Morgunblaðið - 09.07.2009, Page 4

Morgunblaðið - 09.07.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÓLÖGRÁÐA ökumenn, 17 ára ung- lingar sem eru nýkomnir með öku- réttindi, eru þeir sem valda flestum slysum í umferðinni. Því blasir við sú staða að einstaklingar sem ekki eru sjálfráða geta valdið alvarlegum slysum og jafnvel banaslysi. Í nýútkominni ársskýrslu Rann- sóknarnefndar umferðarslysa (RNU) fyrir árið 2008 kemur fram að óeðlilegt megi teljast að ætla ólögráða unglingi þá miklu ábyrgð sem fylgir ökuréttindum. Aukinn þroski – færri slys RNU hefur því lagt það til að við endurskoðun umferðarlaga verði ökuleyfisaldur hækkaður úr 17 árum í 18 ár. Í skýrslunni er m.a. bent á það til rökstuðnings að verði nýliðar í umferðinni 18 ára í stað 17 ára gamlir megi áætla að hlutfallsleg fækkun umferðarslysa í hópi nýrra ökumanna verði 5-9% og helgast það af auknum þroska hinna eldri. Bent er á að árið 2007 voru 17 ára ökumenn á Íslandi valdir að 60% fleiri slysum en ökumenn sem eru einu ári eldri. 18 ára ökumenn voru þannig valdir að 361 slysi en 575 slys mátti rekja til 17 ára ökumanna. Þó ber að hafa í huga í þeim samanburði að 18 ára ökumenn hljóta að búa að árs reynslu í umferðinni. Alvarlegum slysum fjölgar Vert er þó að geta þess að jákvæð þróun hefur orðið í umferðinni á Ís- landi síðustu ár að því leyti að bana- slysum fer fækkandi. Í skýrslu RNU kemur fram að síðastliðin 5 ár (2004-2008) fórust 100 manns í umferðarslysum á Ís- landi, en á 5 ára tímabili þar á undan (1999-2003) fórust 129 í umferð- arslysum. Banaslysum sem yngstu ökumennirnir, 17-20 ára, valda hefur að sama skapi fækkað. Á hinn bóginn hefur alvarlegum umferðarslysum með miklum meiðslum fjölgað. Skv. slysaskrá Umferðarstofu urðu 128 slík slys 2006, 165 2007 og 164 árið 2008. 17 ára fái ekki lengur að taka bílpróf Banaslysum í umferðinni fer fækkandi en alvarlegum meiðslum fjölgar Tvö banaslys urðu af völdum hraðaksturs á síðasta ári og eitt vegna kappaksturs innanbæjar. Slys af þessu tagi má fyrst og fremst rekja til ungra ökumanna sem valda flestum slysum. FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is ÍSLENSKU ríkisbankarnir gömlu, Landsbankinn og Búnaðarbankinn, fjármögnuðu sjálfir að stórum hluta kaup Samsonar og S-hópsins á Landsbankanum og Búnaðarbank- anum. Samson, félag Björgólfs Guð- mundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, og um tíma Magn- úsar Þorsteinssonar, fékk lán frá gamla Búnaðarbankanum upp á 3,4 milljarða króna, sem nam um 30 pró- sentum af kaupverði. Þetta lán er nú hjá Nýja Kaupþingi, skv. upplýs- ingum frá Helga Birgissyni hrl. skiptastjóra Samson. Egla hf. fékk lán frá Landsbankanum fyrir 35 prósentum af 11,4 milljarða kaupum S-hópsins á Búnaðarbank- anum. Síðar eignaðist Egla 71,2 pró- sent af hluta S-hópsins og varð síðar meðal stærstu hluthafa Kaupþings. Egla greiddi lánin upp að fullu um mitt ár 2007 þegar félagið var endur- fjármagnað. Hjörleifur Jakobsson, framkvæmdastjóri Eglu, staðfesti það í samtali við Morgunblaðið í gær. Draga dilk á eftir sér Lánin frá Búnaðarbankanum til Samsonar hafa enn ekki verið greidd upp. Nýja Kaupþing, sem lánin til- heyra nú, hefur krafist þess að skuld- in, sem nemur um 4,9 milljörðum auka dráttarvaxta, verði greidd. Á móti hafa Björgólfsfeðgar lagt fram tilboð um að greiða helming af skuld- inni við bankann. Krefjast því af- skriftar upp á um þrjá milljarða, þar sem skuldin nemur um sex millj- örðum. Samson stendur höllum fæti, svo ekki sé meira sagt. Félagið skuldaði um 112 milljarða í lok nóv- ember í fyrra, þegar félagið var kom- ið í þrot. Stærsta eign félagsins, eign- arhluturinn í Landsbankanum, er horfinn úr eignasafninu og sama má segja um margar aðrar eignir. Samson skuldar því mörgum öðr- um en Nýja Kaupþingi stórfé og ekki er ólíklegt að aðrir kröfuhafar verði ósáttir, ef sérstaklega verður séð til þess að Nýja Kaupþing fái miklar endurheimtur en aðrir kröfuhafar ekki. Ekki mun duga til þótt þeir feðgar hafi verið persónulega ábyrgir fyrir láni Nýja Kaupþings, þar sem um persónulegar ábyrgðir, sér- staklega Björgólfs Guðmundssonar, er að ræða á fleiri skuldum í þrotabúi Samsonar. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur m.a. borist formlegt erindi frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins til skiptastjóra Samsonar, þar sem forsvarsmenn sjóðsins telja að Björgólfur G. hafi gengist í persónu- lega ábyrgð fyrir skuldum félagsins við sjóðinn. Björgólfur G. hefur sagt að skuldir sem hann sé í ábyrgðum fyrir séu um 58 milljarðar en upp í þá eigi að vera hægt að fá um 12 milljarða. Meðal stærstu kröfuhafa í þrotabú Samsonar eru skuldabréfaeigendur. Samson skuldar þeim 24,3 milljarða króna. Þar er stærstur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR). Skuld við hann er um tveir milljarðar en Lífeyrissjóður verzlunarmanna kem- ur næstur með um 1,3 milljarða. Félagið skuldar öðrum lífeyr- issjóðum, s.s. Gildi, Lífeyrissjóði verkfræðinga, Lífeyrissjóði Vest- mannaeyja, Festi lífeyrissjóði, Sam- einaða lífeyrissjóðnum, Stapa lífeyr- issjóði, Almenna lífeyrissjóðnum og Lífeyrissjóði bænda hátt í tíu millj- arða. Aðrir skuldabréfaeigendur eru ein- staklingar og smærri fjármálafyr- irtæki. Meðal annars var fjárfest í skuldabréfum félagsins af pen- ingamarkaðssjóðum og sjóðum sem Landsbankinn stýrði frá Lúxemborg og ávöxtuðu meðal annars fé erlendra einstaklinga í Frakklandi og á Spáni, eins og greint hefur verið frá í Morg- unblaðinu. Samson á einnig inn- stæður í bönkum hér á landi og er- lendis. Þar á meðal eru 2,3 milljarðar á reikningum í Landsbankanum. Fulltrúar Commerzbank, fyrir hönd fleiri erlendra lánveitenda Sam- sonar, hafa krafist þess í bréfi til skiptastjóra Samsonar, Helga Birg- issonar hrl., að 600 milljónir sem eru á reikningi Landsbankans hér á landi verði greiddar til kröfuhafanna. Er það gert á þeim grunni að handveð hafi verið í peningunum sem ekki hafi átt að renna til þrotabúsins heldur beint til lánveitendanna. Dýrt fyrir ríkið að selja banka  Björgólfsfeðgar skulda enn vegna kaupa á Landsbankanum árið 2003  Ríkisbankarnir fjármögnuðu kaup nýrra eigenda að stórum hluta  Samson skuldar stórum og smáum lífeyrissjóðum milljarða Skrifað undir Samson keypti 45,8 prósenta hlut í Landsbankanum 2003. Lán vegna kaupanna hafa ekki verið greidd. Morgunblaðið/Kristinn Íslensku ríkisbankarnir fjár- mögnuðu kaup á þeim með lán- um til nýrra eigenda. Óljóst er hvernig um sex milljarða skuld Samsonar við Nýja Kaupþing verður gerð upp. Skuld Samsonar við Nýja Kaup- þing má rekja til haustsins 2002 þegar kaupsamningur vegna kaupa á 45,8 prósenta hlut í Landsbankanum var undirritaður. Kaupverðið var greitt til ríkisins árið 2003, með lánsfé frá Bún- aðarbankanum og svo peningum. Í kaupsamningnum kom fram að eigið fé í kaupunum þyrfti að lág- marki að vera 35 prósent. Eigið fé Samsonar í viðskiptunum var hins vega um 50 prósent, sé mið tekið af ársreikningi félagsins fyrir árið 2003. Félagið tók 3,4 ma. króna lán fyrir um 30 prósent kaupverðs- ins. Fé erlendis frá, sem að mestu var fengið með sölu á bruggverk- smiðjum í Rússlandi til Heineken fyrir 400 milljónir dollara, var því um 70 prósent af heildargreiðslu Samsonar til ríkisins. Finnur Sveinbjörnsson, banka- stjóri Nýja Kaupþings, vildi ekki tjá sig um samskipti bankans við skuldara hans. Bar hann fyrir sig trúnaði, en staðfesti að enn væri ósamið um skuldirnar. Engar skuldir hefðu enn verið afskrifaðar og engin afstaða verið tekin til þess hvað yrði gert. Á endanum mun stjórn bankans taka afstöðu til þess hvort skuld- irnar verða afskrifaðar eða um þær samið með öðrum hætti. Um 70 prósent af kaupum með eigin fé Morgunblaðið/Golli Kaupþing Skuldir Samsonar hafa ekki enn verið afskrifaðar. ÖLVUNARAKSTUR er þriðja al- gengasta orsök banaslysa í um- ferðinni á Íslandi. Í skýrslu RNU kemur fram að rannsóknir séu al- mennt samdóma um að 0,5 pró- milla áfengismagn í blóði hafi veruleg áhrif á aksturshæfni. Refsimörk vegna ölvunarakst- urs á Íslandi eru 0,5 prómill og al- gengt að ökumenn nýti þetta gráa svæði sem réttlætingur fyrir neyslu. Ölvaða ökumenn segja þannig oft við lögreglu að þeir hafi talið óhætt að keyra eftir 1-2 bjóra. RNU telur því ástæðu til að breyta refsimörkunum og lækka áfengisviðmiðið úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill. Rannsóknir sýni að slysahætta aukist þrefalt séu öku- menn með milli 0,2 og 0,4 pró- milla áfengismagn í blóðinu. Gráu svæði í áfengisneyslu verði útrýmt Morgunblaðið/Júlíus Banvænt Frá 1998 til 2008 létust 40 manns vegna ölvunaraksturs NÝJA Kaupþing sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem bankinn ítrek- aði að starfsmönnum, bankastjóra eða stjórn væri óheimilt að tjá sig opinberlega um málefni einstakra viðskiptavina. Þá sagði í tilkynn- ingu frá bankanum að starfs- mönnum hans hefði verið ógnað, vegna fjölmiðlaumræðu um lán Björgólfsfeðga. Meðal annars bár- ust hótanir með tölvubréfi til Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra.Í- trekaði bankinn í tilkynningu að engar skuldir hefðu verið afskrif- aðar og ekki væri búið að taka af- stöðu til tilboðsins. Starfsmönnum ógnað vegna afskriftarumræðu Björgólfur Thor Björgólfsson Björgólfur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.