Morgunblaðið - 03.07.2009, Síða 21

Morgunblaðið - 03.07.2009, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 Tær snilld Þjóðin ber ekki mikinn kærleik í hjarta til hins dýrkeypta Icesave sem þáverandi bankastjóri Landsbankans kallaði eitt sinn „tæra snilld“. Ómar Birgitta Jónsdóttir | 2. júlí Fáránleg regla sem þarf að afnema eigi síðar en strax … Þegar ég sat nefnd- arfund í fjárlaganefnd þá var það greinilegt að starfsmenn í félags- og tryggingamálaráðuneyt- inu höfðu lítinn áhuga á að finna lausnir handa þessum stóra hluta þjóðarinnar sem er atvinnulausir – það sem þau vildu fá fjármagn í fyrst og fremst var að hafa uppi á svindlurum. Það er gengið fram af miklu offorsi og veit ég um eina konu sem fékk hótunar- bréf um að bæturnar yrðu teknar af henni vegna þess að hún hafði fengið greiddar 10.000 krónur í orlof og átti fyrir vikið að vera einn af þessum meintu svikurum. Hversu margar ætli þurfi að búa við slíka ógn út af hörku í framferði vinnumiðlunar? Meira: birgitta.blog.is Friðrik Dagur Arnarson | 2. júlí Haninn á haugnum! Það er með ólíkindum að hlusta á Sigmund Davíð þessa dagana. Hann for- dæmir allt og alla, þykist hafa töfralausnir uppi í erminni og rótast um í fjölmiðlum og á þingi eins og naut í flagi svo skítaklessurnar þjóta undan honum í allar áttir. Hann er ekkert að bjóða fram raunverulega aðstoð, ekkert að reyna að aðstoða við tiltektina eftir óstjórnartíma Framsóknar. Nei, hann er eins og haninn á haugnum og galar upp í sólina. Meira: diddi56.blog.is ÞVÍ er oft fleygt fram í umræðu dags- ins að Íslendingar hafi tapað öllu trausti er- lendis og að við eigum þar enga vini lengur. Til að að kanna rétt- mæti þessara sjón- armiða létu Útflutn- ingsráð og Ferðamálastofa því nýlega gera ýtarlega rannsókn á viðhorfi almennings í Danmörku, Þýskalandi og Bret- landi til Íslands, Íslendinga og ís- lenskra málefna. Var um að ræða þúsund manna úrtak í hverju landi og annaðist fyrirtækið ParX fram- kvæmdina með aðstoð fyrirtæk- isins Gfk, sem er viðurkennt al- þjóðlegt fyrirtæki á þessu sviði. Niðurstöður rannsóknarinnar komu þægilega á óvart, því þótt fjármálakreppa og bankahrun séu vissulega ofarlega í huga þeirra sem tóku þátt í henni, þá tengja þeir þó nafn Íslands aðallega við náttúruna, hveri, eldfjöll og jökla. Allur þorri aðspurðra taldi viðhorf sitt til Íslands ekki hafa breyst á undanförnum tólf mánuðum og viðhorf til Íslendinga er almennt mjög jákvætt. Þeir sem hafa kom- ið til Íslands eða hyggja á ferð hingað eru afar jákvæðir í garð lands og þjóðar og láta vel af þjónustu íslenskra fyrirtækja og þeim vörum sem þeir hafa hér keypt. Þessar niðurstöður eru vissulega fagnaðarefni og þær gefa tilefni til almennrar bjartsýni um stöðu lands og þjóðar í hugum nágranna okkar og sérstaklega um sterka stöðu íslenskrar ferða- þjónustu, þrátt fyrir mótbyr síð- ustu mánaða. Orðspor og ímynd lands og þjóðar í útlöndum eru mikilvægir þættir í öllum viðskiptum okkar við erlenda aðila. Þeir sem kaupa íslenskar vörur, koma hingað sem ferðamenn eða huga að fjárfest- ingum hér á landi eru líklegri til að vilja eiga hér viðskipti ef gott orð fer af landsmönnum og því sem hér er að finna. Orðsporið verður hinsvegar ekki byggt upp á einni nóttu og ímyndin verður ekki búin til. Hvort tveggja er birting- armynd af athöfnum okkar allra, því sem við segjum og ger- um frá degi til dags. Nóbelskáldið Hall- dór Laxness hitti naglann á höfuðið í greininni Landkynn- ing sem hann skrif- aði árið 1944, en þar segir hann: „Hátt- erni okkar einsog það birtist í dagleg- ustu atriðum lífs og starfs er land- kynning okkar – ekki skrum- auglýsingar um landið til dreifingar utanlands.“ Hér var skáldið nokkuð á undan sinni sam- tíð, því þetta er í raun kjarninn í öllum lærðum fræðum í dag um ímynd og orðspor þjóða. Athygli erlendra fjölmiðla á Ís- landi og íslenskum málefnum hef- ur aldrei fyrr verið jafnmikil og undanfarna mánuði og líkur eru á því að þessi athygli haldi áfram, því fjölmiðlarnir vilja vita hvort Ísland rísi upp úr öskustónni. Op- inberir aðilar verða því að halda áfram vöku sinni hvað varðar miðlun upplýsinga og frétta til er- lendra fréttamiðla. Um leið er af- ar mikilvægt að landsmenn allir geri sér grein fyrir því að við er- um öll talsmenn þjóðarinnar, allt sem við segjum eða gerum er þáttur í þeirri mynd sem útlend- ingar fá af okkur sem landi og þjóð. Ef við tökum þá ábyrgð al- varlega og högum orðum okkar og gerðum, alltaf og allstaðar, á þann veg að sómi sé af, þá mun gott orð fara af landsmönnum og ímynd okkar skína skært. Þá verður líka auðveldara að ná þjóðarskútunni upp úr þeim öldudal sem hún er í um þessar mundir. Eftir Jón Ásbergsson »Hátterni okkar eins- og það birtist í dag- legustu atriðum lífs og starfs er landkynning okkar. Jón Ásbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands. Viðhorf útlendinga MORGUNBLAÐIÐ fjallar síðastliðinn mánudag um viðskipti í heilbrigðisþjónustu. Til- efnið er áhugi „einka- rekna heilbrigðisfyr- irtækisins Nordhus Medica … á að nýta vannýttar skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar myndu t.d. sjúklingar frá Noregi og Sví- þjóð fara í aðgerðir, niðurgreiddar af heimaríkjum sínum.“ Heilbrigðisráðherrann, undirrit- aður, er sagður standa í vegi fyrir því að þessar kröfur nái fram að ganga og sjái „ekki ástæðu til að fjalla málefnalega um þær næstu 6-7 vikurnar.“ Svara sé fyrst að vænta 15. ágúst. Þetta sé aldeilis furðulegt því fjárhagsstaða Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja sé bágborin, þjónustan hafi verið skert, en nú bjóðist „sértekjur sem geti styrkt stofnunina.“ Útrás dr. Nordhus Nokkrum dögum fyrr hafði Ottó Nordhus, eigandi Nordhus Medica, látið svipaðar skoðanir í ljós á síð- um Morgunblaðsins. Einnig hann sagði að heilbrigðisráðherrann væri sér þrándur í götu, enda hefði hann sannfrétt að maðurinn væri kommúnisti. Af þessu ræð ég á hvern hátt Ottó Nordhus er upp- lýstur af viðskiptafélögum sínum hér á landi og öðrum þeim sem vilja opna faðm hins íslenska skatt- borgara fyrir einkaspítala Ottós: „Skurðstofan er þarna, húsið er þarna og starfsfólk sem kann sitt fag og af hverju ekki að nota það?“ spyr Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, í viðtali við Morgunblaðið. Formanni LÍ til upplýsingar vil ég benda á að starfsfólk og húsakostur á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja er „vel nýtt“. Spurningin snýst hins vegar um hvort nýta megi hvort tveggja enn betur og á markvissari hátt. Að þjóna samfélagi sínu Út á nákvæmlega þetta gengur sú vinna sem fram hefur farið á vegum heilbrigð- isráðuneytisins í sam- vinnu við sjúkrahúsin á suðvesturhorni landsins. Leiðarahöf- und Morgunblaðsins fullvissa ég um að sú vinna er vönduð og „málefnaleg“. Það hefur sýnt sig að vinna sem unnin er úr tengslum við starfsfólk og sam- félagið sem viðkom- andi stofnanir eiga að þjóna skilar ekki árangri. Þvert á móti skilja slík vinnubrögð eftir sig sviðna jörð og óánægju. Hinn „málefnalegi“ þáttur í okkar vinnu er að spyrja á hvern hátt megi búa svo um hnútana að Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja þjóni sam- félaginu enn betur en stofnunin gerir nú. Slík lausn verður uppi á borðinu um miðjan ágúst eins og ég hef boðað. Auðvitað má með sanni segja að það sé „málefnaleg“ afstaða út af fyrir sig að gefa sér þá lausn fyrir- fram að tilkoma aðfluttra sjúklinga á vegum einkaaðila henti best til að styrkja Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. En vandinn er sá að um slíka flutninga eru talsverðar deilur á Norðurlöndum og innan Evrópusambandsins – tilskipunin, sem slík viðskipti hvíla á, mun ekki ná inn í lagaramma ESB í bráð. Vissulega borga sjúkratryggingar heimalands sjúklings sem er í för- um landa í milli í mörgum tilvikum. En tekist er á um skilmálana. Nor- dhus gefur lítið fyrir að sýna bið- lund þótt málið sé ekki frágengið á vettvangi ESB og einstakra aðild- arríkja sambandsins, þar á meðal Norðurlandanna: „Við bíðum ekki svo lengi …“, segir hann Morg- unblaðinu. Þetta segir mér að þessi viðskiptahugmynd sé hugsanlega ekki á eins traustum grunni og ætla mætti. Samfélagslegt samstarf Annað er að stórfenglegar pa- tentlausnir í viðskiptum hafa á undanförnum árum oft reynst fall- valtar þegar á hólminn er komið. Þess vegna þarf að fara varlega í sakirnar þegar beinlínis er lagt til að heilbrigðisþjónustan verði skipulögð með slíka starfsemi sem útgangspunkt eins og mér virðist Morgunblaðið og ýmsir stjórn- málamenn vilja gera. Nær væri að huga að samstarfi á borð við það sem ég hef rætt við norsk heil- brigðisyfirvöld á sviði innkaupa og lyfjamála og hugsanlega einnig samnýtingu heilbrigðiskerfa Ís- lands og Noregs með almanna- hagsmuni í huga, en ekki annað. Allt þetta er nú á vinnsluborði og þótt einhverjar vikur eða mán- uðir líði á meðan allir kostir eru skoðaðir í þaula verða menn á borð við Otto Nordhus og viðskipta- félaga hans hér á landi að sýna okkur biðlund og kannski líka lág- markskurteisi. Við megum almennt ekki láta vonina um skamm- tímagróða spenna okkur upp. Nóg er komið af slíku. Velgjörðarmenn? Hvort flokka á aðkomu Ottos Nordhus að umræðu um heilbrigð- ismál á Íslandi sem „málefnalega“, verður hvert og eitt okkar að dæma. Sjálfum fannst mér ekki laust við óþægilegan tón, þegar hann minnti okkur á að hann kæmi úr hópi velgjörðarmanna Íslend- inga, sem við ættum væntanlega að standa í þakkarskuld við: „Íslensk stjórnvöld leituðu til norrænna samherja sinna í leit að lánum (eft- ir bankahrunið). Þau voru veitt en þegar þeim býðst að fjölga störfum segja þau nei!“ Morgunblaðið hefur ekki teljandi áhyggjur af þessu við- horfi. Það leyfi ég mér hins vegar að gera. Nákvæmlega þetta er hætt við að hendi þjóð í þrengingum. Þegar fjárhagur hennar er bágborinn, þrengt að velferðinni, þá sækja að henni aðilar sem ekki eru allir þeir raunverulegu „velgjörðarmenn- “sem þeir vilja vera láta. Eftir Ögmund Jónasson » Við megum almennt ekki láta vonina um skammtímagróða spenna okkur upp. Nóg er komið af slíku. Ögmundur Jónasson Höfundur er heilbrigðisráðherra. Þjóð í þrengingum BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.