Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 13
Daglegt líf 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is F rosti stóð sig með mikilli prýði í brúðkaupinu okkar og ég veit ekki betur en að hann sé fyrsti hundurinn á Ís- landi sem er hringaberi,“ segir Gísli Reynisson en í brúðkaupi hans og eiginkonunnar Helenu Maríu Árna- dóttur, sá hundurinn þeirra Frosti um að koma með hringana upp að alt- arinu þegar sú stóra stund rann upp að draga hringa á fingur. „Hringirnir voru í hvítri lítilli körfu sem hann bar í munninum og hann skilaði sínu hlutverki snurðulaust. Það kom mér ekkert á óvart að honum tækist þetta svona vel, en þegar ég viðraði þessa hugmynd fyrst við hundaþjálfarann Atla Þorsteinsson, þá hló hann bara. Hann hafði ekki mikla trú á að þetta væri hægt án þess að eitthvað færi úr skorðum. Hann vildi frekar að við lét- um festa lítinn púða með hringunum á hnakkann á honum.“ Mátti ekki taka alla athyglina Gísli þrjóskaðist við og Atli lét til- leiðast að prófa og það gekk eins og í sögu. „Það þurfti ekki nema þrjú skipti, þá var Frosti kominn með þetta á hreint. Hann var búinn að vera í hvolpaþjálfun hjá Atla þegar hann var ungur og líka á hinum ýmsu námskeiðum, þannig að hann var vanur að taka leiðbeiningu. Þjálfunin gekk fyrst og fremst út á að láta hann ekki sleppa körfunni og einnig að láta hann ganga við hæl, hann mátti ekki hlaupa til okkar eða fara út um allt,“ segir Gísli og bætir við að mágur hans Bjarki Týr Gylfason hafi gengið með Frosta inn ganginn en hundurinn hafi labbað einn og óstuddur til þeirra upp að altarinu og fært þeim hringana. „Hann sleppti ekki körfunni og stóð sig eins og hetja. Presturinn vildi ekki að hund- urinn tæki alla athyglina frá okkur brúðhjónunum, þannig að Bjarki fór með Frosta burt eftir að hann hafði skilað sínu. Við erum Atla þjálfara af- ar þakklát fyrir að vilja taka þátt í þessu með okkur.“ Gísli og Helena giftu sig í fyrra- sumar og fór athöfnin fram í safn- aðarheimilinu í Sandgerði. „Innkoma Frosta í athöfninni afstressaði mig. Að sjá hann koma inn svona sætan og flottan eins og hann var, létti svo mikið andrúmsloftið. Allir brostu út að eyrum og stemningin varð slakari. Presturinn einn vissi af þessu og fyr- ir vikið kom þetta þó nokkuð á óvart en vakti mikla lukku hjá gestum okk- ar. Sumir táruðust meira að segja,“ segir Helena. „Okkur fannst Frosti vera orðinn svo stór hluti af fjöl- skyldunni að við vildum endilega að hann tæki þátt í þessum merka degi í lífi okkar.“ Vantaði félagsskap í fæðingarorlofi Frosti var bara lítill hvolpur þegar þau fengu hann en það var skömmu eftir að Helena eignaðist Elísabetu Lenu, frumburð þeirra. „Þá vorum við nýflutt til Keflavíkur og ég var mikið ein með stelpuna. Mig vantaði félagsskap og ákvað því að fá mér hvolp. Gísli var ekkert sérstaklega hrifinn af því að við fengjum okkur hund en svo áttu þeir tveir eftir að ná mjög vel saman,“ segir Helena María og bætir við að Elísabet litla og Frosti hafi orðið sérlega góðir vinir. „Frosti reyndist alveg yndislegur hundur, bæði góður og skemmti- legur. Hann var mjög hrifinn af snjó og hann var líka mikill sundhundur. Hann fór með okkur hvert sem við fórum, líka í ferðalög út á land.“ Mikil sorg og söknuður Gísli hafði Frosta alltaf með sér á næturvaktir í vinnunni og aðeins viku eftir brúðkaupið lenti hann í þeim ósköpum að keyra óvart sjálfur yfir Frosta á einni slíkri vakt. Fyrst leit út fyrir að Frosti hefði ekki slasast mik- ið. „Seinna kom í ljós að bakið hafði farið illa og við sendum hann í aðgerð til að reyna að bjarga honum. En það hafði myndast drep af því hann var ekki meðhöndlaður rétt í byrjun. Hann lifði aðeins í viku eftir aðgerð- ina.“ Mikil sorg ríkti á heimilinu eftir dauða Frosta og Elísabet litla átti sérstaklega erfitt með að komast yfir missinn, hana dreymdi Frosta á nótt- unni og hún vaknaði upp vansæl. Hún lítur enn þann dag í dag til himins og segir: „Frosti er á himnum og fylgist með okkur“. „Við fengum okkur því tvær kisur til að hjálpa henni að jafna sig og nú hafa fæðst fjórir kettlingar þannig að það er ekki rúm fyrir nýjan hund á heimilinu, þó mig langi mikið til þess,“ segir Helena sem enn sakn- ar Frosta sárt. Morgunblaðið/Golli Litla fjölskyldan Þau eru mikið fyrir dýr og eiga nú tvær fullorðnar kisur og fjóra kettlinga og ætla að halda þeim öllum hjá sér. Gísli, Una Rós, Helena og Elísabet Lena sakna enn hundsins Frosta sárt. Sætur Frosti var óneitanlega fagur hundur, labrador og að fjórðungi ís- lenskur. Hér nýtur hann sín á góðum degi úti í náttúrunni. Frosti færði þeim hringana Ekki er það á hverjum degi sem hundur er hringaberi í brúðkaupi. Ferfætlingurinn Frosti skilaði slíku hlutverki með sóma þegar eigendur hans gengu í það heilaga. Stóð sig vel Frosti kemur með hringana upp að altari til Helenu og Gísla. Séra Björn Sveinn Björnsson fylgist brosmildur með.  Hundaþjálfarinn hló þegar hugmyndin var viðruð við hann fyrst en allt gekk upp að lokum  Viku eftir brúðkaup slasaðist hringaberinn og lifði aðeins í nokkrar vikur eftir það Um tuttugu Heklugos hafa áttsér stað frá landnámi ogvaldið bændum miklum bú- sifjum. Að mati jarðfræðinga getur Hekla nú gosið hvenær sem er og því þykir rétt að minna á áhrif eld- gosa á skepnur. Gosefni sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og bor- ist ofan í skepnur. Öskukornin eru oddhvöss eins og örsmá glerbrot. Þau særa augu, öndunarfæri og meltingarveg. Þau geta valdið nið- urgangi, tannsliti og fótsæri. Flúor loðir við yfirborð kornanna, þeim mun meiri sem askan er fínni. Því er fín aska langt frá eldstöð síst minni hætta skepnum en aska sem fellur nær. Flúor bindur kalsíum í torleyst sambönd og stuðlar þannig að kalk- skorti. Bráð eitrun getur valdið doða í ám og kúm, og klumsi í hryssum, einkum seint á meðgöngu og um burð eða köstun. Áhrif langvinnrar eitrunar er gaddur á jöxlum, sem gerir skepnunum erfitt að bíta, tyggja og jórtra, og beinmyndanir á fótleggjum, sem valda helti. Önnur eitrunarhætta, sem við má búast í tengslum við eldgos, er vegna koltví- sýrings í gosgufum. Hann sest í lægðir og getur valdið köfnun. Hættan er breytileg eftir árstíð, dýrategund, aldri, magni flúors og annarra efna í öskunni og hvert ask- an berst. Hindra skal ef unnt er öskufall á skepnurnar og í fóður þeirra og sjá til þess að þær hafi að- gang að hreinu drykkjarvatni. Ef aska fellur á óslegið tún á heyskap- artíma er vissara að bíða með slátt þar til rignt hefur, sama gildir um beitiland. Flúorinn þynnist fljótt og eitrunarhætta dvínar, þegar rignir. Falli flúormenguð aska á hey þarf að meta magn flúors, sem gæti bor- ist í skepnurnar og taka ákvörðun um nýtingu heysins á grundvelli þess. Þegar eldgos verður mun Mat- vælastofnun fylgjast grannt með gosinu með hliðsjón af veðurspá til að meta hvar búfé er í hættu og vinna með bændum og opinberum aðilum að viðbrögðum. Þar sem öskufall er mikið þarf að hýsa búféð og tryggja því aðgang að hreinu drykkjarvatni. Nánari upplýsingar um áhrif eld- gosa á dýr er að finna í grein eftir Sigurð Sigurðarson dýralækni, sem er að finna á heimasíðu Matvæla- stofnunar: www.mast.is. Áhrif eldgosa á dýr Gýs Hekla brátt? Gosefni sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og borist ofan í skepnur. Heilbrigði og velferð dýra Auður L. Arnþórsdóttir, sóttvarna- dýralæknir hjá Matvælastofnun. Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.