Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
„MENN eru að keppa við klukkuna.
Þetta eru eins og ólympískar veiðar.
Það er búið að moka allt of miklu í
bræðslu og við höfum verið að gera
það líka til þess að taka þátt í þessu
rugli.“
Þetta sagði Gylfi Viðar Guð-
mundsson, skipstjóri á vinnsluskip-
inu Hugin VE, þegar Morgunblaðið
sló á þráðinn til hans á miðunum
skömmu áður en bann við veiðum á
makríl gekk í gildi klukkan 18 í gær.
Kepptust við síðustu tímana
Síðustu klukkustundirnar áður en
bannið gekk í gildi kepptist fjöldi
skipa við veiðarnar á miðunum suður
undir miðlínu milli Íslands og Fær-
eyja.
Auk þess að setja á bann við mak-
rílveiðum var reglugerð um stjórn
veiða íslenskra skipa úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum breytt á þann
hátt að veiðar úr þeim stofni eru ein-
ungis heimilar fyrir norðan 66 gráð-
ur N og þar má makrílafli ekki fara
yfir 10 prósent af heildarafla á
hverju þriggja vikna tímabili. Reglu-
gerðin tók gildi á miðnætti.
Hratt gengið á kvótann
Gripið var til þessara ráðstafana
þar sem afar hratt hefur gengið á út-
gefna hámarksaflaviðmiðun, 112
þúsund lestir, í makríl á síðustu dög-
um. Í fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytinu segir að ennfremur
sé ljóst að erfitt verði að veiða norsk-
íslenska síld án þess að makríll fáist
sem meðafli og á þeim grunni þykir
ástæða til að stöðva beinar veiðar á
makríl með fyrrgreindum hætti.
„Það hefur verið algjör skömm að
þessu. Það hafa allir verið að keppast
við að veiða sem mest. Stóru fyrir-
tækin eru með burðarskip sem veitt
er ofan í og svo eru þau látin sigla í
land,“ sagði Gylfi Viðar.
Það er mat hans að úthluta hefði
átt hverju skipi ákveðnum kvóta.
„Þá gætu menn nýtt þetta betur. Við
gætum látið reka á meðan verið væri
að vinna aflann í stað þess að vera í
kapphlaupi við að veiða í bræðslu.
Það munar tífalt á verðinu.“
Meirihlutinn í bræðslu
Eyþór Björnsson, forstöðumaður
veiðieftirlits Fiskistofu, kveðst ekki
hafa tölur yfir hversu mikið hafi farið
í bræðslu annars vegar og í vinnslu
hins vegar.
Ljóst sé að meirihlutinn hafi farið í
bræðslu en nú hafi þó talsvert meira
af aflanum farið í vinnslu en í fyrra.
„Það eina sem var unnið í fyrra var
um borð í fjórum vinnsluskipum. Nú
hafa vinnslurnar í landi tekið eins og
þær hafa getað.“
Að sögn Eyþórs hafa um 20 skip
verið á makrílveiðum.
Allt of miklu mokað í bræðslu
Sjávarútvegsráðherra fól Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi til makrílveiða í gær
Hratt hefur gengið á hámarksaflaviðmiðun um 112 þúsund tonn síðustu daga
» Ólympískar makrílveiðar fyrir bannið
» Burðarskip hafa flutt aflann í land
» Veiðar á norsk-íslenskri síld takmarkaðar
!
MIKLAR framkvæmdir eru nú á jörðinni Lamba-
læk í Fljótshlíð en þar er að rísa hið reisulegasta
hús á tveimur hæðum. Samkvæmt fundargerð-
um skipulagsnefndar Rangárþings ytra, frá því í
febrúar síðastliðnum, hefur þarna verið veitt
leyfi fyrir húsi með allt að 300 fermetra grunn-
fleti, auk þess sem leyfi er fyrir um 800 fermetra
byggingu neðanjarðar, sem ráðgert er að sam-
anstandi af bílageymslu, vínkjallara, tengigangi
og gestahúsi.
Bygging hússins hefur staðið yfir um nokkra
hríð og var hópur iðnaðarmanna þar að störfum
í gær. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður
Exista, annar helsti eigandi Bakkavarar Group,
stendur að byggingunni. onundur@mbl.is
MIKLAR FRAMKVÆMDIR Í FLJÓTSHLÍÐINNI
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
KÓRALRIF -og hólar hafa fundist í Lónsdjúpi, austur af
landinu, en rannsóknarleiðangur var farinn á vegum Haf-
rannsóknastofnunar í lok júní.
Að sögn Steinunnar Hilmu Ólafsdóttur, sérfræðings í
botndýrum, er þetta kaldsjávarkórall í tveimur litaaf-
brigðum sem er að finna á um 40 ferkílómetra svæði á 200-
500 m dýpi. Ekker sólarljós nær því til kórallanna, sem
nærast með því að sía næringu úr hafstraumum.
„Það sem gerir hann svona sérstakan er að hann er
mjög lengi að vaxa, það tekur mörg hundruð þúsund ár
fyrir kóralrif að myndast og á þeim tíma býr hann til sér-
stakt búsvæði fyrir aðrar lífverur,“ segir Steinunn.
Kórallar eru afar viðkvæmar lífverur og hafa víða rask-
ast mjög með botnveiðum. Þau kórallasvæði sem áður hafa
fundist við Ísland eru friðuð og segir Steinunn stefnt að
því að hinir nýfundnu kórallar verði einnig friðaðir.
Rannsóknarleiðangurinn notaðist við neðansjávar-
kafbát sem tók bæði myndir og sýni af kóröllunum og
verða þau rannsökuð nánar á næstu vikum. una@mbl.is
Fundu ný kóralrif við
Ísland með hjálp kafbáts
Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun
Hafsbotn Karfi gægist fram úr fagurrauðri kóralbreiðu
Hætta á að vistkerfi kórall-
anna raskist vegna botnveiða
LÖGREGLUFÉLAG Suðurnesja
hefur sent frá sér áskorun á rík-
isstjórn Íslands
um að ganga til
samninga við
Landssamband
lögreglumanna
og tryggja lög-
reglumönnum
viðunandi
starfskjör.
Í ályktun frá
félaginu segir
m.a. að lög-
reglan hafi
mátt búa við þröngan kost um
margra ára skeið. 30.000 króna
launaleiðrétting sem lögreglumönn-
um var boðin 2007 hafi nú verið felld
niður og því sé lítið sem ekkert svig-
rúm til niðurskurðar.
Á sama tíma aukist álagið á lög-
reglu vegna ástandsins í samfélag-
inu í kjölfar bankahrunsins og lík-
legt að verkefni lögreglu muni
aukast til muna. Verði af niður-
skurðartillögum ríkisins þýði það
hinsvegar fækkun um 12-13 lög-
reglumenn á Suðurnesjum.
Vilja við-
unandi
starfskjör
Lögreglan er ósátt
við niðurskurð
Skora á ríkið að
semja við lögregluna