Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Jackson skólatöskunni. Hópur
stráka á mínum aldri sá töskuna,
umkringdi hann og fór að ýta hon-
um til og frá. Ég ákvað að ég myndi
ekki deila aðdáun minni á popp-
kónginum með neinum á svæðinu.“
Við bárum aðdáun okkar í hljóði,hann var saklausa barnið í
okkur öllum. Eldri krakkarnir
skildu þetta ekki, hvað þá foreldr-
arnir. Michael Jackson, stöku sinn-
um töff, oft hallærislegur og stund-
um átakanlega einlægur. Þessi
einlægni varð okkur öllum um
megn á endanum, flest lærðum við
á endanum tungutak kaldhæðn-
innar – en Michael, hann bara dó.
Hann varð fyrir einelti á heims-
mælikvarða en dansaði þó eins og
það væri enginn morgundagur. Og
eitt lagið fjallar einmitt um þetta
kerfisbundna einelti sem við erum
mörg fyrst að vakna við núna. Í
myndbandinu sjáum við Rodney
King barinn niður, við sjáum grát-
andi og yfirgefið barn á götu og
loks Jackson sjálfan í fangelsi. Og
þar syngja samfangar hans einum
rómi: „All I wanna say is / they
don’t really care about us.“
Lagið er á HIStory og nafn plöt-unnar er viðeigandi, hið per-
sónulega er pólitískt, mannkyns-
sagan á sér líka sínar prívatsögur.
Jackson var einn af okkur – en mis-
notaður af þeim. Eitt af hirð-
skáldum kerfisins, Jósef Stalín,
sagði: „Dauði eins er harmleikur,
dauði milljóna tölfræði.“ Stalín vissi
vel hversu breysk við erum, hversu
ófær við erum til þess að skilja
nema brot af illsku heimsins. Og
hann var líka lúmskur, hann stillti
þessu upp sem andstæðupörum
þannig að hálfri öld síðar þá sjá
sumir dauða Jacksons sem sam-
keppni við dauða lítt þekktra Afg-
ana.
En við þurfum að takast á viðhvort tveggja, við þurfum að
takast á við heiminn eins og hann
leggur sig. Þetta eru sögurnar sem
eiga skilið að vera skráðar, en því
miður búum við í veröld hvers
gangur virðist ráðast af líflausum
sögum um vísitölur, skuldabréf, kú-
lulán, markaðssetningu og geng-
isþróun.
Heimssagan hefur undanfarinár verið skráð af vondum
skáldum, útrásarvíkingum með tíu í
stærðfræði og núll í ritlist, svo ég
snúi nú út úr frægum orðum Einars
Más. Nú þurfum við að leiðrétta
ambögurnar þeirra, gera textann
læsilegri og klára þennan leiðinda-
kafla. Síðan þurfum við að finna al-
vöru skáld til þess að halda sögunni
áfram. Afganskt skáld með ein-
lægni Michaels Jackson að vopni
kæmi sterklega til greina.
asgeirhi@mbl.is
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
FYRIR tíma netsins var nánast eina
leiðin fyrir íslenskar hljómsveitir til
að eiga sumarslagara að komast á
safnplötur stærri útgáfufyrirtækj-
anna, sem innihéldu einungis ný ís-
lensk lög. Hefð sem festist með
Bandalögum og hélt svo áfram með
röðinni Svona er sumarið sem kom
sveitum á borð við Sálina hans Jóns
míns, SSSól, Nýdönskum, Skíta-
móral og Írafári á kortið. Þarna gátu
sveitaballahjómsveitir lagt út öngla
sína fyrir böll sumarsins og ef vel
gekk fylgdu oftast nær breiðskífur
um haustið.
Ekkert hefur bólað á slíkum sum-
arsafnplötum síðustu tvö ár eða svo
þar til nú, að platan Sumar á Íslandi
2009 kemur út. Hún inniheldur m.a.
ný lög frá Sálinni, Egó, Landi og
sonum, Ensími, Togga, Jet Black
Joe, Á móti sól og SSSól auk vin-
sælla laga sem ómað hafa í útvarp-
inu upp á síðkastið. Þar á meðal
„Kónguló“ Hafdísar Huldar og
„Prinsessan mín“ í flutningi Buffs.
„Við höfum ekki gefið út svona
plötur núna í tvö ár,“ segir Hösk-
uldur Höskuldsson, umsjónarmaður
útgáfunnar hjá Senu. „Vinsæl lög
hafa endað á Pottþétt-plötunum en
síðustu sumur hafa bara ekki verið
nægilega sterkir flytjendur til þess
að standa undir svona útgáfu. Þegar
við fórum yfir flóruna í ár sáum við
að það voru margir flytjendur á fullu
í ár. Við vildum þá bara endurvekja
sumarsafnplötuna. Það skiptir máli
að stærri flytjendur eru að spila
núna og þurfa þá að koma sér á
framfæri með nýjum lögum.“
Höskuldur bendir á að stærri
poppsveitir landsins ætli sér í ár að
gera tilraunir til að endurvekja
sveitaballið. Sálin hans Jóns míns
heldur sveitaball í Njálsbúð um þar-
næstu helgi. Fyrsta ballið sem hald-
ið hefur verið þar í lengri tíma.
Á plötunni eru aðeins tvær hljóm-
sveitir sem geta talist óþekktar. Það
eru sveitirnar Moses Hightower
með lagið „Bankabókablús“ og
hljómsveitin Vax með „Sensation“.
Sumarsafnplatan endurvakin
Sálin, Egó, SSSól
og fleiri eiga ný lög á
Sumar á Íslandi 2009
Morgunblaðið/hag
Sálin Náði vinsældum í gegnum sumarsafnplöturnar fyrir tíma netsins.
„ÉG HEF EKKI SKEMMT MÉR BETUR Í BÍÓ SÍÐAN
EINHVERN TÍMANN Á SÍÐUSTU ÖLD.“
„ÞÁ ER HANDRITIÐ MEINFYNDIÐ,
UPPFULLT AF GEGGJUÐUM UPPÁKOMUM.“
„FLEST LEGGST Á EITT AÐ HALDA MANNI Í NÁNAST
ÓSTÖÐVANDI HLÁTURSKASTI OG „GÓÐUM FÍLING“,
ALLT FRÁ UPPHAFSMÍNÚTUNUM...“
S.V. - MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
„KRAFTMIKIL ADRENALÍNSPRAUTA
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA.”
„RÚSSÍBANAMYND SUMARSINS ...”
S.V.
MISSIÐ EKKI AF
STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU
TEIKNIMYND ÁRSINS!
OG NÚNA LÍKA Í
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
HHH
„Þessi spræka og fjölskyldu-
væna bandaríska teiknimynd er
sú þriðja í röðinni og sú besta
þeirra“
- Ó.H.T. , Rás 2
„Þetta er góð skemmtun með
góð skilaboð og hentar ungum
sem öldnum”
- Ó.H. T., Rás 2
HHH
„Ísöld 3 er kjörin fjölskyldu-
mynd sem á örugglega eftir
að njóta vinsælda hjá flestum
aldursflokkum”
- S.V., MBL
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
AÐSÓKNARMESTA KVIKMYNDIN
Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
VINSÆLASTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
50.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
/ AKUREYRI
BRUNO Heimsfrumsýning kl. 8 - 10 14
THE HANGOVER kl. 8 12
TRANSFORMERS 2 kl. 10 10
/ KEFLAVÍK
BRUNO Heimsfrumsýning kl. 8 - 10 14
TRANSFORMERS 2 kl. 10 10
ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 8 L
/ SELFOSSI
BRUNO Heimsfrumsýning kl. 8 - 10 - 11 14
TRANSFORMERS 2 kl. 8 10