Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
„KRAFTMIKIL ADRENALÍNSPRAUTA
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA.”
„RÚSSÍBANAMYND SUMARSINS ...”
S.V. SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
HHH
„Þessi spræka og
fjölskylduvæna
bandaríska teikni-
mynd er sú þriðja í
röðinni og sú besta
þeirra“
- Ó.H.T. , Rás 2
„Þetta er góð skemmtun
með góð skilaboð og hentar
ungum sem öldnum”
- Ó.H. T., Rás 2
MISSIÐ EKKI AF
STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU
TEIKNIMYND ÁRSINS!
OG NÚNA LÍKA Í 3D
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D POWERS. KL. 10 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 43D L 3D DIGTAL
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL THE HANGOVER LÚXUS VIP kl. 3:40 - 5:50
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 10:20 10
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L STÍGV. KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 L HANNAH MONTANA kl. 5:50 L
THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12
FLOTTASTA HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt stórleikurunum
Shia LaBeouf, John Torturo og kynþokkafyllstu leikkonu
heims Megan Fox
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„LIÐIÐ var upphaflega stofnað árið
2002, og þeir voru sjö þá. Enginn
upprunalegra meðlima er hins vegar
í liðinu í dag,“ segir Andri Örn
Gunnarsson, einn fimm liðsmanna
tölvuleikjaliðsins Seven. Liðsmenn
eru allir rétt rúmlega tvítugir og
hafa þeir spilað skotleikinn Counter
Strike saman í um það bil fjögur ár.
Þeir hafa tekið þátt í fjölmörgum
mótum hér heima og erlendis, og
gengið afar vel.
„Við fórum til dæmis til London
árið 2006 þar sem við lentum í fjórða
sæti á einu stærsta móti Evrópu,“
segir Andri, en hinn 23. júlí næst-
komandi fara þeir félagar til Bilbao
á Spáni þar sem þeir taka þátt í móti
sem kallast GameGune. „Þetta er
haldið árlega og er mjög stórt mót.
Það er líka hátt verðlaunafé, það fást
um tvær milljónir fyrir fyrsta sætið,
1,5 fyrir annað og svo framvegis,“
segir Andri, en aðeins 32 fimm
manna lið komast á mótið, og kom-
ast því mun færri að en vilja.
„Það er boðslisti, en svo er reynd-
ar haldin undankeppni líka. En okk-
ur var boðið af því að þeir vita hvað
við erum góðir.“
Slógu atvinnumenn út
Þeir félagar spila leikinn allir í
einu, og hver og einn hefur sitt hlut-
verk. „Svo æfum við eiginlega bara
með erlendum liðum í gegnum netið.
Án þess að ég hljómi of góður með
mig þá erum við langbestir á Ís-
landi,“ segir Andri, en þeir félagar
hófu formlegar æfingar fyrir mótið
fyrir tveimur vikum síðan.
„Við æfum öll virk kvöld frá svona
fimm til miðnættis, og gerum það al-
veg þangað til við förum út. Það er
mikið skipulag í kringum þetta, æf-
ingaplan og svona,“ útskýrir Andri
og bætir því við að til þess að verða
góður í tölvuleiknum þurfi að spila
mikið, fylgjast vel með og læra.
En nú eru greinilega töluverðir
peningar komnir í þetta, eru menn
orðnir atvinnumenn í spilun tölvu-
leikja?
„Já, bestu liðin eru skipuð at-
vinnumönnum, þau fá borguð mán-
aðarleg laun fyrir að spila. Það eru
stórir framleiðendur í tölvugeir-
anum sem borga þau laun, til dæmis
Intel, AMD og Dell.“
Og stefnið þið á atvinnumennsku?
„Það er náttúrulega draumurinn. En
það var annars rosalega gaman á
mótinu í London, að þar slógum við
út lið sem hefur atvinnu af því að
spila þennan leik. Og eftir það mót
fengum við nokkur tilboð, en þó ekk-
ert sem okkur leist á. Við ákváðum
að bíða aðeins.“
Aðspurður segir Andri að þeir fé-
lagar eigi vissulega möguleika á
sigri í Bilbao, en stefnan sé sett á
fjögur efstu sætin. Allt annað væri
mikil vonbrigði.
Langbestir á Íslandi
Fimm Íslendingar taka þátt í móti þeirra bestu í tölvuleiknum Counter Strike
á Spáni Verðlaunaféð nemur milljónum króna
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Counter Strike Drengirnir hafa spilað leikinn í um það bil fjögur ár.
Morgunblaðið/Ómar
Engir tölvunördar Arnar Hólm Ingvarsson, Andri Örn Gunnarsson, Guðmundur Helgi Jónsson, Birgir Ágústsson
og Brynjar Páll Jóhannsson. Drengirnir stefna allir á atvinnumennskuna í tölvuleikjaspilun.
Liðsmenn Seven eru allir í fullu
starfi og gera því fátt annað en
að vinna, sofa og spila Counter
Strike. „Ég vinn t.d. frá níu til
fimm og fer þá beint að æfa til
ellefu eða tólf. Þannig að þetta
tekur svakalegan tíma. Það er
vissulega gaman að æfa fyrir
svona mót, en það tekur á að
sitja fyrir framan tölvuskjá nán-
ast stanslaust í tvo mánuði,“
segir Andri sem er sá eini í liðinu
sem á kærustu. „Hún skilur
þetta alveg, þetta er ákveðin
ástríða hjá mér og ég reyni bara
að gefa mér tíma til að gera hluti
með henni,“ útskýrir Andri.
Kærastan skilur þetta
www.seven.is.
YFIR 750.000 aðgöngumiðar á 50
tónleika Michaels Jackson í London
verða endurgreiddir að fullu en
kaupendum miðanna stendur einnig
til boða að fá þá í hendur sem minja-
grip. Jackson hannaði miðana sjálf-
ur og gæti því mörgum aðdáand-
anum þótt fengur í því að eiga
miðann.
Ríflega 90 milljónir dollara feng-
ust með miðasölunni, um 11,4 millj-
arðar króna. AEG Live virðist ætla
að draga úr tapi sínu vegna andláts
Jackson og afboðun tónleikanna með
þessum valmöguleika, þ.e. að fá mið-
ann í hendur sem safngrip í stað
þess að fá hann endurgreiddan.
750 þúsund
miðar end-
urgreiddir
Goðið Jackson í djörfum dansi.
ALLEN Klein,
sem var umboðs-
maður Bítlanna og
Rolling Stones um
skeið, er látinn.
Klein lést í fyrra-
dag á heimili sínu í
New York, 77 ára
að aldri, en hann
þjáðist af Alzheim-
ers-sjúkdómnum.
Klein kom víða við á ferli sínum
sem spannaði rúm 50 ár, og þótti
harður í horn að taka þegar kom að
samningagerð í tónlistarbransanum.
Klein sagði eitt sinn að John Len-
non hefði ráðið sig til að gæta hags-
muna Bítlanna því þeir þyrftu „há-
karl til að halda hinum hákörlunum
frá“.
Umboðs-
maður Bítl-
anna látinn
Allen Klein