Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Afganskt skáld með
einlægni Michaels
Jacksons að vopni kæmi
sterklega til greina. 40
»
NÆSTU tónleikar á vegum
Sumartónleika í Skálholts-
kirkju verða í kvöld kl. 20. Það
er Skálholtskvartettinn sem
kemur fram og leikur hinn
þekkta strengjakvartett Schu-
berts Dauðann og stúlkuna og
einnig kvartett op. 9 nr. 5 eftir
Joseph Haydn en tveggja alda
ártíðar Haydns er einmitt
minnst á Sumartónleikunum á
þessu ári. Skálholtskvartettinn skipa þau Jaap
Schröder og Rut Ingólfsdóttir fiðluleikarar, Svava
Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari. Líkt og ævinlega er enginn
aðgangseyrir að tóneikum Sumartónleika í Skál-
holtskirkju.
Tónlist
Skálholtskvartett-
inn spilar í kvöld
Jaap Schröder
Í KVOSARGÖNGU í
kvöld verður gengið til
vesturs frá Grófinni með
Helga Þorlákssyni sagn-
fræðingi og saga gamla
Vesturbæjarins rakin.
Mótun þessa bæjarhluta
á seinni helmingi 19. ald-
ar og fram um 1930
verður skýrð út frá sjósókn og bættum efnahag.
Einkum verður staðnæmst við hús sem vitna um
þessa sögu, mörg þeirra standa enn og önnur eru
horfin en verða skoðuð á myndum sem teknar
verða með í túrinn. Hugað verður að mannlífi
fyrri tíðar, horfnum háttum og sagðar sögur af
forvitnilegu fólki. Þátttaka er öllum heimil og lagt
upp frá Borgarbókasafni í Tryggvagötu kl. 20.
Saga
Litið til vesturs
í Kvosargöngu
Gamli Vesturbærinn
LEIF Høgfeldt Han-
sen, prófessor við
Arkitektaskólann í
Árósum og sérfræð-
ingur í norrænni og
asískri byggingarlist,
heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu kl.
20 í kvöld um áhrif hefðbundinnar japanskrar
byggingarlistar á byggingar hins merka finnska
arkitekts Alvars Aalto - sem og annarra norrænna
arkitekta um miðbik 20. aldarinnar. Fyrirlest-
urinn mun hverfast um verk Alvars Aalto, eins
helsta frumkvöðuls svokallaðs staðbundins eða
ljóðræns módernisma sem átti sér rætur í hinum
krítarhvíta og ofursvala stíl Bauhaus-skólans í
Evrópu millistríðsáranna
Arkitektúr
Ræðir japönsk
áhrif á Alvar Aalto
Norræna húsið, eftir Aalto
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞEGAR kreppan skall á og með
þeim átökum sem fylgdu í þjóðfélag-
inu, var hugmyndagrundvelli lands-
lagsmálverksins svipt burt,“ segir
Hrafnhildur Schram listfræðingur.
Hún er sýningarstjóri sýningarinnar
Kreppumálararnir, sem opnuð verð-
ur í Listasafninu á Akureyri á laug-
ardag kl. 15. Þar verða sýnd málverk
frá fjórða áratug síðustu aldar, eftir
kreppumálarana svokölluðu, Snorra
Arinbjarnar, Jón Engilberts, Gunn-
laug Scheving og Þorvald Skúlason.
„Menn héldu auðvitað áfram að
mála landslag. En með þessum
mönnum var sprottin upp ný kyn-
slóð málara, kynslóð sem hafði
stundað nám erlendis og þeir fundu
þörf fyrir að túlka nýja tíma.“
Fólk að störfum og í baráttu
Kreppumálararnir litu til mann-
eskjunnar og umhverfis hennar;
manneskjunnar að störfum og í bar-
áttu. Fram að þeim tíma var mann-
eskjan fjarverandi í málverkinu, að
sögn Hrafnhildar, og ef hún var þar,
var það til þess að sýna smæð henn-
ar og umkomuleysi gagnvart nátt-
úrunni. „Þessir menn settu mann-
eskjuna í forgrunn, manneskjan var
komin inn í málverkið. Það voru
fleiri að mála fólk í myndum sínum,
en einhvern veginn hefur hugtakið
kreppumálari fest við þessa fjóra.“
Hrafnhildur segir að Snorri Arin-
bjarnar hafi verið kallaður málari
þorpsgötunnar. „Hann sýnir þetta
lamandi andrúmsloft og aðgerð-
arleysi þar sem fólk stendur eins og
skuggar og bíður eftir því að eitt-
hvað gerist. Í myndum hans er
drungi og kreppustemning.“
Jón Engilberts var langpólitísk-
astur kreppumálaranna, að sögn
Hrafnhildar, en mikill lífskraftur í
honum. „Hann var í Danmörku í
námi og þar fékk hann sitt pólitíska
uppeldi. Félagar hans úti voru að
mála kröfuspjöld og borða til að nota
í þeim átökum og verkföllum sem
voru úti, og Jón gekk inn í það. Hann
kom heim og sýndi árið 1934 og var
sagður einn djarfasti málari okkar.“
Gunnlaugur Scheving málaði
raunsæar myndir af alþýðufólki.
„Maður skynjar vel virðingu hans
fyrir manneskjunni. Hann sýnir
vinnulúið fólk án upphafningar eða
meðaumkunar.“
Samhljómur málara og skálda
Þorvaldur Skúlason málaði gjarn-
an báta og hafnarmyndir. „Við
sjáum þá þróun í myndum hans að
hann einfaldar smám saman mynd-
efni sitt og bátarnir verða eins og
leikfangabátar, stórir og klossaðir.
Þeir voru mjög góðir vinir Þor-
valdur og Steinn Steinarr og hafa
örugglega haft áhrif hvor á annan.
Það er mikill samhljómur milli mál-
aranna og skáldanna á þessum tíma,
þeir yrkja um manninn í sínu nýja
umhverfi. Listamennirnir voru flutt-
ir á mölina eins og aðrir og voru að
skoða sinn nýja veruleika.“
Listasafnið er opið alla daga frá
kl. 12-17 og aðgangur er ókeypis.
Manneskjan kom í málverkið
Kreppumálararnir er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Listasafninu á Ak-
ureyri á laugardag Ný kynslóð menntaðra málara á fjórða áratug síðustu aldar
Kröfuganga Þessi kolamynd eftir Jón Engilberts er meðal verkanna á sýn-
ingunni í Listasafninu á Akureyri. Jón var pólitískastur kreppumálaranna.
„HÁPUNKTURINN er að fá Ragga Bjarna
til að koma og syngja djass á laugardags-
kvöldið,“ segir Sigurður Flosason, listrænn
stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Jazz undir
Fjöllum, sem fram fer í 6. sinn um helgina að
Skógum undir Eyjafjöllum. Það velkist víst
varla nokkur maður í vafa um það að „Raggi
Bjarna“ er dægurlagasöngvarinn góðkunni
Ragnar Bjarnason.
Varla nær rótunum komist
„Raggi hefur einstaka sinnum sungið djass.
Hann er auðvitað uppalinn í djassinum í hljóm-
sveit pabba síns, Bjarna Bö [Böðvarssonar];
það verður varla komist nær rótum djassins á
Íslandi en það,“ segir Sigurður. „Raggi hefur
alltaf verið „swingandi“ maður og mjög gaman
að heyra hann syngja djass-standarda. Hann
mun þó sennilega blanda dagskrána með sín-
um vinsælu lögum, og ég held að þetta verði
mjög skemmtilegur konsert. Hann er í fanta
fínu formi – ég segi ekki einu sinni miðað við
aldur, því Raggi er ótrúlegt fyrirbæri í tónlist-
inni.“
Sigurður segir góðar andstæður í aldri
þeirra sem koma fram á hátíðinni í ár, því á
föstudagskvöldinu leikur Óskar Guðjónsson
með tríói sínu. „Í yngri kantinum“, segir Sig-
urður, því Óskar er jú ekki barnungur. Sér-
stakur gestur Tríós Óskars verður Jóel Páls-
son saxófónleikari.
Á laugardagseftirmiðdag verða fernir tón-
leikar, þar sem gestir hátíðarinnar spila sund-
ur og saman í ýmsum einingum, sem dúó, tríó
og kvartett, með sínu bandi og hinu bandinu,
frá kl. 13-17 og á þá tónleika er aðgangur
ókeypis. „Jú, jú, við gerum þetta þannig að við
hrærum fólkinu saman í ný bönd og allir spila
saman, fremur óformlega. Þetta er fín sam-
setning og hár standard á fólkinu sem spilar.“
Sigurður segir hátíðina alltaf hafa tekist vel
og verið skemmtilega. „Fólk kemur víðs vegar
að á eftirmiðdagstónleikana á laugardeginum.
Fólk sem er á ferðinni kemur við á safninu og
sest niður til að hlusta á djass í einn, tvo tíma.
Kvöldtónleikana höfum við frekar stílað inn á
fólkið í nærliggjandi sveitum. Það er bæði hót-
el á staðnum og gott tjaldstæði og við vonum
að fólk geri sér ferð á Skóga og dvelji þar alla
helgina.“
Hátíðinni lýkur á sunnudag með tónleikum í
Skógakirkju þar sem Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson flytja sálmalög og fleira.
begga@mbl.is
Uppalinn í djassinum
Raggi Bjarna syngur á hátíðinni Jazz undir Fjöll-
um að Skógum undir Eyjafjöllum um helgina
Raggi Bjarna „...mjög gaman að heyra hann
syngja djass-standarda,“ segir Sigurður.
EINN mesti dýrgripur fornaldar
sem sögur fara af, vasi eftir gríska
listamanninn Euphronios sem uppi
var á sjöttu öld fyrir Krist, er kom-
inn til Ítalíu. Þar er hann nú til sýnis
í Villa Giulia í Róm. Það var Met-
ropolitansafnið í New York sem skil-
aði vasanum, og var það liður í sam-
komulagi þjóðanna um að illa
fengnum fornminjum skuli skilað til
síns heima.
En hvers vegna þá ekki til Grikk-
lands? kann einhver að spyrja.
Saga vasans er lítt þekkt, fram til
ársins 1971, er þjófar rændu honum
úr etrúrskri grafhvelfingu nærri
þorpinu Cerveteri á Ítalíu, en Etr-
úrar voru áhrifamestir ítalskra þjóð-
flokka á þeim tíma sem Euphronios
bjó til vasann.
Síðla árs 1971 fundu ítalskir graf-
arræningjar gröfina sem geymdi
vasann, tóku hann og annan til
ófrjálsri hendi og seldu ítölskum list-
prangara, sem seldi þá aftur hvorn í
sínu lagi til bandarískra kollega
sinna. Það var svo sjálfur for-
stöðumaður Metropolitansafnsins,
Thomas Hoving, sem keypti þann
stóra árið 1972 og kaupverðið þá var
ein milljón dala. Kaupin ollu deilum í
New York á sínum tíma vegna þess
hve dýr vasinn var. Hann varð svo
eitt af mestu djásnum safnsins þar
til honum var skilað.
Grískum
dýrgrip
skilað
Metropolitansafnið
keypti á milljón dali
Euphronios Vasi Grikkjans lá öld-
um saman í ítalskri mold .
Allan þriðja áratug 20. ald-
arinnar ríkti mikil bjartsýni í
atvinnulífi, sveitir tóku
stakkaskiptum og íbúum
kaupstaða fjölgaði. Þessi
þróun stöðvaðist skyndilega
með hruni verðbréfamark-
aðarins í New York í árslok
1929. Íslandsbanki, sem
stofnaður var í upphafi ald-
arinnar og hafði lánað ótæpi-
lega fé til atvinnustarfsemi
og uppbyggingar, varð gjald-
þrota í febrúar 1930. Ríkið
yfirtók bankann og breytti
honum sama ár í tvo banka,
Útvegsbanka og Bún-
aðarbanka. Við tóku erfiðir
tímar sem ekki lauk fyrr en
með hernáminu 1940.
Kreppan fyrri
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ
Félagsheimilið Fossbúð kl. 21
Tríó Ómars Guðjónssonar.
Ómar Guðjónsson: gítar, Þorgrímur
Jónsson, kontrabassi, Þorvaldur Þór
Þorvaldsson: trommur.
Gestur: Jóel Pálsson.
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ
Byggðasafnið í Skógum kl. 13-17
Kl. 13 Tríó Sigurðar Flosasonar
Sigurður Flosason: saxófónn, Eyþór
Gunnarsson, píanó, Þorgrímur Jónsson,
kontrabassi.
Kl. 14 Jóel og Eyþór – dúó
Jóel Pálsson: saxófónn, Eyþór Gunn-
arsson: píanó.
Kl. 15 Tríó Jóels Pálssonar
Jóel Pálsson: saxófónn, Ómar Guðjónsson,
Þorgrímur Jónsson.
Kl. 16 Skógakvartettinn
Sigurður Flosason, Ómar Guðjónsson,
Þorgrímur Jónsson og Þorvaldur Þór
Þorvaldsson.
Félagsheimilið Fossbúð kl. 21
Raggi Bjarna og hljómsveit Eyþórs
Gunnarssonar.
Ragnar Bjarnason, Eyþór Gunnarsson,
Sigurður Flosason, Þorgrímur Jónsson,
Þorvaldur Þór Þorvaldsson.
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ
Skógakirkja kl. 15
Ellen og Eyþór flytja sálma.