Morgunblaðið - 06.07.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.07.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Allra síðustu sætin! Barcelona í júlí frá kr. 19.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða frábær sértilboð á flugi til Barcelona í júlí. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu þín í borginni sem býður frábært mannlíf og fjölbreytni í menningu, afþreyingu að ógleymdu fjörugu strandlífi og endalausu úrvali veitingastaða og verslana. Verð kr. 19.990 Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með sköttum (KEF-BCN). Sértilboð 3., 10., 17. og 24. júlí. Ath. aðeins örfá sæti á þessu sértilboði. FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÞEIR sem setja sig inn í málið af alvöru sjá það að þetta er einhver barnaskapur sem nær bara engri átt,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra, spurður álits á þeirri afstöðu sem Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, setti fram í Icesave-málinu um helgina. Davíð sagði í viðtali í Morgunblaðinu að ríkis- ábyrgð væri ekki fyrir hendi á innstæðunum og að þeir sem vildu rukka Íslendinga ættu að höfða mál á varnarþingi íslenska ríkisins, fyrir íslenskum dómstólum. Hann vilji að Íslendingar standi við sínar skuldbindingar, en fái líka skorið úr um hverjar þær séu í raun. „Vandinn er sá að við innleiddum í lög þessa til- skipun [innsk. blm. um innstæðutryggingar] og innlánstryggingasjóðurinn staðfesti greiðslu- skyldu sína strax í október. Málið er ekki þannig vaxið að þetta sé vandi úti í löndum sem komi okk- ur ekki við. Menn vita hvernig málin stóðu í haust og hverju var hótað í sambandi við það ef við ætl- uðum að hlaupast undan okkar ábyrgð. Ég held að Davíð Oddsson geti ekki frekar en aðrir skautað framhjá þeim staðreyndum að það hefði alvar- legar og víðtækar afleiðingar,“ segir Steingrímur. Stjórnvöld hafi gengist við ábyrgð sinni strax í haust og lofað að semja um uppgjör á næstunni. „Einn af þeim sem lofuðu því var Davíð Oddsson.“ Nú vilja allir semja - nema Davíð Davíð snúi málinu öllu á haus og búi sér til nýj- an heim fyrir utan raunheiminn. Stjórnarand- staðan á þingi, In defence-hópurinn og nánast all- ir nema Davíð Oddsson tali nú þannig að það þurfi að semja, þótt margir vilji fá betri samning. „Ég held að Davíð Oddsson sé einn á ferð ef hann er virkilega með þá skoðun að við eigum ekki að bera neina ábyrgð í þessu.“ Steingrímur segir athyglisvert í sjálfu sér að þegar Davíð Oddsson bjóði fram aðstoð sína við þessar erfiðu aðstæður, sem sé skiljanlegt því hann beri mikla ábyrgð sjálfur, þá velji hann til þess sérkennilegar aðferðir. „Mér sýnist þetta vera hjálpsemi af svipuðum toga og hann sýndi af sér á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í vetur.“ Litlar skýringar var að fá hjá embættis- mönnum í gær, þegar leitað var eftir aðgangi að skjölum sem Davíð Oddsson vísaði til. Enginn að- spurður kannaðist við þau, hvorki í utanríkis- né forsætisráðuneyti, né í Seðlabanka Íslands. Er því komin upp keimlík staða og eftir ræðu Davíðs hjá Viðskiptaráði í haust, þegar hann kvaðst vita hvers vegna hryðjuverkalögunum var beitt. Vísaði til vandfundinna skjala Davíð sagði til dæmis að skjöl sýndu að fulltrú- ar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins teldu misbeitingu Breta, Hollendinga og Þjóðverja innan sjóðsins, til þess að tengja saman aðstoð hans við Íslend- inga og kröfur sínar umfram lagaskyldur, ein- hverja mestu niðurlægingu sem sjóðurinn hefði orðið fyrir. Þegar spurst var fyrir hjá fyrr- nefndum stofnunum í gær kannaðist enginn við þessi skjöl, en í utanríkisráðuneytinu fengust þau svör að það sem varðaði AGS væri helst að finna í forsætisráðuneyti. Fastafulltrúi AGS, Franek Rozwadowski, tjáði sig ekki um málið í gær. Þá sagði Davíð óbirt gögn sýna að Englands- banki teldi ekki að Íslendingar ættu að greiða fyr- ir Icesave. Englandsbanki gerði sér grein fyrir því að engin ríkisábyrgð væri á því. Aðspurðir könnuðust ekki heldur við þessi gögn, en vísuðu á Seðlabanka Íslands. Stefán Jóhann Stefánsson hjá Seðlabankanum svaraði því til að hann þekkti ekki til gagnanna en gerð yrði að þeim leit. „Einhver barnaskapur sem nær bara engri átt“ Davíð einn á ferð ef hann hefur þá skoðun að við berum ekki ábyrgð á Icesave Morgunblaðið/Kristinn Kosningar 2003 Davíð og Steingrímur hafa lengi tekist á í pólitík. Allur gangur er á því hver hefur yfirhöndina og skiptir engu hvort báðir eru enn starfandi í stjórnmálum eða ekki. Átökin halda áfram. Davíð vísaði til skýrslu um innistæðutryggingar eftir Jean-Claude Trichet, núverandi seðla- bankastjóra Evrópu, fyrir OECD, þar sem segði að innistæðutryggingakerfið gilti ekki ef um al- gjört bankahrun væri að ræða. Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utan- ríkisráðherra, segir að þarna eigi Davíð líklega við skýrslu franska seðlabankans frá árinu 2000, sem aðgengileg sé á netinu, og ekki meinta skýrslu OECD. Í þeirri skýrslu segir, á blaðsíðu 179, í þýðingu blaðamanns: ,,Það er viðtekið að innistæðu- tryggingakerfum er hvorki ætlað né eru þau fær um að takast á við kerfislægt bankahrun, sem fellur undir aðra hluta „öryggisnetsins“, til dæmis eftirlitsaðila, seðlabanka, ríkisstjórn.“ Sé þetta setningin sem Davíð vísar til er það því sannarlega skoðun skýrsluhöfunda að trygg- ingakerfið eigi ekki við í algjöru bankahruni. Það bætist hins vegar við að þeir álíta að við slíkar aðstæður eigi aðrar stofnanir viðkomandi ríkis, eða ríkissjóður sjálfur, að hlaupa undir bagga. Líklega skýrsla franska seðlabankans frá 2000, en ekki OECD „HELMINGUR flotans er á þessu svæði og því eðlilegt að þar gangi hraðast á kvótann,“ segir Auðunn Ágústsson deildarstjóri hjá Fiski- stofu. „Af 360 bátum á þessu svæði höfðu 150 bátar fengið úthlutaðan kvóta og þar af voru 100 byrjaðir veiðar.“ Fiskistofa hafði alls gefið út 386 leyfi til strandveiða fyrir helgi en Jón Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra skrifaði í lok júní undir reglugerð þar sem veitt var leyfi til veiða á 3.995 tonnum af óslægðum þorski og kvótanum skipt á milli fjögurra landssvæða. Veiðar hófust síðan um mán- aðamót júní og júlí á kvóta sem var úthlutað fyrir bæði júní og júlí- mánuð. Ekki var hægt að byrja veiðar á júníkvótanum fyrr, þar sem frumvarpið kom það seint fram í þinginu. Nú er því allt útlit fyrir að tveggja mánaða kvóti verði upp- veiddur fyrir vikulok á Norðvest- urlandi en svæðið nær allt frá Snæ- fellsnesi og að Skagafirði. Gífurleg keppni virðist vera á milli báta, sem hafa fengið leyfi til strandveiða, um að ná sem mestu úr þessum sameiginlega kvóta. Hver bátur hefur leyfi til að veiða að há- marki 800 kíló á dag af óslægðum fiski, fimm daga vikunnar en verð- ur svo að hætta þegar komið er upp í kvóta. Á föstudag höfðu 103 bátar á NV-svæðinu landað um 202 tonn- um af slægðum þorski. Augljóst er því að æsingurinn hefur verið mikill en Auðunn sagði nokkra báta hafa farið fram yfir 800 kg hámarkið. Hefðu menn gefið þær skýringar að þeir hefðu talið sig vera að veiða eftir sínu gamla kerfi. Það eigi hins vegar að vera búið að leiðrétta mest af þessu, sem hafi þá verið dregið af kvótanum en þeir sem brjóta gegn hámarks- magni geta átt von á sviptingu strandveiðileyfis, lögregluákæru og sektargreiðslum. Fari svo fram sem horfir, sjá trillusjómenn á Norðvesturlandi fram á rólegheit fram til 1. ágúst, þegar kapphlaupið um ágústkvót- ann hefst. sigrunrosa@mbl.is Í kappi um strandveiðina Morgunblaðið/Þorkell  Tveggja mánaða kvóti á Norðvesturlandi nánast veiddur á tveimur fyrstu vikunum  Nokkrir bátar yfir hámarkinu PLASTPRENT og Ríkiskaup undirrituðu á dögunum sam- komulag um kaup á burð- arpokum fyrir Vínbúðir ÁTVR. Það er ekkert smáræði sem þarf undir vínföngin því um er að ræða sex milljónir burðarpoka á næstu tveimur árum. „Plastprent bauð lægst í útboði Ríkiskaupa og er einkum ánægju- legt að öll framleiðsla plastpokanna fer fram hérlendis,“ segir á vef ÁTVR. sisi@mbl.is ÁTVR semur um kaup á sex millj- ón plastpokum ALLS fóru 193.928 farþegar um Flugstöð Leifs Eirískssonar á Kefla- víkurflugvelli í nýliðnum júnímán- uði. Sama mánuð í fyrra fóru 240.535 farþegar um flugstöðina og er samdráttur milli mánaðanna því 19,4%. Mikill samdráttur hefur orðið í fjölda flugfarþega á Keflavíkur- flugvelli allt frá í apríl í fyrra, en fram að því hafði verið stöðug fjölg- un. Mestur varð samdrátturinn í mars á þessu ári eða 36,9% miðað við sama mánuð árið 2008. sisi@mbl.is 19,4% samdráttur í fjölda flugfarþega HVAÐ er áætlað að margir Íslend- ingar hafi nú þegar flutt úr landi vegna afleiðinga bankahrunsins og hve margir útlendingar sem starfað hafa hér? Þetta er inntak fyrirspurnar sem Siv Friðleifsdóttir hefur lagt fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra á Alþingi. Siv spyr fleiri spurninga. M.a. hvað sé áætlað að margir Íslendingar snúi ekki heim frá útlöndum í ár og næstu þrjú ár- in vegna afleiðinga bankahrunsins og í hvaða atvinnugreinum þeir séu einkum. sisi@mbl.is Vill fá svör um brottflutning Orð Davíðs Oddssonar um stöðu Icesave- málsins hafa vakið mikla athygli. Davíð setti þar fram ákveðna harðlínuafstöðu og vill að málið fari fyrir íslenska dómstóla. Þá vísaði hann til óbirtra gagna í málinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.