Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. J Ú L Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 184. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is gerir grillmat að hreinu lostæti! NÝJAR HANDHÆGARUMBÚÐIR E N N E M M / S ÍA / N M 38 33 8 «LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI KREPPAN HAFÐI ÁHRIF Á MÁLVERKIÐ «KVENNALANDSLIÐIÐ Í GOLFI Ekki allir dagar góðir í Slóveníu Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is FUNDIR utanríkismálanefndar Alþingis um ESB-málið riðluðust í gærkvöldi þegar ekki náðist samstaða um málið og útbýtingu skjala á Alþingi var aflýst. Óvíst er hvenær málið kemur út úr nefndinni. Flestir nefndarmenn vildu sjá ákvæði um tvöfalda atkvæðagreiðslu inni í þingsályktun- inni og hleypti það fyrirætlunum Samfylkingarinn- ar í uppnám. „Ég hef alltaf haft fyrirvara á því hvort rétt sé að ganga til viðræðna án skýrs þjóðarvilja, það er ekk- ert nýtt af minni hálfu,“ segir Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir, fulltrúi VG í utanríkismálanefnd. Fund- urinn hófst þannig að minnihlutinn setti ýmsa fyrirvara. Þá gerði Guðfríður Lilja athugasemdir og taldi að margt mætti betur fara áður en hún gæti skrifað undir sameiginlegt álit. Hún myndi fara eftir eigin sannfæringu. Lagði hún meðal ann- ars til öflugri aðkomu Alþingis að umsókninni og spurði einnig um kostnaðinn af henni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins höfðu fulltrúar Samfylkingarinnar reiknað með að málið yrði afgreitt og bjuggust ekki við andstöðu úr þess- ari átt. Þeir gerðu hlé á fundi þegar þessi staða kom upp og aflýstu honum svo síðar um kvöldið. Mikill núningur er því milli stjórnarliða í nefndinni. „Þegar búið var að vinna þessi ítarlegu drög að nefndaráliti þótti mér skrýtið að upplifa að það virtist óviðunandi af hálfu nokkurra nefndarmanna að ræða þau,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokksins og nefndar- maður. Nefndin ráðgerir fund klukkan hálfníu fyrir há- degi en ólíklegt þykir að álit verði klárað fyrir þing- fund tveimur tímum síðar, enda Icesave-málið einnig á dagskrá. Lítil samstaða er í nefndinni og segja viðmælendur að nefndarálitin verði „að minnsta kosti tvö“. Utanríkismálanefnd marg- klofin um ESB-ályktunina » Núningur milli stjórnarliða » Samfylking vænti samstöðu » Athugasemdir fulltrúa VG FYRSTU dagar júlímánaðar hafa verið með eindæmum stilltir og blíðir um allt land, þótt sumum finnist að sólin mætti láta sjá meira til sín á suðvest- urhorninu. Við sum störf getur þó verið betra að hafa ekki sólskinið glamp- andi í augunum svo lengi sem hitinn er notalegur og ekki lítur út fyrir ann- að en blíðan haldi áfram næstu daga. Veðurstofan spáir 12 til 20 stiga hita, hægum vindi og þurru og björtu veðri um allt land. DYTTAÐ AÐ BÁTNUM Í BLÍÐUNNI Morgunblaðið/Eggert  Ríkisstjórnin hyggst standa við áætlanir um uppbyggingu 400 nýrra hjúkr- unarrýma þótt biðlistar eftir slíkum rýmum hafi styst til muna vegna auk- innar áherslu á heimahjúkrun. Í lok árs biðu 464 eftir hjúkr- unarrými en í maí virðast þeir hafa verið 239. Kostnaður við uppbygginguna er metinn á 17 milljarða króna en gert er ráð fyrir að hvert rými kosti yfir 20 milljónir í uppbyggingu. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra bendir á að oft séu rýmin sem til eru á röngum stöðum. Erfitt sé að flytja aldrað fólk hreppaflutning- um. »14 Fleiri hjúkrunarrými eru á áætlun en beðið er eftir  FJÖLDI skipa kepptist við makrílveiðar síðustu klukku- stundirnar áður en bann sjávar- útvegsráðherra við veiðunum gekk í gildi klukkan 18 í gær. Gylfi Viðar Guðmundsson, skipstjóri á vinnsluskipinu Hugin VE, segir stóru útgerðirnar hafa verið með burðarskip sem veitt hafi verið ofan í og þau síðan látin sigla í land. »2 Kepptust við makrílveiðar síðustu tímana fyrir bannið  BJÖRGÓLFSFEÐGAR eru í per- sónulegri ábyrgð fyrir tæplega 6 milljarða skuld vegna láns sem tek- ið var til þess að kaupa 45,8 pró- senta hlut í Landsbankanum 2003. Þeir hafa gert tilboð um að greiða helminginn en afskrifa afganginn. Ólíklegt er að aðrir kröfuhafar í þrotabú Samsonar sætti sig við að Nýja Kaupþing semji um endur- heimtur á skuldinni þar sem per- sónulegar ábyrgðir eru fyrir hendi á öðrum milljarðaskuldum í þrota- búinu, þá helst af hálfu Björgólfs Guðmundssonar. Skuldir Samsonar við skuldabréfaeigendur nema 24,3 milljörðum króna. »4 Kröfuhafar Samson sitji við sama borð vegna skulda Slæm staða Sjóvár er til komin vegna þess að virði eigna félagsins lækkaði á sama tíma og skuldir þess ruku upp. Átti Sjóvá ekki leng- ur fyrir vátryggingaskuld. VIÐSKIPTI Hörð brotlending tryggingafélags Grindavíkurbær vill taka út inn- stæður að fjárhæð um 3 milljarðar króna úr Sparisjóði Keflavíkur. Fénu var ætlað að styðja við SpKef, en nú vill Grindavík fá það aftur. Vilja taka fé sitt út úr SpKef Embætti sérstaks saksóknara hefur yfirheyrt Sigurð Einarsson, fyrr- verandi stjórnarformann Kaup- þings, vegna kaupa Q Iceland Fin- ance á 5% hlut í bankanum. Sigurður tekinn í yfirheyrslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.