Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
STANGVEIÐI
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
GRÍMSÁ er komin í fulla sveiflu
þetta árið og stórar göngur af fal-
legum smálaxi farnar að streyma
upp ána. Tólf laxar veiddust í foss-
inum á mánudagsmorgun.
„Það er mikill fiskur niðri á
svæðum I og II og hann er farinn að
dreifa sér upp á dal líka,“ segir Jón
Þór Júlíusson hjá Laxi ehf., leigu-
taki að ánni. Hann skýtur á að laxa-
gengdin sé fjórum til fimm dögum á
eftir metárinu í fyrra. Nú eru um
170 laxar komnir á land, en á sama
tíma í fyrra voru þeir um 200. Það
er því alls ekki hægt að kvarta.
Margir bíða eftir stórstraumi
„Þetta eru fínir og flottir smálax-
ar, vel haldnir,“ segir Jón Þór. Erf-
itt sé að sjá mun á laxinum í ár og í
fyrra, en ef eittvað þá sé laxinn í ár
örlítið smávaxnari, þó að vart megi
á milli sjá.
Hið sama er uppi á teningnum í
Langá þar sem veiðimönnum ber
saman um að göngurnar séu mjög
að þéttast núna.
Kannski má líka skýra það að
laxinn sé örlítið seinna á ferðinni í
ár með gangi himintunglanna og
þar með sjávarföllunum. Í dag, ní-
unda júlí, er stórstreymt, en eins og
Jón Þór orðar það er stórstraumur
alltaf ákveðinn segull á laxa í hafi
og stórar vöður leggja á brattann
einmitt þá. Þetta gerðist eitthvað
fyrr á síðasta ári.
Það verða því hvorki þreyttir né
máttlausir laxar sem fást í Gríms-
ánni alveg á næstunni, enda gætir
sjávarfalla alveg upp í ármót
Grímsár og Hvítár þegar stór-
streymt er. Þaðan er stuttur spölur
upp á helstu veiðisvæðin. Á hinum
neðri silungasvæðum getur stund-
um að líta furðu lostna veiðimenn
sem fylgjast með ánni hætta að
streyma og fara svo að renna upp í
mót, þótt hvergi nærri sjáist til
hafs!
Góð opnun fyrir norðan
Opnað var fyrir veiðina í Hölkná
og Svalbarðsá í Þistilfirði á dög-
unum. Hölkná gaf fjóra laxa fyrsta
daginn, alla frekar væna. Nýjustu
fréttir úr þeirri síðarnefndu er að
hátt í tuttugu laxar hafa komið á
land í heildina, allt stórlaxar á
bilinu 75 til 90 sentimetra langir,
fyrir utan einn. Aðeins er veitt á
tvær stangir í Svalbarðsá, svo það
má teljast vel í veiði borið.
Laxá í Kjós, þar sem veitt er á tíu
stangir, er einnig í góðum gangi, en
veiðin þar var opnuð hinn 25. júní.
Hollið 3. til 6. júlí í Kjósinni náði
sextíu löxum, en á sama tíma komu
152 laxar á land í Norðurá.
Veiðimenn sem rætt var við í gær
segja flestir að vatnsmagnið í ánum
sé ennþá skaplegt, þótt það fari
minnkandi. „Þetta er allt í lagi
ennþá, en þetta má ekki halda
svona áfram lengi,“ sagði veiðimað-
ur í Norðurá. Áhrifin eru vitanlega
mismikil eftir því hvort einhvers
konar vatnsmiðlun er í ánum. Til
dæmis verða Langá og Grímsá fyrir
minni breytingum en til að mynda
Norðurá og Laxá í Kjós.
Vatnið í Norðurá hefur minnkað
hratt síðustu daga og fór í gær úr
sjö og hálfum rúmmetra á sekúndu
í sjö. Gott rennsli er um 15 til 17
rúmmetrar, að sögn Grétars Þor-
geirssonar veiðivarðar. Menn hafa
þó séð það svartara. Grétar segir að
mun meiri snjór sé í Snjófjöllum á
Holtavörðuheiði nú en undanfarin
ár, sem skýri það að rennslið haldi
sér betur núna en áður.
Ljósmynd/Jón Þór Júlíusson
Hölkná í Þistilfirði Þórður Ingi Júlíusson var einn þeirra sem opnuðu í Hölkná á mánudag og fengu fjóra laxa.
Veiðin á fulla sveiflu
með vaxandi straumi
Fínar göngur af vel höldnum smálaxi streyma upp Grímsá
FRÁ því síðdegis á þriðjudag þar til
síðdegis í gær undirritaði samn-
inganefnd launanefndar sveitarfé-
laga 10 samninga um framlengingu
og breytingar á kjarasamningum 33
stéttarfélaga starfsmanna sveitarfé-
laga. Eru þetta einkum stéttarfélög
innan BSRB og ASÍ. Samningar
þessir eru gerðir á grundvelli stöð-
ugleikasáttmála aðila vinnumark-
aðarins sem undirritaður var hinn
25. júní sl.
Samningarnir gilda frá 1. júlí 2009
til 30. nóvember 2010. Í þeim er
áherslan lögð á að styrkja stöðu
tekjulægstu hópa starfsmanna sveit-
arfélaga. Nýmæli í samningunum er
að tilgreind eru lágmarkslaun fyrir
þá starfsmenn sveitarfélaga sem náð
hafa 18 ára aldri, eru í fullu starfi og
hafa starfað samfellt í fjóra mánuði
eða lengur hjá sama sveitarfélagi. Í
samningunum eru einnig ný ákvæði
um laun ungmenna og vinnuskóla.
Samkvæmt samningunum til-
kynna félögin launanefnd niður-
stöður atkvæðagreiðslu fyrir kl. 12
hinn 14. ágúst.
Gengið frá samningum við
starfsmenn sveitarfélaga
UNGUR karlmaður stal fólksbíl og
hjólhýsi í Borgarnesi í fyrrakvöld.
Hjólhýsið fannst um nóttina þar sem
það hafði verið skilið eftir við Snorra-
staði á Mýrum. Bíllinn fannst síðan
illa farinn við fáfarinn veg nálægt
Heydalsvegi. Ökumaðurinn náðist og
er grunaður um fíkniefnaakstur.
Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
virðist sem maðurinn hafi ekið greitt
með hjólhýsið í eftirdragi. Eigendur
þess voru nýkomnir úr ferðalagi og
geymdu matvæli og margt annað í
hjólhýsinu. Við aksturinn hafði ís-
skápurinn m.a. opnast og innihald
hans farið um allt.
Bíllinn er mikið skemmdur á und-
irvagni eftir að hafa verið ekið um
torfærur. Þá höfðu rúður verið brotn-
ar í bílnum.
Ók greitt á
stolnum bíl
með hjólhýsi
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
www.svfr.is – Sími 568 6050
Úrval veiðileyfa…
laxveiði
silungsveiði
…fyrir alla
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
www.frances.is
Heimsþekktar flugur
atvinnumanna