buxur fyrir stórfé, farið
bara inn í fataskáp og náið í svörtu eða bláu gallabuxurnar sem eru orðnar
gráar og snjáðar eftir hafa verið þvegnar mikið og farið eftir leiðbeining-
unum hér fyrir neðan og þá eru þið komin með gallabuxur samkvæmt nýj-
ustu tísku.
1. Krumpið saman gallabuxurnar og hellið yfir þær klór þangað til
þið eruð orðin ánægð með litinn. Skolið síðan klórinn úr.
2. Fáið ykkur grófan sandpappír og nuddið hressilega framan á
lærin og hnén á gallabuxunum til að fá slitna áferð á efnið.
3. Skerið með dúkahníf nokkrar rendur þversum framan á læri og
hnéin eða á þá staði sem þið viljið og tætið þræðina upp þannig
að sárin verði trosnuð.
4. Því næst eru buxurnar þvegnar í þvottavél tvisvar sinnum til að
ýkja enn frekar upp slitnu og trosnuðu áferðina á buxunum.
Gangi ykkur vel. sibba@mbl.is
Skref fyrir skref
Umboðs- og dreifingaraðili á íslandii: miðbaUgUr ehf – akralind 8, kópavogi
mod: rb 4125
Mojito er geysivinsælt hanastél, enda
afbragðs samblanda af sterku áfengi,
sykri og ferskum drykk sem rennur ein-
staklega mjúklega niður á hlýjum sól-
skinsdögum.
Á Hótel Flatey er boðið upp á þjóð-
legt tilbrigði af þessum vinsæla drykk
og nefnist hann Flahito. Hráefnið í Fla-
hito ætti að vera auðfundið í næsta ná-
grenni því í stað myntu er notast við
rabbabara og skessujurt.
Dass af rabbabara
Ljóst romm
Hrásykur
Klaki
Skessujurt
Rabbabarinn er bútaður niður og
hann kraminn niður í glas. Tveimur
skvettum af romminu, hrásykri og klaka
bætt við. Loks er örlítið af skessujurt
hrært saman við og glasið fyllt upp með
skvettu af sódavatni. Skessujurt er svo
hægt að nota til skreytingar.
Svalandi sumardrykkur
Þjóðlegt
hanastél