Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 23

Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 23
Velvakandi 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞETTA VAR FRÁBÆR HUGMYND, TONTO! ÞAÐ Á ENGINN EFTIR AÐ ÞEKKJA OKKUR Í ÞESSUM DULARGERVUM ÚGH! MÉR FINNST FRÁBÆRT HVAÐ ÞÚ OG GRETTIR NÁIÐ VEL SAMAN VIÐ ERUM NÆSTUM EINS OG STOLTIR FORELDRAR... FYRIR UTAN ÞAÐ AÐ BARNIÐ ER FEITT, APPELSÍNUGULT OG LOÐIÐ BARNIÐ ER SVANGT LÍFIÐ MITT ER LITLAUST ALLT SEM ÉG SÉ HEF ÉG SÉÐ ÁÐUR ÉG VERÐ AÐ GERA EITT- HVAÐ NÝTT BÍLAR KEYRA Í ÞAÐ MINNSTA MUN HÆGAR UM GÖTUNA NÚORÐIÐ MÉR SÝNIST SNATI VILJA HLUTA AF KJÚKLINGNUM ÞÍNUM OG HANN ER AUGLJÓSLEGA TILBÚINN AÐ BERJAST Æ, NEI... HVAÐ ÆTLAR MAMMA EIGINLEGA AÐ ÆFA MAGADANS LENGI? ÖRUGGLEGA MJÖG LENGI, MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ HVAÐ HÚN SKEMMTIR SÉR VEL TAKK FYRIR AÐ LOSA MIG VIÐ SIMON KRANDIS, ELSKAN MÍN VAR ÁNÆGJAN MUNDU AÐ ÞÚ GETUR ALLTAF NOTAÐ ARMBANDIÐ EF ÞÚ LENDIR Í VANDRÆÐUM LÁTUM OKKUR SJÁ... ÉG ÝTI BARA Á HJARTAÐ OG... GET ÉG AÐSTOÐAÐ? MÉR SÝNIST ÞAÐ VIRKA JARÐHITASVÆÐIÐ við Námafjall er eitt fjölsóttasta hverasvæði á Ís- landi, enda eitt stórkostlegasta háhitasvæði landsins. Ljósmyndari brá sér norður í Mýrdalssveit og skoðaði hverina og veðrið var dásamlegt. Morgunblaðið/Heiddi Við Námafjall Lélegt málfar í Morgunblaðinu SÚ VAR tíðin að Morgunblaðið var metnaðarfullur frétta- miðill sem gaman var að lesa. Málfar var yf- irleitt í góðu lagi en í seinni tið hefur mál- fari blaðamanna hrak- að stórlega. Nú er svo komið að enginn ein- asti dagur líður án þess að ég reki mig á villur af ýmsu tagi á síðum blaðsins. Slíkt er, að mínu mati, al- gerlega óviðunandi. Það er ótrúlegt að á tímum at- vinnuleysis hjá okkar menntaþjóð skuli ekki vera hægt að fá blaða- menn sem kunna að skrifa ís- lensku. Hvað með alla íslensku- fræðingana sem HÍ hefur útskrifað undanfarin ár? Er ekki hægt að fá þá í vinnu hjá Morg- unblaðinu? Nefni hér fáein dæmi um málvillur í blaðinu: Á bls. 4 í fylgiblaðinu Land&Saga frá 3. júlí stendur „… þeim sem langar í styrju …“, einnig er í sama fylgi- blaði margsinnis talað um hótel sem eru sögð staðsett „í Hallorms- stað.“ Um daginn var talað um „suður- hluta vestanverðs Norðurlands“ í Morgunblaðinu. Hvers lags orð- skrípi eru þetta eiginlega? Var ekki hægt að nefna landsvæðið sínu rétta nafni? Í sama tölublaði var mynd af svartskjóttum hesti sem blaðamaður kallaði „svart- hvítan hest.“ Kvikmyndir og ljós- myndir geta verið svarthvítar en ekki hestar. Svona mætti lengi telja og hef ég talað við marga sem eru sammála mér um þetta efni. Ég skora hér með á ritstjórn Morgunblaðsins að ráða hæfa blaðamenn og reka hina. Blaðið okkar á að vera til fyrir- myndar en ekki rusl- blað. Góðar stundir. Ingunn Sigmarsdóttir. Er aðstoð nauð- synleg? ÉG VAR á gangi framhjá Eskihlíð á dögunum og fór framhjá húsnæði Fjölskylduhjálpar. Líklegast hefur út- hlutun verið í gangi. Það var svolítið af fólki fyrir utan að bíða og flestir reykjandi. Á þeim tíma sem tók mig að ganga fram hjá kveiktu flestir sér í fleiri en einni sígar- ettu. Mér er spurn, ef þetta fólk er að bíða eftir matarhjálp væri ekki hægt að láta á móti sér að kaupa sígarettur og kaupa mat í staðinn? Það er ábyggilega hægt að fá margt fyrir því sem samsvarar kostnaði sígarettupakka. Annað sem sló mig var að hinum megin við húsið stóð starfsfólk og reykti. Finnst fólki það réttlætan- legt að starfsfólk sé reykjandi og umgangist matvörur eftir það? Mér finnst það ekki alveg passa. Óánægður borgari. Enn af teiknurum MÉR finnst Halldór fær teiknari og skemmtilegur og harma þá ádeilu sem hann fær frá aðdáend- um Sigmunds. Annar aðdáandi Halldórs.         Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Félagsstarf fellur niður vegna sumarlokunar. Hádegismatur af- greiddur kl. 12-13. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa- vinna kl. 9-16, félagsvist kl. 13.30, pútt- völlur opinn. Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna, fótaað- gerð, kaffi/dagblöð, matur, kaffi. Dalbraut 18-20 | Brids kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur með farþegum í Vestfjarðaferð á morgun kl. 11 í Stangarhyl 4. Laust sæti fyrir einn karlmann. Uppl. í síma 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Vegna sum- arleyfa starfsmanna fellur öll starfsemi niður til og með 31. júlí. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinnustofa opin, ganga kl. 10, matur kl. 11.40, félagsvist kl. 20.30, púttvöllurinn opinn. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Myndlistarsýning Höllu Har. í Jónshúsi er opin kl. 10-16. Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin er op- in kl. 9-14, matur kl. 12. Hæðargarður 31 | Listasmiðja, morg- unfjas, Stefánsganga, bankaþjónusta, tölvur, púttvöllur, gáfumannakaffi, hug- myndabanki o.fl. Félagsvist kl. 13.30 alla mánudaga. Málverkasýning Erlu og Stef- áns. Ljóðabók skapandi skrifa til sölu. Þeir, sem vilja starfa á eigin vegum, vel- komnir. S. 411-2790. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund, spjall og æfingar kl. 10.30, hand- verks- og bókastofa opin kl. 11.30, kaffi- veitingar kl. 14.30, söng- og samveru- stund kl. 15. Fótaaðgerðast. opin, s. 552-7522. Vesturgata 7 | Blöðin og kaffi í setu- stofu kl. 9, handavinna kl. 9-15.30, leik- fimi kl. 11 (júní – ágúst). Matur kl. 11.30 og kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir og hár- greiðsla kl. 9-16. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morg- unstund kl.9.30, handavinnustofan opin, spilað, stóladans. Fótaaðgerðastofan op- in alla daga. Uppl. í síma 411-9450.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.