Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 46 31 1 05 /0 9 • Allt dreifikerfi rafmagnsveitu er neðanjarðar og er því ekki sjónmengun eins og víða erlendis. www.or.is Sögur og sagnir í Elliðaárdal Gengið ofan Árbæjarstíflu. Þriðjudags- kvöldið 7. júlí verður farin göngu- og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Stefáns Pálssonar s a g n f r æ ð i n g s . Dalurinn á sér merka sögu, allt frá komu Ketilbjarnar gamla landnámsmannsins þangað. Gengið verður um og sagðar sögur. Mæting er kl. 19.30 við Minjasafnið í Elliðaárdal. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is STÓR hluti íbúa í þorpinu á Reyk- hólum starfar í Þörungaverksmiðj- unni. Afkoma fyrirtækisins skiptir samfélagið miklu máli og því er gott hljóð í fólki á Reykhólum um þessar mundir. Hagnaður varð af rekstrinum í fyrra, framundan er endurnýjun á Karlseynni, skipi fyr- irtækisins, og í mörg ár hefur verið rætt um að stækka verksmiðjuna. Á næstu árum gæti húsnæðis- skortur orðið vandamál á Reykhól- um. Atli Georg Árnason kom til starfa sem framkvæmdastjóri hjá Þörungaverksmiðjunni í fyrrahaust. Hann er ánægður með stöðu fyr- irtækisins og segir margt hafa skapað góðan árangur á síðasta ári. Atli nefnir framleiðslu- og sölu- aukningu, eftirspurn eftir fram- leiðslunni hafi verið mikil og staða krónunnar hagstæð fyrir útflutn- ingsgreinar, en yfir 95% framleiðsl- unnar eru flutt út. Góður hagnaður hafi verið af 360 milljóna króna veltu. „Sólin skín núna hjá okkur á Reykhólum, en við erum meðvituð um að staðan getur breyst í einu vetfangi. Ég segi því gjarnan að við séum að undirbúa okkur fyrir regn- tímabilið,“ segir Atli. Tilboða leitað hjá tólf fyrirtækjum Karlsey, skip Þörungaverksmiðj- unnar, er komið til ára sinna, smíð- að árið 1967. Unnið er að endurnýj- un á skipinu og hefur verið óskað tilboða hjá tólf fyrirtækjum, ýmist í nýsmíði eða eldra skip, sem þó er vandkvæðum bundið vegna þess hve sérhæfð starfsemin er. End- urnýjunin er einhver mesta fjár- festing sem fyrirtækið hefur staðið frammi fyrir, skiptir hundruðum milljóna króna. „Þetta verður erfitt, sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum og það er enginn ónæmur fyrir því sem er að gerast í kringum okkur,“ segir Atli. Með endurnýjun skipakostsins liggur beint við að auka afköst í landi. Í nokkur ár hefur verið í at- hugun að stækka verksmiðjuna á Reykhólum, en eigendur fyrirtæk- isins hafa ekki tekið ákvörðun í þeim efnum. „Hér á Reykhólum er aðstaðan öll hin besta til þessarar starfsemi,“ segir Atli. „Við höfum aðgang að gríðarlegri náttúruauðlind. Ekki bara frá sjónum þar sem þarinn og þangið eru, heldur líka úr jörðu þangað sem við sækjum heita vatn- ið. Það má segja að Þörungaverk- smiðjan sé skólabókardæmi um þann auð sem við Íslendingar eig- um og þurfum að læra að nýta.“ Um þessar mundir er unnið að þangskurði á nokkrum stöðum í Breiðafirðinum, en eftir skurð eru svæðin hvíld í 3-5 ár til að tryggja sjálfbæra nýtingu. Fyrirtækið er með lífræna vottun hérlendis og í Bandaríkjunum. Fólk leitar nýrra tækifæra á landsbyggðinni Í verksmiðjunni á Reykhólum og um borð í Karlseynni starfa 32 manns, að meðtöldum verktökum sem leigja þangsláttuprammana. Síðan bætast við störf hjá verktök- um. Í þorpinu á Reykhólum búa um 120 manns og í Reykhólahreppi, þessu víðfeðma sveitarfélagi sem nær frá Gilsfirði vestur í Kjálka- fjörð, auk margra Breiðafjarð- areyja, búa um 240 manns. „Við gerum okkur grein fyrir þeirri gífurlegu samfélagslegu ábyrgð sem verksmiðjan hefur. Fyrirtækið er langstærsti vinnu- staðurinn hér, auk dvalarheimilis og skólans. Ef framtíðaráformin ganga eftir, það er að hingað komi nýtt skip og farið verður í hóflega stækkun verksmiðjunnar, þá bæt- ast við 12-15 stöðugildi hjá fyr- irtækinu. Slík fjölgun er náttúrlega sprenging fyrir þetta svæði. Það er mikil ásókn meðal yngra fólks í að komast af höfuðborgar- svæðinu og finna ný tækifæri úti á landi. Víða er staðan sú að ekki er húsnæði úti á landi og ég tel að slíkt gæti orðið Akkilesarhæll hér á Reykhólum,“ segir Atli. Arnkötludalur opnar möguleika Hann bindur miklar vonir við nýjan veg um Arnkötludal, sem opnaður verður í haust. Þá verður aðeins 40 mínútna akstur frá Reyk- hólum til Hólmavíkur í stað þriggja klukkustunda eins og nú er. Leiðin til Ísafjarðar styttist jafnframt gríðarlega. Hann sér fyrir sér að með þessari nánd við Strandirnar opnist ýmsir möguleikar á sam- vinnu og telur að þjónustustig muni hækka. Rífandi gangur á Reykhólum  Hagnaður af rekstri Þörungaverksmiðjunnar í fyrra  Tilboða leitað í nýja Karlsey  Hugsanlega ráðist í stækkun verksmiðjunnar  12-15 ný störf væru sprenging fyrir samfélagið á Reykhólum Auðlindir Reykhólar eru ríkir af náttúruauðlindum. Heitt vatn er innan seilingar og margvísleg verðmæti í sjónum í Breiðafirði. ÞÖRUNGAVERKSMIÐJAN hf. var stofnuð á Reykhólum árið 1986, forveri fyrirtækis- ins var Þörungavinnslan sem stofnuð var 1975. Fyrirtækið framleiðir mjöl úr kló- þangi og hrossaþara sem sótt er til vinnslu víða úr Breiðafirði. Núverandi eigendur Þörungaverksmiðj- unnar h.f. eru bandaríska fyrirtækið FMC BioPolymer sem á 71,6% hlutafjár í verk- smiðjunni. Byggðastofnun á 27,7% hlut og aðrir hluthafar eru um 70. Verksmiðjan starfar náið með FMC BioPolymer í Skot- landi og Noregi. FMC BioPolymer er jafn- framt stærsti kaupandi á afurðum verk- smiðjunnar. Notað í margs konar iðnað Klóþang er skorið við sjávarmál og er notast við sérstaka sláttupramma sem eru í eigu verksmiðjunnar. Þangsláttuvertíð hefst á vorin og stendur fram á haust, slátt- urinn er háður tíðarfari og sjávarföllum. Á vetrarmánuðum er framleitt mjöl úr hrossaþara og er hann tekinn með þar til gerðum plóg á skipi verksmiðjunnar, m/b Karlsey. Meira en 95% af framleiðslunni eru til út- flutnings og helstu markaðir eru Skotland, Bandaríkin, Bretland, Noregur, Holland, Þýskaland, Frakkland, Japan og Taívan. Mjölið sem unnið er hjá verksmiðjunni hefur mjög góða bindieiginleika vegna mik- ils innihalds svokallaðra gúmmíefna. Mjölið er að miklu leyti framleitt fyrir fyrirtæki sem vinna efnið enn frekar til að einangra þessi svokölluðu gúmmíefni til notkunar í allskyns iðnaði, s.s. matvæla-, snyrtivöru-, lyfja- og textíliðnaði svo dæmi séu tekin. Sumarvinna Klóþangið er skorið við sjávarmál og er notast við sérstaka sláttupramma sem eru í eigu verksmiðjunnar. Klóþang og hrossaþari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.