Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009 VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009 48.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU! HEIMSFRUMSÝNING! ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA / AKUREYRI TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 10 THE HANGOVER kl. 8 - 10 12 / KEFLAVÍK TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 Powers. kl. 11 10 ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 8 L MANAGEMENT kl. 10 7 / SELFOSSI TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 Powers. kl. 11 10 YEAR ONE kl. 8 10 TERMINATOR SALVATION kl. 10 14 konu með tilheyrandi baráttu kynjanna. Ella á von á sér, Lúlli gerist fósturfaðir þriggja unga, sem reynast, þegar skurnin brotn- Þá er komið að þriðju Ís-aldar-myndinni, tímamót-um sem verða að hristaupp í myndabálkum ef þeir eiga að sjá fram á arðbært framhaldslíf. Á því er sjálfsagt ódrepandi áhugi hjá framleiðend- unum því forverarnir tveir hafa haft upp á annan milljarð dala, sem er að mestum hluti innkoma myndar 2, Ice Age: The Meltdown. Hún vakti ekki aðeins lukku í Bandaríkjunum heldur varð hún metaðsóknarmynd um allan heim. Það er heilmikið í gangi í Ísöld 3, Skratti litli hefur fundið vin- ar, vera ískyggilegar grameðlur. Það hitnar nefnilega heldur betur undir Ísaldarhjörðinni þegar hún rambar inn í forsögulegt tímabil þegar risaeðlur ráða ríkjum á Móður Jörð. Góð hugmynd til að teygja lop- ann og að ýmsu leyti vel heppnuð. Auk gamalla kunningja bætist við Móði hinn eineygði, sem hressir mikið upp á félagsskapinn, minnir um margt á sköpunarverk Ladda á hans blómatímum. Ekki þar fyr- ir, Laddi er sem fyrr í fullu fjöri og er bráðfyndinn í hlutverki Lúlla og Þröstur Leó er á svipuðu róli sem nýliðinn Móði. Á köflum lyftir mikill hraði, fyndnar uppákomur og tilsvör og vandvirknisleg teiknivinna Ísöld 3, vel upp fyrir meðallagið. Sjálfar eru fígúrurnar nægilega frumlegar og „öðruvísi“ (líkt og Shrek- bálkurinn), til að geta lifað sjálf- stæðu lífi í hörðum heimi teikni- myndanna, þar sem Pixar og Disn- ey láta lítinn bilbug á sér finna. Ísöld 3 er kjörin fjölskyldumynd sem á örugglega eftir að njóta vin- sælda hjá flestum aldursflokkum. Hér er lögð rík áhersla á gömul og góð gildi vináttu, samheldni og fjölskyldubanda og rómantíkin fær að njóta sín. Þó leynist engum að hjörðin er villuráfandi um þá ólíku heima sem er bakgrunnur sög- unnar. Hvað snertir umhverfi og umfjöllunarefni þurfa höfundarnir að reka hópinn nær samtímanum í næsta kafla, sem verður örugglega frumsýndur innann fárra ára. Af nógu er að taka. Hitnar undir hjörðinni Smárabíó, Háskólabíó, Laug- arásbíó, Sambíóin, Regnboginn, Borgarbíó Ice Age: Dawn of the Dinosaurs bbbnn Leikstjóri: Carlos Saldanha. Aðalleik- arar: Ray Romano (Manny), John Legui- zamo (Sid) – Þórhallur Sigurðsson (Lúlli), Denis Leary (Diego) – Ólafur Darri Ólafsson (Dýri) , Simon Pegg (Buck) – Þröstur Leó Gunnarsson (Móði), Queen Latifah (Ellie) – Elín (Þórunn Lárusdóttir), Seann William Scott (Crash) – Rúnar Freyr Gíslason (Hrafan), Josh Peck (Eddie) – Atli Rafn Sigurðarson (Eddi). 90 mín. Bandaríkin. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Fjölskyldumynd Ísöld 3 á örugglega eftir að njóta vinsælda hjá flestum ald- ursflokkum. Lögð er áhersla á gömul og góð gildi vináttu, samheldni, fjöl- skyldubönd og rómantík. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is HIN fjölmenna og glaðværa sveit <3 Svanhvít! skipaði sér á milli tveggja öfgarokkssveita á Músíktil- raununum 2007, og heillaði áhorf- endur með gáskafullri, indískotinni tónlist. Platan, sem kallast Partí á Íslandi, var klár síðasta sumar en ýmislegt hefur tafið útgáfuna. Daði Helgason, gítarleikari, útskýrir. „Við fengum upptökutíma í Stúdíó September en það fór á hausinn þannig að við enduðum á að taka plötuna upp í Hinu húsinu. Svo var hún á ís allan síðasta vetur á meðan meðlimir voru uppteknir við annað. Ég fór t.a..m. til útlanda og kreppan olli því að trymbillinn og pottaleikarinn neyddust til að elta vinnu út á land.“ Daði segir að sveitin hafi byrjað að þreifa fyrir sér að nýju í vor, og bauð Kimi Records til að gefa plöt- una út á undirmerkinu Brak. „Þannig að bandið er komið í gang á ný og við leysum fjarveru meðlimanna tveggja með því að setja lögin í nokkurs konar teknó- útsetningar,“ segir Daði. „Það er slatti af tónleikum framundan og þessu verður fylgt rækilega eftir.“ Daði neitar því að sveitin sé dottin úr einhverri hringekju eftir þessa fjarveru. „Sveitin er ferskari en nokkru sinni fyrr,“ segir hann ákveðinn. „Nýjar hugmyndir spretta nú fram í sífellu, ný lög eru að fæðast o.s.frv.“ <3 Svanhvít! byggist að mestu leyti á traustri vinaklíku úr MR, og segir Daði að þau hafi mikla unun af samvistum við hvert ann- að. „Enda gerum við þetta fyrst og fremst til að skemmta okkur. Og sá andi ratar venjulega á endanum til hlustandans.“ Þau eru svo indí  Hljómsveitin <3 Svanhvít! sendir frá sér breiðskífu  Búin að vera á leiðinni síðan sveitin hafnaði í öðru sæti Músík- tilrauna í hitteðfyrra Gáski <3 Svanhvít! er þéttskipuð sveit sem veit fátt betra en að skella sér í heita pottinn. www.myspace.com/minna- en3svanhvit Þegar stafrænar, tölvuunnar teiknimyndir (CGI animation), fóru að vekja áhuga almennings á 9. áratugnum, voru Pixar og Disney í algjörum fararbroddi. Það síðarnefnda hélt þó lengi í gerð þeirra hefðbundnu teikni- mynda sem höfðu skapað því nafn. Fljótlega stofnuðu tvö kvik- myndaver til viðbótar sínar eigin stafrænu teiknimyndadeildir, DreamWorks, og 20th Century Fox. Ísaldar-myndirnar eru fram- leiddar hjá því síðarnefnda, eru rósirnar í hnappagati Blue Sky, en svo nefnist deildin, sem er staðsett í Phoenix, Arizona. Auk Ice Age-myndanna sem fyrst litu dagsins ljós 2002, hefur fyr- irtækið m.a. gert Robots (2005), Horton Hears a Who! (2008) og síðar á árinu er von á metn- aðarfyllstu myndinni til þessa; Fantastic Mr. Fox, sem er rödduð af stórstjörnunum Meryl Streep, George Clooney, Bill Murray, Owen Wilson, Willem Dafoe, Anj- elicu Huston, ofl. Teiknimyndaverið Blue Sky

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.