Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 26

Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum HHH “... athyglisvert og vandað verk” - Ó. H. T., Rás 2 MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! HHH „Þessi spræka og fjölskylduvæna bandaríska teikni- mynd er sú þriðja í röðinni og sú besta þeirra“ - Ó.H.T. , Rás 2 „Þetta er góð skemmtun með góð skilaboð og hentar ungum sem öldnum” - Ó.H. T., Rás 2 OG NÚNA LÍKA Í 3-D HEIMSFRUMSÝNING! 750kr. HEIMSFRUMSÝNING! MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS! 750kr. ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar! 750kr. 7 50kr. 750kr. 750kr. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó SÝND Í SMÁRABÍÓI ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓSÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 6 - 8 LEYFÐ Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Year One kl. 10 B.i. 7 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Ghosts of girlfriends past kl. 8 - 10:15 LEYFÐ Tyson kl. 6 - 8 - 10 B.i.12 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 6 LEYFÐ Year One kl. 9 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 6 B.i.14 ára Ice Age (enskt tal/ísl.texti) kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Ghosts of girlfriends past kl. 5:45 - 10:45 B.i. 7 ára Lesbian Vampire Killers kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Night at the museum 2 kl. 5:30 LEYFÐ Year One kl. 5:45 B.i. 7 ára Terminator: Salvation kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára The Hurt Locker kl. 8 MASTERCARD forsýning B.i. 16 ára RÍFLEGA 1,6 milljónir manna hafa skráð sig og sótt um að fá frían miða á minningarathöfn um Michael Jackson í Staples Center í Los Ang- eles á þriðjudaginn. 11.000 miðar eru í boði og tilkynnt verður í dag hverjir hljóta þá. Vinningshafar munu hljóta sér- stakt lykilorð og fá sendar leiðbein- ingar um hvernig nálgast eigi mið- ann, en skipuleggjendur viðburðar- ins óttast að nokkuð verði um miðafalsanir. Hinir heppnu fá því einnig sérstakt armband sem þeir verða að vera með á sér, auk að- göngumiða, vilji þeir komast inn í sýningarhöllina. Borgaryfirvöld telja að gífurlegur fjöldi fólks muni safnast saman á svæðinu og freista þess að komast inn án miða. Reuters Höllin Staples Center í Los Angeles. 1,6 milljónir sóttu um miða NOEL Gallagher úr hljómsveitinni Oasis segist hafa eytt um milljón sterlingspundum í eiturlyf og notið hverrar mínútu sem hann neytti þeirra. Þessi vafasömu ummæli lét hann falla í ítalska dablaðinu Cor- riere della Sera. Gallagher kallar söngvara Coldplay, Chris Martin, fífl í viðtal- inu, fyrir þá sök eina að segjast aldrei hafa neytt eiturlyfja. Þá lætur Gallag- her U2 einnig hafa það óþvegið fyrir að hafa skoðanir á pólitík og segir slíkar skoðanir ekki eiga heima á tón- leikum. „Að taka eiturlyf er eitthvað það dásamlegasta við að vera í rokk- hljómsveit,“ segir Gallagher. „Ég hlýt að hafa eitt milljón pundum í eiturlyf fram til ársins 1998 þegar ég hætti að neyta þeirra af heilsufarsástæðum.“ Reuters Noel Gallagher Kjaftfor og heldur slæm fyrirmynd. Eyddi milljón pundum í eiturlyf Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is HINGAÐ til hefur Svavar Knútur Kristinsson kannski verið þekktastur fyrir að vera fremstur meðal jafn- ingja í hljómsveitinni Hrauni, en hann hefur líka kveðið sér hljóðs sem trúbadúr, nú síðast á skífunni Kvöld- vöku, sem fengið hefur fína dóma. Kvöldvaka er þannig til orðin að sögn Svavars Knúts að hann tók að sýsla einn síns liðs með ný lög og eins lög sem hann hafði gert með Hrauni og langaði að gera einfaldari, færa í átt að demóum af þeim eða jafnvel setja í alveg nýjan búning. Frá eymd til endurlausnar Undanfarið hefur Hraun starfað að útgáfu með ákveðna grunnhugmynd í huga eins og Svavar Knútur lýsir því; „Við höfum verið að segja sögu frá eymd til endurlausnar. Fyrst kom „I Can’t Believe It’s Not Happiness“ sem fjallaði um eymdina, þá „Silent Treatment“ sem er leiðin uppúr eymdinni og svo loks kemur end- urlausnin í næstu plötu,“ segir Svav- ar Knútur og bætir við að Kvöldvaka sé að nokkru að fjalla um áþekka hluti, en með öðru áherslum. Undafarna mánuði hefur Svavar Knútur unnið að tónlist eingöngu, segist hafa byrjað nýtt líf um leið og fjármálakerfið hrundi hér á landi. „Ég sagði upp í vinnu sem ég var í, skemmtilegri vinnu reyndar, í maí, og var loks orðinn sjálfstæður í október þegar bankarnir hrundu,“ segir hann og hlær við. „Ég er þó ekki atvinnu- laus, ég vinn hjá sjálfum mér og gengur vel.“ Glímt við óvissuna Svavar segir að sér hafi liðið vel í þeirri vinnu sem hann var í áður, en að hann hafi lengi langað til að helga sig tónlistinni algerlega, að takast á við óvissu og sjá hvað sé á bak við næsta hól. „Ég er með allskonar hug- myndir sem ég hef loks tíma til að vinna við, hugmyndir að skáldsögum, kvikmyndum og nýrri gerð af tón- list,“ segir hann og bætir við að hann hafi líka tekið til við að kenna á gítar og fyrir vikið orðið miklu betri gít- arleikari. „Það er merkilegt að um leið og ég fór að hugsa um gítar sem hljóðfærið en ekki bara verkfæri til að semja lög á áttaði ég mig á ótal at- riðum sem ég hafði ekkert pælt í, fór að spila öðruvísi og varð fyrir vikið miklu betri gítarleikari. Ég er mjög þakklátur nemendum mínum.“ Þó Svavar Knútur segist hafa haft gaman af að kenna gítarleik þá sé það þó tónlistarsköpunin sem togi í hann og reki áfram og hann sé sífellt að leita nýrra leiða í lagasmíðum. „Mig langar að búa til músík með tilgang, lög sem draga fólk eftir sálarbrautum og hafa læknandi áhrif,“ segir hann með áherslu. Næsta Hraunsplata er í smíðum að hann segir, en þar sem hann sé á för- um til Suðurálfu til langdvalar sé lítill tími til að vinna að skífunni. „Lögin eru flest tilbúin og fjalla um hamingj- una, en mig vantar tíma til að vinna í þeim, það er meiri vinna að semja um hamingju en eymd. Líklega vinnum við þetta í gegnum netið, en ég verð í Ástralíu fram á vor.“ Músík með tilgang Hamingja Svavar Knút langar að búa til músík með tilgang.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.