Morgunblaðið - 03.07.2009, Side 24
24 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
ÞAÐ var fyrir tæp-
um tuttugu árum að
Gunnar I. Birgisson
gekk inn á fund Sjálf-
stæðisfélagsins. Hann
var stór og stæðilegur,
verkfræðingur að
mennt og vissi allt um
framkvæmdir og
gatnagerð, enda dokt-
or í jarðvegsfræðum.
Strax við fyrstu kynni
var okkur ljóst að þar
var kominn maður sem var fróður
og vel að sér um þessa hluti og
mjög talnaglöggur. Það var líka
ljóst strax í upphafi að hann var
fastur fyrir og vissi nákvæmlega
hvað hann vildi. Fljótlega kom
hann með nýja og ferska stefnu fyr-
ir flokkinn, sem var framsýn og
djörf og þá strax var ljóst að þetta
var maður frakvæmda
með óbilandi trú á
uppbyggingu í bænum.
Mörg okkar sem sát-
um fundinn heill-
uðumst af orku hans
og framtíðarsýn. Hann
náði fyrsta sæti í próf-
kjörinu og hefur æ síð-
an verið oddviti okkar
sjálfstæðismanna í
Kópavogi.
Ég hef unnið náið
með Gunnari allt frá
1994, sem fyrsti vara-
bæjarfulltrúi og bæj-
arfulltrúi frá 1998. Meðan Gunnar
hefur verið í forystusveit bæj-
arfélagsins hefur bærinn tekið
stakkaskiptum. Hann hefur verið
metnaðarfullur gagnvart sínu sveit-
arfélagi og viljað veg þess sem
mestan. Fljótlega eftir að Gunnar
kom í bæjarstjórn lagði hann mikla
áherslu á að bærinn ætti land svo
hægt væri að bjóða fólki lóðir en þá
var mikill lóðaskortur á höfuðborg-
arsvæðinu. Þá strax voru skiptar
skoðanir um hvort bærinn ætti að
fara út í slík landakaup því á þess-
um tímum var samdráttur í þjóð-
félaginu. En með stuðningi bæj-
arfulltrúa náðist það fram og síðan
hefur bærinn stækkað og blómstr-
að. Gunnar hefur ætíð sýnt menn-
ingarmálum mikinn áhuga. Þegar
núverandi meirihluti tók við stjórn-
artaumunum í bænum árið 1990 var
fljótlega hafist handa við að ljúka
byggingu Listasafns Kópavogs,
Gerðarsafns, en þá hafði tómur
grunnur hússins staðið í nokkur ár
sem sár á Borgarholtinu. Húsið var
fullbyggt og tekið í notkun vorið
1994. Síðan hafa verið reist á tæp-
um áratug Salurinn, Menningar-
miðstöðin þar sem Bókasafnið og
Náttúrufræðistofa eru til húsa og
Ungmennahúsið sem hýsir Molann
og Tónlistarsafn Íslands. Jafnframt
er fyrirhugað að opna nýtt útibú
bókasafnsins í Kórahverfi nú í
haust. Þessi menningarhús sýna í
verki vilja bæjaryfirvalda og þá
ekki síst Gunnars til að efla menn-
ingarandann ekki aðeins meðal íbúa
Kópavogs heldur allra landsmanna.
Gunnar hefur jafnframt viljað
opna dyr inn í ólíka menningar-
heima. Hann hefur verið helsti
hvatamaður að hinum erlendu
þemadögum þar sem listmunir frá
erlendum ríkjum og erlendir lista-
menn á heimsmælikvarða hafa
komið fram. Miðaverði á slíka við-
burði hefur verið stillt í hóf svo sem
flestir geti notið þeirra.
Við Kópavogsbúar eigum Gunn-
ari margt og mikið að þakka. Hann
hefur sýnt það þor og þann kjark
sem þurft hefur til að draga Kópa-
vog upp úr lægð fámennis og stuðl-
að að því að gera hann að öflugasta
bæ landsins. Þar sem ekki aðeins
menning blómstar heldur hefur
einnig öll aðstaða til íþróttaiðkunar
stórbatnað. Skólar og leikskólar
eru byggðir upp samhliða gatna-
gerð svo fólk sem flytur inn í ný
hverfi getur sett börn sín strax í
skóla í sínu hverfi. Nú á þessum
tímamótum þegar kosinn hefur ver-
ið nýr bæjarstjóri í Kópavogi vil ég
í þessari stuttu grein þakka Gunn-
ari I. Birgissyni fyrir hans frábæru
störf í þágu bæjarins því það verð-
ur aldrei frá honum tekið. Ég er
þess fullviss að Kópavogur væri
ekki sá bær sem hann er í dag ef
starfa hans fyrir sveitarfélagið
hefði ekki notið við. Vegna hans
þátttöku og leiðsagnar í bæj-
armálum má með sanni segja að
það sé „gott að búa í Kópavogi“.
Jafnframt óska ég nýjum bæj-
arstjóra, Gunnsteini Sigurðssyni,
velfarnaðar í starfi.
Eftir Sigurrós
Þorgrímsdóttur »Ég vil í þessari
stuttu grein þakka
Gunnari I. Birgissyni
fyrir hans frábæru
störf í þágu bæjarins
því það verður aldrei
frá honum tekið.
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi.
Þakka góð störf
VEGNA umfjöllunar Kastljóss
þann 29. júní um úthafs-
rækjukvóta á línuskipinu Sig-
hvati GK vill útgerð skipsins
taka eftirfarandi fram.
Árið 2002 keypti Vísir hf.
meirihluta í Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur. FH rak þá rækju-
verksmiðju og átti rækjukvóta
bæði á Íslandsmiðum og Flæm-
ingjagrunni, en skip FH hafði
verið selt nokkru áður. FH flutti
inn frosna iðnaðarrækju til
vinnslu.
Árið 2004 var gerð tilraun til
að efla þessa starfsemi á Húsa-
vík. Stofnað var rækjufélagið Ís-
haf hf. ásamt öðrum aðilum og
ráðist í kaup á skipum og kvóta.
Reksturinn fór af stað með fjór-
um skipum og 18% alls rækju-
kvóta á Íslandi. Reksturinn gekk
illa og tveimur árum seinna var
honum hætt, skipin og eignir
seld og félagið leyst upp. Enginn
markaður var fyrir rækjukvóta
og rækjuveiðar nánast lögðust af
á Íslandsmiðum þar sem saman
fór lítil veiði, hátt olíuverð og
sterk króna. Þar sem öll rækju-
skipin voru seld varð að setja
kvótann tímabundið á línuskipið
Sighvat GK þar sem hann er í
dag.
Hingað til hefur sú von að
rekstrarskilyrði rækjuveiða og
vinnslu batni hér á landi ekki
gengið eftir. Það að rækjukvót-
inn sé tímabundið á Sighvati GK
hefur ekkert með veiðiskyldu að
gera og hefur engin áhrif haft á
veiðar skipsins á öðrum teg-
undum. Á þeim tíma sem kvótinn
hefur verið vistaður á skipinu
hafa allir haft möguleika á að
leigja hann fyrir nánast ekki
neitt. Ástæða lítillar rækjuveiði
tengist afkomunni við veiðarnar
en ekki kvótastöðu.
Nú í ár ríkir hins vegar hófleg
bjartsýni að nýju og samstarf
hófst því í vor með Siglfirðingum
um að gera tilraun til að efla
rækjustarfsemina þar. Togskipið
Siglunes SI var keypt í mars og
hófust veiðar nokkru seinna og
er aflinn unninn hjá Ramma hf. á
Siglufirði sem fjárfest hefur að
nýju í rækjuvinnslunni. Rækju-
kvótinn á Sighvati GK flyst því á
togskipið Siglunes SI og vonandi
næst sá árangur sem að er
stefnt.
Nú tel ég að spurningunni um
það hvers vegna rækjukvóti er á
línuskipi sé svarað. Hinu er aftur
á móti ósvarað af hverju umfjöll-
un um þessi mál er með jafn-óná-
kvæmum hætti og raun ber vitni.
Því þurfa aðrir að svara.
Pétur Hafsteinn Pálsson
Af hverju er rækjukvóti á línuskipi?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vísis hf.
JÓHANN Ísberg
kallar eftir við-
brögðum mínum í
Morgunblaðinu þann
30. júní vegna málefna
Lífeyrissjóðs starfs-
manna Kópavogsbæjar
og þá hver afstaða mín
sé gagnvart hlut Flosa
Eiríkssonar og Jóns
Júlíussonar, bæjarfull-
trúa Samfylkingarinnar sem eiga
sæti í stjórn sjóðsins.
Mér er bæði ljúft og skylt að
svara Jóhanni.
Jón Júlíusson situr ekki í stjórn
LSK sem pólitískur fulltrúi, hann
situr þar fyrir hönd Starfsmanna-
félags Kópavogsbæjar og situr því
ekki í umboði Samfylkingarinnar.
Flosi Eiríksson situr aftur á móti
sem kjörinn fulltrúi í stjórninni og
því eðlilegt að ég taki afstöðu til
vinnubragða hans í málinu.
Frétt Morgunblaðsins á laug-
ardaginn var því byggð á röngum
upplýsingum. Á stjórnarmönnum í
LSK hvílir ekki rannsóknarskylda.
Það þýðir að ekki er gerð sú krafa
um að þeir sannreyni hvort gögn
sem þeim eru afhent af fram-
kvæmdastjóra eða stjórnarfor-
manni séu rétt. Þeir eiga eðilega að
treysta því að allt sé satt og rétt
sem að þeim er rétt.
Málefni lífeyrissjóðsins eru því
tvíþætt: Annars vegar
liggur fyrir að lánveit-
ingar til Kópavogs-
bæjar fóru yfir 10%
hámark af heildar-
eignum sjóðsins en
það gerðist þegar
eignasafn sjóðsins féll
í bankahruninu og lán
sem var undir 10% há-
markinu í október
varð hærra hlutfall af
heildareignum sjóðs-
ins þegar eignasafnið
rýrnaði. Þetta var öll-
um stjórnarmönnum kunnugt um
og ekki um það deilt.
Hins vegar virðist vera að gögn
hafi sérstaklega verið matreidd of-
an í FME sem sýndu aðra skulda-
stöðu bæjarins við sjóðinn en raunin
var. Stjórnarmenn lásu yfir drög að
bréfi sem átti að senda Fjármálaeft-
irlitinu og Flosi Eiríksson m.a.
gerði athugasemd við þau í tölvu-
pósti. Þau drög voru ekki send
óbreytt áfram til Fjármálaeftirlits-
ins heldur hafði verið bætt við texta
bréfsins fullyrðingum sem breyta í
grundvallaratriðum innihaldi þess.
Á því bera stjórnarmenn enga
ábyrgð.
Eins og öllum má vera ljóst bera
almennir stjórnarmenn og svo for-
maður stjórnar mismikla ábyrgð.
Formaður stjórnarinnar, bæj-
arstjóri í þessu tilfelli, ber ábyrgð á
samskiptum stjórnarinnar við Fjár-
málaeftirlitið. Stjórnarmenn byggja
ákvarðanir sína á þeim gögnum sem
þeir fá í hendur og þeir verða að
geta treyst því að þau séu rétt.
Bregðist það er ekki við þá að sak-
ast. Ég vil vekja athygli á því að
fyrrverandi bæjarstjóri og stjórn-
arformaður lífeyrissjóðsins varð að
hverfa úr starfi bæjarstjóra vegna
óeðlilegra viðskipta bæjarins við
fyrirtæki dóttur hans. Það var
ákveðið áður en mál lífeyrissjóðsins
kom upp. Hann hefði horfið úr starfi
hvort sem var. Hann hefur hins veg-
ar kosið að tengja brotthvarf sitt
fremur við lífeyrissjóðsmálið. Nú er
vonandi mál að linni um sinn. Mörg
brýn verkefni sem hafa legið á ís
undanfarnar vikur bíða úrlausnar
bæjarstjórnar Kópavogs. Nú þegar
rykið sest og aftur kemst á vinnu-
friður í bæjarstjórn mun ekki
standa á fulltrúum Samfylking-
arinnar að vinna að góðum málum í
þágu Kópavogsbúa en við munum
nú sem fyrr standa vaktina og láta í
okkur heyra þegar tilefni er til.
Ábyrgð kjörinna fulltrúa
Eftir Guðríði
Arnardóttur » Stjórnarmenn
byggja ákvarðanir
sínar á þeim gögnum
sem þeir fá í hendur og
ef þau gögn eru röng er
ekki við þá að sakast.
Guðríður Arnardóttir
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í bæjarstjórn Kópavogs.
V i n n i n g a s k r á
9. útdráttur 2. júlí 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 8 4 6 7
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 1 6 1 0 1 7 1 2 2 4 0 6 3 2 6 4 5 0 5
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
6583 15489 54071 60759 64464 69336
12965 25140 55637 61487 68639 72996
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
2 6 9 8 5 0 1 1 9 2 2 0 3 0 4 9 8 4 0 8 4 9 4 8 4 3 7 5 6 1 9 5 7 1 1 9 2
4 6 3 8 8 0 0 2 0 2 2 1 3 0 5 1 0 4 1 2 5 4 4 8 8 1 3 5 6 3 3 5 7 2 5 8 9
1 1 3 8 8 9 0 9 2 1 4 0 6 3 1 3 0 0 4 1 7 5 8 4 8 9 2 4 5 6 7 1 8 7 3 6 9 5
1 3 9 2 1 1 7 7 9 2 1 4 4 3 3 2 2 3 8 4 2 5 4 9 4 9 3 2 2 5 7 9 7 1 7 3 9 5 6
2 0 8 1 1 2 7 0 5 2 2 5 3 9 3 2 5 3 7 4 3 1 6 5 5 0 0 1 0 5 8 3 1 4 7 4 2 3 2
2 7 2 8 1 3 6 1 3 2 3 5 1 1 3 3 5 7 6 4 3 4 8 7 5 0 5 1 9 5 9 2 0 5 7 6 1 5 7
3 0 7 9 1 4 3 4 0 2 3 9 4 8 3 4 2 5 8 4 3 7 4 5 5 2 3 1 7 6 0 7 8 2 7 7 9 1 0
3 9 3 8 1 4 3 8 2 2 8 0 3 7 3 4 7 1 4 4 3 8 7 1 5 2 4 8 4 6 6 9 4 5 7 8 5 4 2
4 1 4 3 1 5 5 6 0 2 8 7 3 1 3 5 8 0 3 4 4 2 1 3 5 2 5 7 7 6 7 0 4 1 7 8 6 6 8
5 7 2 3 1 6 0 9 8 2 8 8 6 2 3 7 4 3 0 4 4 5 0 4 5 2 6 4 3 6 8 2 1 0
6 3 0 8 1 6 5 7 8 2 9 6 7 6 3 8 0 3 5 4 5 4 8 8 5 3 1 5 9 6 9 9 9 2
7 0 5 4 1 7 5 8 8 2 9 7 9 6 3 9 7 5 8 4 6 6 9 5 5 3 5 1 6 7 0 7 9 7
7 8 5 3 1 8 9 5 7 3 0 0 3 2 4 0 3 1 7 4 6 8 3 8 5 5 5 2 4 7 1 0 2 8
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
6 1 1 0 0 1 3 1 8 4 0 4 2 6 4 8 9 3 8 0 9 1 4 6 4 0 5 5 7 7 4 9 6 9 9 5 3
1 4 0 1 0 1 2 8 1 8 4 2 7 2 6 4 9 1 3 8 4 4 1 4 7 4 1 6 5 8 2 8 2 7 0 3 1 8
3 9 0 1 0 3 9 5 1 8 8 9 2 2 6 6 8 6 3 8 8 5 6 4 8 0 2 6 5 8 7 6 7 7 0 4 4 8
7 3 7 1 0 9 7 8 1 8 9 4 2 2 7 3 4 7 3 9 1 7 4 4 8 2 2 8 5 9 0 8 0 7 0 4 7 7
1 0 2 5 1 1 4 0 1 1 9 2 5 2 2 7 4 9 5 3 9 1 8 7 4 8 4 0 5 5 9 6 2 2 7 0 6 4 7
1 3 7 9 1 1 5 8 0 1 9 3 5 6 2 8 4 2 4 3 9 3 6 2 4 9 1 1 7 5 9 9 4 9 7 1 1 2 0
1 5 6 9 1 1 7 8 0 1 9 4 7 7 2 8 6 2 6 3 9 5 5 9 4 9 2 0 5 6 0 2 8 6 7 1 4 3 2
1 6 5 3 1 1 8 0 6 1 9 4 9 3 2 9 3 9 0 4 0 0 8 4 4 9 3 5 7 6 0 8 9 8 7 1 4 6 5
2 2 1 5 1 2 3 5 4 2 0 0 1 2 2 9 4 6 8 4 0 1 5 5 4 9 7 6 4 6 2 1 3 6 7 1 5 1 4
2 6 4 4 1 2 4 2 2 2 0 1 3 1 3 0 2 9 3 4 0 3 1 3 4 9 7 8 4 6 2 7 4 6 7 2 0 3 2
3 0 0 2 1 2 8 0 7 2 0 4 9 5 3 0 4 9 5 4 0 6 4 0 5 0 3 7 5 6 2 8 1 8 7 2 4 7 2
3 5 1 1 1 3 0 5 3 2 0 5 8 3 3 0 6 5 7 4 1 0 4 2 5 1 6 0 5 6 2 9 2 9 7 2 7 9 3
3 5 7 6 1 3 3 1 4 2 0 5 9 8 3 1 2 2 5 4 1 4 6 5 5 1 7 2 8 6 3 3 6 3 7 2 9 8 6
4 1 4 4 1 3 3 5 7 2 0 6 4 2 3 1 3 5 5 4 1 6 6 1 5 1 8 9 2 6 3 5 0 2 7 4 0 4 1
4 2 9 4 1 3 6 2 4 2 1 0 2 9 3 1 3 8 7 4 1 7 6 4 5 2 2 1 2 6 3 5 9 5 7 4 1 4 7
4 3 3 9 1 3 9 2 9 2 1 2 5 3 3 1 4 6 3 4 1 7 7 9 5 2 5 4 5 6 3 7 9 5 7 4 6 7 8
4 3 9 6 1 4 0 6 4 2 1 4 9 7 3 2 1 7 5 4 1 7 9 6 5 3 1 4 7 6 4 3 3 4 7 4 7 3 8
4 7 0 6 1 4 1 5 9 2 1 6 7 2 3 2 5 6 8 4 1 8 8 4 5 3 4 1 5 6 4 7 1 2 7 5 0 4 5
4 7 9 3 1 4 1 7 6 2 1 7 4 1 3 3 2 0 1 4 2 1 0 1 5 3 8 8 9 6 4 8 0 3 7 5 0 5 9
4 9 9 4 1 4 6 5 9 2 2 1 5 4 3 3 2 3 1 4 2 5 7 6 5 4 5 5 6 6 5 2 5 6 7 5 8 3 0
5 1 9 2 1 4 6 8 2 2 2 2 6 4 3 3 2 8 1 4 2 5 9 7 5 4 6 7 9 6 5 4 9 8 7 5 9 3 6
5 2 8 6 1 4 7 4 7 2 3 0 3 8 3 3 6 9 9 4 2 8 3 6 5 4 8 3 7 6 6 0 5 9 7 6 4 0 7
5 6 1 4 1 6 0 2 3 2 3 1 3 6 3 3 7 8 1 4 3 3 3 6 5 5 0 0 8 6 7 9 6 2 7 6 9 0 2
5 6 6 5 1 6 2 1 1 2 3 1 5 9 3 4 5 7 7 4 3 3 9 4 5 5 0 2 6 6 7 9 7 0 7 8 0 9 6
6 0 6 5 1 6 3 5 7 2 3 2 5 7 3 4 8 6 5 4 3 4 8 6 5 5 5 0 1 6 7 9 8 7 7 8 8 6 8
6 1 8 6 1 6 6 0 2 2 3 3 4 2 3 4 9 6 8 4 3 5 6 2 5 5 5 5 1 6 8 2 2 6 7 9 7 9 1
6 3 1 1 1 6 6 6 1 2 3 3 8 2 3 5 0 6 5 4 3 5 8 2 5 5 5 7 0 6 8 8 8 0
6 7 3 3 1 7 3 6 2 2 4 7 5 6 3 5 4 2 2 4 4 4 5 8 5 6 1 7 4 6 9 1 5 4
8 2 4 7 1 7 4 0 0 2 5 6 8 7 3 5 9 2 1 4 4 8 9 4 5 6 2 8 0 6 9 4 2 2
8 6 5 4 1 7 8 6 4 2 5 7 4 1 3 7 6 8 2 4 5 0 4 2 5 6 6 4 0 6 9 4 3 6
9 8 1 0 1 8 1 7 0 2 6 1 9 2 3 7 6 8 3 4 5 8 7 5 5 6 9 0 9 6 9 8 3 8
9 9 7 3 1 8 2 2 9 2 6 2 2 0 3 8 0 3 1 4 6 0 2 5 5 7 6 1 4 6 9 8 3 9
Næstu útdrættir fara fram 9. júlí, 16. júlí, 23. júlí & 30. júlí 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.