Morgunblaðið - 03.07.2009, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
auk 1000 punkta
GOLFBOLTAR
MEÐ REYNSLU
DVD FERÐASPILARI
í allt sumar
Ferðatilboð
SU
M
AR
TI
LB
OÐ
Þú færð hámarksnýtingu á Safnkortspunktunum þínum með
því að nýta þér Safnkortstilboð á þjónustustöðvum og í
verslunum N1. Sparaðu peninga og veldu sniðugar vörur næst
þegar þú átt leið hjá. Sjá nánar á www.n1.is.
Fullt verð 2.990 kr.
990kr.
auk 1.000 punkta
Fullt verð 1.690 kr.
190kr.
auk 500 punkta
Fullt verð 1.990 kr.
0kr.
auk 1.000 punkta
Fullt verð 9.900 kr.
3.900kr.
auk 1.000 punkta
RAFMAGNS-
HLAUPAHJÓL
12 DÓSIR
COCA-COLA 0,33cl EÐA
COCA-COLA LIGHT 0,33cl
2 DVD MYNDIR Í PAKKA
Fullt verð 27.900 kr.
17.900kr.
auk 1.000 punkta
x10
x2
x6
x2
x3
LJÓTU hálfvitarnir eru búnir að
gera aðra plötu; hún heitir ekkert
og verður örugglega kölluð bláa
platan til aðgreiningar frá þeirri
með bleika letrinu sem kom út fyr-
ir tveimur árum og innihélt
nokkra
smelli –
ætli
„Sonur
hafsins“
hafi ekki
verið
stærstur
þeirra.
Grín-
plata er
líklegast réttasta lýsingin á þess-
ari skífu. Slíkt er alltaf vand-
meðfarið, því meðan fólk endist í
að hlusta á sömu ástar- eða dans-
lögin aftur og aftur þá eru tak-
mörk á því hversu lengi grínið er
fyndið, og plötur eru yfirleitt spil-
aðar oftar en einu sinni. Þeir ljótu
eru ekkert sérlega fyndnir þótt
það megi vissulega brosa að því
besta hérna. Hér eru aðallega lög
um konur sem eru afkvæmi and-
skotans, annaðhvort bókstaflega
eða að mati ljóðmælanda (minnst
fjögur og mest sex eftir því hvern-
ig er talið), svo eru nokkrir fyll-
iríssöngvar, svolítið af kúk og pissi
og klámi og talsvert af gríni sem
gengur út á að snúa upp á eða út
úr klisjum.
Þegar þannig stendur á (og jafn-
vel þótt einhverjum lesanda finnist
hálfvitarnir alveg svakalega fyndn-
ir þá er bara tímaspursmál um
hvenær brandararnir þreytast) er
mjög mikilvægt að músíkin standi
fyrir sínu. Ljótu hálfvitarnir
standast þá þrekraun ágætlega.
„Stjáni“ og „Meðlag“ leka t.d.
áfram í skemmtilega letilegu og
svolítið Tom Waits-legu grúvi,
brassið í ska-slagaranum „666“ er
ánetjandi og viðlagið borar sér
með satanískum svartagaldri inn í
heilann á manni og hverfur ekki
svo dögum skiptir, „Hálfvitavals-
inn“ er góð poppsmíð með
skemmtilegum músíkölskum
bröndurum og „Nágrannar“ minn-
ir, þótt ótrúlegt sé, á The Boy
Least Likely To eða eitthvert ann-
að gæðalegt indípopp. Undirrit-
aður hefur hins vegar takmarkaða
þolinmæði fyrir írsku þjóðlaga-
stemmunum „Paradísarmissi“ og
„Og fá sér!“
Það gerir líka heilmikið fyrir
plötuna að hljómurinn er lifandi og
nokkuð töff, óravegu frá þeim
steingelda hljómi sem einkennir
oft miðaldrapopp. Sama gildir um
hljóðfæranotkun sem er oft miklu
djarfari en maður kynni að ætla.
Þarna eru banjó og mandólín og
úkúlele, klukkuspil, óbó og fagott
og alls kyns konfekt annað sem
opnar eyrun og gerir plötuna að
einhverju öðru og meira en aula-
brandara. Því miður dregur hrika-
lega pirrandi söngur oft úr hlust-
unaránægjunni – hann er
einfaldlega of „grínlegur“: of
þorrablótslegur – of meðvitaður.
Að hlusta á þessa plötu er sem
sagt svolítið eins og að láta lukku-
trollið út; þú veiðir allan fjandann,
sumt ógeðslegt, annað spaugilegt
en ef heppnin er með þér færðu
líka ýsur, þorska og kola – nú eða
bara hnísur.
Geisladiskur
Ljótu hálfvitarnir
bbbnn
ATLI BOLLASON
TÓNLIST
Ekki bara aulabrandari
BANDARÍSKA leikkonan Megan Fox, sem gárungarnir kalla Mega Fox,
krefst þess að nýir kærastar hennar fái sér húðflúr með nafni sínu eða
mynd af sér. Fox mun vera mikið fyrir húðflúr og krefst þess að kærastar
sínir fái sér að minnsta kosti eitt slíkt, vilji þeir að sambandið verði alvar-
legt. „Sjálf er ég með átta húðflúr. Allir kærastar mínir eru skyldugir til
þess að hafa að minnsta kosti eitt og ef þeir eru ekki með neitt læt ég þá fá
sér húðflúr með nafninu mínu eða andliti mínu,“ segir Fox sem er 23 ára
gömul. Hún byrjaði nýverið aftur með gamla kærastanum sínum, leik-
aranum Brian Austin Green, sem er þá væntanlega með húðflúr.
Reuters
Já, sæll! Leikkonan Megan Fox er með þeim flottari.
Gerir kröfu um húðflúr