Morgunblaðið - 03.07.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 03.07.2009, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Banaslys í Vopnafirði  Maður lést þegar flugvél brotlenti í Vopnafirði síðdegis í gær. Tveir menn voru um borð í flugvélinni, sem var fjögurra sæta einkaflugvél. Hinn maðurinn var fluttur þungt haldinn með sjúkraflugi til Reykja- víkur. Vélin brotlenti skammt frá Selá í Vopnafirði, aðeins steinsnar frá veiðihúsi við ána. Ferðinni var heitið til Mosfellsbæjar. »2 Bankahrunið er risavaxið  Íslenska bankahrunið árið 2008 er stærra en hrun bæði Enron og WorldCom fyrirtækjanna, en það eru tvö stærstu gjaldþrotamál í sögu Bandaríkjanna. »Forsíða Ljón í vegi borholunnar  Unnið er að því að styrkja borhol- una við Kröflu með því að tvöfalda stálfóðringu í henni. Mörg ljón eru í veginum áður en hægt verður að virkja aflið í holunni. »4 Staksteinar: Vítahringur skattanna Forystugreinar: Krónan í forgrunni Of afdráttarlaus lög? Pistill: Reykjavík B15 Íssól & Lausnir.is Ljósvakinn: Morguntrukk með mýkt UMRÆÐAN» Ábyrgð kjörinna fulltrúa Af hverju er rækjukvóti á línuskipi? Þjóð í þrengingum Icesave=ESB Hraðlest fjölskyldunnar Nýtt ekki alltaf betra Óstöðvandi söluhrun á atvinnubílum Náði 117 km á reiðhjóli BÍLAR»                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-., +/,-01 */0-,0 +2-30* *0-33+ *,-.34 **,-1. *-2/,3 *04-4+ *11-0 5 675 +# 89: +//0 *+,-1, +/1-.1 **/-/* +2-0,* *0-0.* *,-422 **1-/1 *-2*/, *0,-* *13-. +2/-./.0 &  ;< *+1-/, +/1-01 **/-22 +.-/2* +/ *,-43* **1-. *-2*.. *0,-,3 *13-0 Heitast 20°C | Kaldast 12°C Hæg norðaustlæg átt. Dálítil rigning austantil, smá skúrir N-lands en annars skýjað með köflum. »10 Sex bækur hljóta nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs og má þar finna ljóð, örsögur og barna- bók. »36 BÓKMENNTIR» Útgáfa styrkt FÓLK» Megan Fox vill húðflúr- aða karlmenn. »43 Suma sjónvarps- þætti, t.d. Lost, ætti ekki að teygja í margar þáttaraðir, að mati Birtu Björnsdóttur. »40 AF LISTUM» Ein þáttaröð eða fleiri? TÓNLIST» Miðar á Hróarskeldu seldust ekki upp. »41 ÍSLENSKUR AÐALL» Bergur Ebbi væri til í að hitta Berlusconi. »37 Menning VEÐUR» 1. Flugslysið rannsakað 2. Flugslys við Vopnafjörð 3. Launalausir vegna mistaka … 4. Rauðri málningu skvett á hús …  Íslenska krónan styrktist um 0,4% »MEST LESIÐ Á mbl.is Morgunblaðið/Heiddi Hugsjónamaður Þorsteinn Lár Ragnarsson ásamt vinum sínum á sumarhátíðinni í Rjóðrinu. Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur svanbjörg@mbl.is MIKIÐ fjör var á hinni árlegu sum- arhátíð í Rjóðrinu í gær, en Rjóðrið er hvíldarheimili fyrir langveik, fötl- uð börn. Frumkvöðull hátíðarinnar er ung- ur hugsjónamaður og fyrrverandi starfsmaður þar, Þorsteinn Lár Ragnarsson. „Ég hafði tengsl við íþrótta- og tónlistarheiminn því ég er í hljómsveitinni XXX Rottweiler- hundum og því hægur vandi að fá skemmtikrafta og skipuleggja hátíð,“ segir Þorsteinn. Styrktarsjóður og fótboltaferð Ekki vill Þorsteinn eigna sér allan heiðurinn. Vinur hans Guðjón Guð- mundsson markaðsstjóri hjá Vífilfelli og Grétar Rafn Steinsson landsliðs- maður í fótbolta standi í þessu með honum. Þeir félagar hafa einnig und- anfarin þrjú ár boðið einu „Rjóð- urbarni“ ásamt fjölskyldu í fótbolta- ferð til útlanda. „Við fórum núna í apríl til Bolton í Bretlandi að heim- sækja Grétar sem spilar þar. Grétar er mikill hugsjónamaður og hefur gert margt gott sem enginn veit af. Hann borgaði t.d. ferðina og uppi- hald fyrir alla. Ég vil segja frá þessu því þetta gæti hvatt aðra til að láta gott af sér leiða“, segir Þorsteinn. Þeir félagar láta ekki þar við sitja og eru að stofna styrktarsjóð fyrir Rjóðrið. Lætur mér líða vel í hjartanu Þorsteinn segir það hafa verið til- viljun, eða kannski örlög, að hann fór að starfa með börnum sem þurfa að- stoð. „Ég var í skóla og vantaði auka- vinnu. Mér var bent á að hægt væri að fá starf við liðveislu. Mér fannst það hljóma vel þar sem börn eru skemmtilegasta fólkið. Eitt leiddi af öðru og mér var boðin vinna í Rjóðr- inu. Þessi vinna breytti mér svo mik- ið og fékk mig til að hugsa öðruvísi.“ Aðalstarfi Þorsteins núna er á Hótel Keili í Keflavík sem er rekið af fjölskyldu hans og einnig er hann framkvæmdastjóri körfuknattleiks- deildar Keflavíkur. Hann ætlar þó ekki að hætta að sinna hugsjónum. „Það er svo gaman að geta gert þetta. Krakkarnir verða svo glaðir og það lætur mér líða eitthvað svo vel í hjartanu“, segir Þorsteinn og er þar með rokinn að skemmta sér með vin- um sínum í Rjóðrinu. Að láta gott af sér leiða Mikið fjör á ár- legri sumarhátíð í Rjóðrinu í gær „ÞETTA er ákveðið. Ég hef gegnt starfi formanns SÍM í sjö ár og er alveg tilbúin til að takast á við fólk utan félagsins. En þegar ég hef ekki stuðning innan félagsins og maður úr stjórn SÍM skrifar undir gagn- rýni á bókun okkar, þá finnst mér kominn tími til að einhver annar taki þetta að sér,“ segir Áslaug Thorlacius formaður SÍM, Sambands íslenskra mynd- listarmanna. Í grein sem hún ritar í Morgunblaðið í dag og í viðtali, kveðst hún hafa ákveðið að láta af störfum formanns sambandsins í kjölfar bókunar sem hún gerði og umræðu í kjölfarið síðustu daga um val á Borgarlistamanni Reykjavíkur 2009. | 22 og 36 Áslaug hættir í kjölfar um- ræðu um Borgarlistamann Áslaug Thorlacius FH-INGAR fóru áfram hamförum í úrvalsdeild karla í fótboltanum í gærkvöld þegar þeir gjörsigruðu þjálf- aralausa Valsmenn, 5:0, að Hlíðarenda. FH-ingar, undir stjórn Heimis Guðjónssonar, hafa nú skorað 22 mörk í röð í deildinni án þess að andstæðingar þeirra hafi náð að svara fyrir sig. Hafnfirðingarnir eru með níu stiga forskot á KR-inga, sem misstu tvö dýrmæt stig úr höndunum í uppbótartíma gegn Stjörnunni í gærkvöld en Garðbæing- arnir jöfnuðu þá metin, 1:1. KR-ingurinn Guðmundur Benediktsson er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Val en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins hafa Valsmenn óskað eftir því við KR-inga að fá að ræða við hann um starfið. | Íþróttir FH hefur skorað 22 mörk án svars frá andstæðingum Heimir Guðjónsson Hvað er Rjóðrið? Heimilislegt hvíldar- og endurhæf- ingarheimili fyrir 8-10 langveik og fötluð börn. Hvaða þjónustu og skemmtun fá börnin? Börnin fara í sjúkraþjálfun, sund, fá nudd, áhersla er á skapandi starf og söng og tónlist. Þarna starfa sjúkra- og þroskaþjálfar, hjúkrunarfræðingur, nuddari, tónlistarkennari og leikskóla- kennari og læknir. Er hægt að verða að liði? RKÍ er með sjálfboðaliðastarf sem menntaskólakrakkar sinna og sér- þjálfaðir hundar heimsækja börnin. Þorsteinn Lár stofnar í ágúst styrkt- arsjóð Rjóðursins. S&S SKOÐANIR»

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.