Morgunblaðið - 06.07.2009, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.07.2009, Qupperneq 16
16 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Landfestar ehf. óska eftir tilboðum í 2. hæð hússins Suðurlandsbraut 22. Hæð- in ásamt bakhúsi er um 650 fermetrar og er skrifstofurými með vönduðum innréttingum. Hæðin er laus til afhendingar. Tilboðum skal skila fyrir kl. 16:00 þann 17. Júlí nk. á skrifstofu félagsins, Suðurlandsbraut 22, 3. hæð. Landfestar ehf. áskilja sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar eru veittar í símum 856 1414 og 856 1404. Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eigu Nýja Kaupþings banka. Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til umráða um sextíuþúsund fermetra af góðu húsnæði. Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri fyrirtækjum landsins Landfestar ehf. • Sími 422 1400 • www.landfestar.is TIL SÖLU - Suðurlandsbraut 22 - 2. hæð AÐ UNDAN- FÖRNU hafa ýmsir íslenskir lögspekingar skrifað greinar og haldið því fram að al- ger óþarfi hafi verið fyrir íslenska ríkið að taka á sig ábyrgðir vegna íslenskra banka erlendis. Þess í stað hefði Ísland átt að draga yfirvöld Hol- lands og Bretlands, mögulega ásamt æðstu stjórnendum ESB, fyrir rétt og fá þau dæmd til ábyrgðar fyrir gallaða löggjöf, sem því miður hafi bitnað á þeim þegn- um þeirra sem hófu viðskipti við ís- lensku bankana. Sjálfsagt gengi þessi málflutningur upp ef íslensk stjórnvöld hefðu verið sjálfum sér samkvæm allan tímann frá einka- væðingu bankanna og staðfastlega haldið því fram að þeir hafi síðan verið einkabankar eingöngu á ábyrgð eigenda sinna og því farið á hausinn eins og hver önnur einka- fyrirtæki. Kröfuhafar, innlendir og erlendir, geti ekkert tilkall gert nema í þær eignir sem í þrotabúum þeirra finnist, og engar kröfur um- fram það til íslenska ríkisins. Í þessari stuttu grein verða færð rök að því að því miður hafi ekki verið því að heilsa að íslensk stjórnvöld hafi verið sjálfum sér samkvæm í þessum efnum. Icesave-netreikn- ingum Landsbankans í Bretlandi var hrundið af stokkunum í októ- ber 2006 með mikilli auglýsingaherferð, sem bar skjótan ár- angur. Sú leið var valin að hafa reikninga þessa í útibúum en ekki í dótturfyrirtæk- inu, Heritable Bank, að því er virðist vegna þess að með því móti þurfti samkvæmt ESB- reglum ekki að leggja fram trygg- ingar fyrir innstæðum umfram 20.887 evrur á hvern reikning og engar hömlur voru á fjárstreymi frá útibúi til aðalbanka. Að baki þess- um 20.887 evrum stóð hins vegar ekki annað en Tryggingasjóður inn- stæðueigenda, sem fé skyldi safnast í smám saman með 1% álagi á sparifjárinnstæður. Ríkissjóði við- komandi lands bar engin skylda til að ábyrgjast að þessi sjóður gæti staðið við skuldbindingar, ef illa færi. Þessi sjóður náði aldrei að verða digrari en rúmir 19 milljarðar króna meðan Icesave-reikningarnir í Bretlandi og síðar Hollandi uxu upp í 6-700 milljarða króna. Í Bretlandi fóru menn að hafa vaxandi áhyggjur af Icesave þegar kom fram á árið 2008. Þá var efna- hagsreikningur íslenskra fjármála- fyrirtækja ellefu sinnum stærri en landsframleiðsla á Íslandi. Í mars hóf breska fjármálaeftirlitið við- ræður við Landsbankann um færslu Icesave-reikninganna úr útibúi Landsbankans í London í dótt- urbankann, Heritable. Reikning- arnir yrðu þá á ábyrgð breska rík- isins. Því miður fylgdu Bretar þessu ekki eftir af nægilegri hörku og Landsbankinn komst upp með að sinna þessu ekki. Viðbrögð Landsbankans voru þau, að draga úr Icesave í Bretlandi en færa sig yfir sundið til Hollands og opna þar Icesave- reikninga í lok maí 2008 og leggja jafnframt drög að markaðssetningu sams konar reikninga í ellefu öðrum löndum. Hollenska fjármálaeftirlitið (DNB) tregðast lengi vel við að veita starfsleyfi. En strax 3. júlí fer það fram á viðræður við íslenska fjár- málaeftirlitið (FME) vegna áhættu- sækni íslensku bankanna,sem það telur sig hafa heimildir um að séu þeir áhættusæknustu í heimi, og þann 14. ágúst kemur hollensk sendinefnd til Íslands til viðræðna við fjármálaeftirlitið. Þar er þeim sýnd skýrsla um að íslenska hag- kerfið eigi ekki í neinum erf- iðleikum og að engin sjáanleg vand- ræði fylgi örum vexti bankanna. Daginn eftir sendir FME tölvupóst til DNB þar sem lýst er yfir undrun yfir því að vilji sé til að stöðva inn- lánatöku Landsbankans í Hollandi. Engin ástæða sé til þess enda sé staða Landsbankans heilbrigð. Hagfræðingarnir Gylfi Zoëga og Jón Daníelsson nefna þetta sem dæmi um að of náið og of „kósí“ samband hafi myndast milli Fjár- málaeftirlitsins og þeirra sem það átti að hafa eftirlit með. Þann 27. ágúst 2008 samþykkir Landsbank- inn í viðræðum við hollenska seðla- bankastjórann, Nout Wellink, að flytja Icesave-reikningana inn í dótturfélag og þar með undir hol- lenska innstæðutryggingakerfið. Hefði þeirri ákvörðun verið fram- fylgt hefði Ísland ekki borið neina ábyrgð á Icesave-innstæðunum í Hollandi. Á meðan þessu vatt fram í Hol- landi kepptust íslenskir frammá- menn við að eyða áhyggjum Breta af Icesave-reikningunum með því að gefa í skyn að íslenska ríkið ábyrgð- ist þá – a.m.k. eins og alþjóðlegar skuldbindingar krefðust. Þann 14. ágúst lýsir viðskiptaráðuneytið ís- lenska því svo yfir í tölvupósti til breska fjármálaráðuneytisins, að „það væri alveg skýrt að [Trygging- arsjóði innstæðueigenda] ber að greiða út kröfur allt að 20.887 evr- um og því mundi stjórnin ávallt leita eftir láni til þess að sjóðurinn greiði út það lágmark“. Með þessari yfirlýsingu er kirfilega búið svo um hnútana að íslensk stjórnvöld ábyrgist að nægilegt fé verði í Tryggingasjóði innstæðueigenda til að fullnægja evróputilskipuninni. Í framhaldi af þessu á breski fjár- málaráðherrann, Alistair Darling, svo fund með íslenska við- skiptaráðherranum, Björgvin G. Sigurðssyni, í Lundúnum þann 2. september 2008. En þrátt fyrir yf- irlýsinguna frá 14. ágúst er Darling órótt og „óskin um færslu Icesave í dótturfélag var orðin að hreinni kröfu.“ Og enn er áhyggjum og ósk- um Breta í engu sinnt. Þegar Icesave er sett í þetta sam- hengi eftir tiltækum heimildum, verður ekki séð að við getum sett okkur á háan hest gagnvart Bretum og Hollendingum og ESB. Lands- bankinn og íslensk stjórnvöld fengu hvert tækifærið af öðru til að víkja þessum eitraða Icesave-kaleik frá sér, en hummuðu það fram af sér og frestuðu aðgerðum þar til spila- borgin hrundi. Setning neyðarlag- anna gerði svo líklega útslagið á að ábyrgðin féll að fullu á ríkissjóð. Því verða að teljast hverfandi lík- indi á því að íslenska ríkið gæti eftir framangreinda frammistöðu sína unnið mál vegna Icesave-reikning- anna gegn Bretum og Hollend- ingum fyrir alþjóðagerðardómi eða Alþjóðadómstólnum í Haag. Efni greinarinnar er að verulegu leyti byggt á bók Guðna Th. Jóhannessonar, Hrunið, svo og grein Þórðar Snæs Júl- íussonar, mbl. 21. júní 2009. Meira: mbl.is/greinar Icesave Eftir Ólaf Hannibalsson »Komu Landsbank- inn, Fjármálaeft- irlitið og önnur íslensk stjórnvöld í veg fyrir að Icesave-reikningarnir færðust á ábyrgð breskra og hollenskra yfirvalda? Ólafur Hannibalsson Höfundur er blaðamaður. BRYNDÍS Schram, fyrrv. sendiherrafrú, hefur við nokkur til- felli tjáð sig um skóla- kerfið og kenn- aramenntun í Finnlandi en hún telur hvort tveggja til fyr- irmyndar. Bryndís virðist álíta að sá ár- angur sem finnskir nemendur hafa náð í alþjóðlegum prófum sé að miklu leyti þeirri staðreynd að þakka að kennarar þeirra séu með svo miklu meiri menntun en íslenskir kenn- arar (sbr. Mbl. 29.6. 2009, bls.15). Mismunandi leiðir í kenn- aramenntun Í Finnlandi skiptist kennara- menntun frá fornu fari í tvær brautir: bekkjarkennaramenntun og menntun í fagkennslu. Að- alreglan var sú að þeir kennarar sem útskrifuðust úr Kennarahá- skóla (nú menntunarfræðadeild há- skólans) máttu ekki kenna ofar en í ellefu ára bekk. Eftir það tók við fagkennari, sem hafði háskólapróf í sínu fagi auk þess að hafa lært kennslufræði með tilheyrandi æf- ingakennslu. Hér á landi aftur á móti hafa þeir sem útskrifast úr Kennaraháskóla Íslands haft rétt- indi til að kenna á öllum stigum grunnskólans. Því hefur þekking einstakra fagkennara verið mjög mismunandi. Aukamenntun vegna atvinnu- leysis Kennaramenntun hefur tekið breytingum bæði hér á landi svo og í Finnlandi. Þar sem áður fyrr nægði lægra háskólapróf er nú krafist meistaraprófs. Ef finnskur fagkennari hefur ekki tekið kennslufræði sem hluta af meist- araprófi sínu þarf hann að bæta við sig 35 einingum í þessum fræðum. Nemar úr bekkjarkennarabraut öðlast aftur á móti kennsluréttindi strax að námi loknu. Mikil sam- keppni um lausar stöður hefur svo leitt til þess að margir hafa bætt við sig námi og öðlast réttindi bæði sem bekkjarkennarar og fagkennarar. Meira er nám en bókalærdómurinn Þau alþjóðlegu próf sem yfirleitt er vitnað í þegar árangur nem- enda er borinn saman eru læsi og stærð- fræði. En börn geta lært ýmislegt sem að gagni kemur og ekki er mælt á prófum. Íslensku nemendurnir sýna almennt mikið frumkvæði. Þeir læra að treysta sjálfum sér og eigin færni. Þessir eiginleikar geta fleytt manni betur áfram en ein- tómur bókalærdómur og má ekki vanmeta. Aðrar áherslur í ástundun En það er fleira sem hangir á spýtunni: Hér á landi hefur viðhorf til náms verið allt annað en í Finn- landi. Finnskir foreldrar leggja al- mennt mikla áherslu á að börnin stundi námið vel og menntist. Ekki síður er lögð áhersla á góða ástundun því að nemendur fá sér einkunn í virkni og vinnusemi og telst þá snyrtilegur frágangur verkefna til þeirrar einkunnar. Auk þess er gefin einkunn í hegðun. Börnin sjálf vita að ætlast er til að þau standi sig. Hér á landi hefur þróunin aftur á móti orðið sú að með lengingu skólaársins þykir mörgum for- eldrum sjálfsagt og eðlilegt að taka börnin úr skóla og fara með þau í frí á miðju skólaári. Að mínu áliti sýnir þetta glöggt hve lítið for- eldrum finnst varið í skólanámið. Það eykur varla metnað barna þeirra og hlýtur að draga úr virð- ingu nemenda fyrir skóla og grafa undan starfi kennara. Sanngjörn og upplýst umræða nauðsynleg Ekki er hægt að skýra frá öllum hliðum málsins í stuttri blaðagrein en nauðsynlegt er að upplýst um- ræða fari fram svo að einnig leik- menn skilji um hvað er verið að ræða. Sjálf hef ég til dæmis furðað mig á því að aldrei hefur verið nefnt hversu miklu víðtækara ís- lenska stúdentsprófið er en sam- svarandi próf annars staðar. Ósanngjarrnt er því að bera ein- vörðungu saman lengd kenn- aranámsins án þess að taka tillit til undanfara þess. Almennt séð eru íslenskir stúd- entar miklu þroskaðri og búa við meiri færni en nýstúdentar t.d. í Finnlandi. Út frá finnska módelinu getur maður því spurt hvort skyn- samlegra hefði verið að breyta áherslum í kennaranáminu frekar en lengja það um tvö ár. Fleiri ár, meiri kostnaður Nú hefur verið tekin ákvörðun um að lengja kennaranámið í fimm ár hér á landi. Í Finnlandi fá nem- endur námsstyrk sem ríkið borgar allan námstímann og því geta þeir útskrifast skuldlausir. Hér á landi eru þeir með skuldabagga náms- lána á sér. – Eru stjórnvöld tilbúin að hækka laun kennara um það sem samsvarar kostnaði þessara tveggja viðbótarára? Íslenskir grunnskólakennarar starfa undir miklu álagi. Þeir gera sitt besta við þær aðstæður sem hafa skapast. Ekki er nóg að benda á kennaramenntun einvörðungu. Allt viðhorf til skólastarfs og menntunar þarf að breytast ef ís- lenskir nemendur eiga að ná betri árangri í þeim alþjóðlegu prófum sem hér var vitnað í. Um ágæti skólanna og mikilvægi menntunar Eftir Marjöttu Ísberg » Þróunin hefur orðið sú að með lengingu skólaársins þykir mörg- um foreldrum sjálfsagt að taka börnin úr skóla og fara með þau í frí á miðju skólaári. Marjatta Ísberg Höfundur hefur kennt á grunn- og framhaldsskólastigi í Finnlandi og á Íslandi og hefur kennsluréttindi í báðum löndum. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefn- um mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráð- stefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvu- pósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.