Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Í DÓMNUM kemur fram að maður-
inn braut markvisst niður mótstöðu-
afl konunnar og gerði hana sér und-
irgefna. Til þess nýtti hann sér
greind sína og hæfileika í sam-
skiptum, líkamlegan styrk og hörku
gegn veikleika hennar. Konan bjó við
stöðugan ótta, maðurinn fylgdist
með ferðum hennar og fór yfir far-
síma til að athuga við hverja hún ætti
samskipti. Í viðtölum síðar við geð-
lækna og sálfræðinga lýsti hún sam-
bandinu sem fangabúðavist.
Í janúar á síðasta ári kærði konan
manninn og var hann handtekinn
samdægurs.
Þau kynntust rúmum þremur ár-
um fyrr. Eftir tveggja mánaða sam-
band var hún farin að óttast skap
hans og innan árs lagði hann fyrst
hendur á hana. Ofbeldið var því sem
næst gegndarlaust þar til konan bar
fram kæru, að lágmarki aðra hverja
viku. Hún sagðist sjálf aldrei hafa
náð að jafna sig.
Konan var til meðferðar á geðdeild
Landspítala nánast samfellt árið
2008 og í kjölfarið hjá sálfræðingi. Í
skýrslu sálfræðings sem lögð var fyr-
ir dóminn kemur fram að líðan kon-
unnar hafi verið mjög slæm í sam-
anburði við aðra sjúklinga sem til
meðferðar voru af svipaðri ástæðu.
Hægt að lifa eðlilegu lífi
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
segir að alls óvíst sé hvort konan
muni nokkurn tíma ná sér að fullu í
framtíðinni. Meðferðarúrræði er
hægt finna víða bæði innan og utan
heilbrigðisstofnana.
Karen Eiríksdóttir, ráðgjafi hjá
Stígamótum, segir samtökin taka þá
afstöðu að fólk geti náð sér að fullu
eftir áföll og eru ýmis úrræði fyrir
hendi svo einstaklingar geti lifað eðli-
legu lífi. Hjá Stígamótum er m.a.
boðið upp á svonefnda hjálp til sjálfs-
hjálpar, en þar er um að ræða ein-
staklingsmiðaða áætlun sem getur
verið til langs tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá Ey-
rúnu B. Jónsdóttur, verkefnisstjóra
Neyðarmóttöku vegna nauðgunar, er
sálfræðiþjónusta innan móttökunnar
stór og mikilvægur þáttur. Þörf fyrir
stuðning er byggð á einstaklings-
bundnu mati sálfræðings eða með-
ferðaraðila á andlegri líðan brotaþola
og hversu mikla aðstoð viðkomandi
þarf eða vill þiggja. Viðkomandi er
vísað í viðeigandi farveg hverju sinni
og má þar nefna Áfallamiðstöð og
geðdeild Landspítala.
Lýsti sambandinu sem fangelsisvist
Fórnarlamb hrottalegs og langvarandi líkamlegs, andlegs og kynferðislegs ofbeldis var nánast
í samfelldri árslangri meðferð eftir að hún lagði fram kæru Óvíst hvort hún nær sér að fullu
Átta ára fangelsisvist bíður 37
ára karlmanns ef Hæstiréttur
staðfestir dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur. Dómurinn yfir fórn-
arlambinu – fyrrverandi sam-
býliskonu hans – var öllu þyngri,
en alls óvíst er talið að konan
muni nokkurn tíma ná sér eftir
langvarandi líkamlegt, andlegt
og kynferðislegt ofbeldi.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ofbeldi Konan þurfti að búa við mikið ofbeldi. Myndin er sviðsett.
Brot mannsins eiga sér enga hlið-
stæðu í réttarframkvæmd hér á
landi, samkvæmt því sem segir í
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Fram kemur að ellefu karlmenn
tóku þátt í ofbeldi gegn konunni en
enginn þeirra var þó ákærður. Þótti
ekki ljóst að þeir hefðu vitað að
konan var þvinguð til samræðis við
þá. Nokkrir mennirnir höfðu kyn-
mök við konuna oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar.
Einn mannanna hætti í miðjum
klíðum eftir að hann veitti því eft-
irtekt að maðurinn stjórnaði öllum
aðgerðum konunnar og hún eng-
um. Spurði hann manninn hvort
hann drottnaði yfir henni og sagð-
ist í kjölfarið ekki geta tekið þátt.
Hann sagðist fyrir dómi hafa skynj-
að hjá henni ótta auk þess sem hún
hefði verið með marbletti.
Annar sem sagðist hafa tekið
þátt þrisvar sagði manninn hafa
verið ágengan og stjórnað athöfn-
unum. Honum hefði þótt þetta á
einhvern hátt óþægilegt og ákveðið
að hitta parið ekki oftar.
Við húsleit sem framkvæmd var
þegar maðurinn var handtekinn
fundust tölvubúnaður og farsímar
sem innihéldu 664 ljósmyndir. Á
þeim mátti sjá konuna í samförum
við marga af mönnunum. Að auki
fundust tuttugu myndskeið sem
tekin voru við sömu aðstæður.
Á hluta myndanna má sjá að
konan var með áverka eins og eftir
barsmíðar. Einnig mátti sjá hana
grátandi í kynferðismökum við
aðra karlmenn.
Tilvikin um hrottafengið ofbeldi
gegn konunni voru fjölmörg en
sjaldnast leitaði konan læknis-
aðstoðar vegna áverka. Reynt var
að leyna ofbeldinu og bannaði
maðurinn konunni fara ein til lækn-
is af ótta við að málið kæmist upp.
Hún neyddist einnig til að láta af
meistaranámi sínu vegna spurn-
inga frá samnemendum.
Svo illa lék maðurinn konuna
haustið 2007 að flytja þurfti hana á
slysadeild. Þá hafði lögregla verið
kölluð að heimili fólksins vegna
óláta.
Í læknisvottorði sérfræðings á
slysa- og bráðadeild segir að við
skoðun hafi konan verið illa haldin
af verkjum í skrokknum og sér-
staklega í hægri hluta andlits. Á
höfði var mikið mar hægra megin
sem náði frá gagnauga og niður á
háls. Allt þar á milli var stokkbólgið
og auðsjáanlega talsverð blóð-
massasöfnun þar undir í mjúkvefj-
um. Konan átti erfitt með að opna
munninn og kvartaði um eymsli frá
neðri kjálka. Einnig voru á henni
eldri áverkar.
Þvingaði konuna til samfara við karlmenn og
tók af þeim fjölmargar myndir og myndskeið
Það er
Meira Frelsi
0 kr. innan kerfis um helgar í sumar
800 7000 • siminn.is
Fylltu á Frelsið í gegnum Mitt Frelsi og hringdu
svo eða sendu SMS innan kerfis um helgar
í mánuð á eftir án þess að borga krónu.
Þú talar auðvitað áfram við vini þína
innan eða utan kerfis – við fjölgum bara
vinunum um helgar.**
NeTið Í SÍMaN
UM
FYLGiR FReLS
iNU!
Ef þú átt Frels
isnúmer ferðu
á
netið í símanu
m í sumar fyr
ir
0 kr. aukalega
.