Morgunblaðið - 09.07.2009, Qupperneq 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
8 9 7
8 4 1
3 1 8 6
6 7
5
2 8 4
5 1 6 4 2
3 6 9
6 8 2
3 4 7 8
5
5 3 2
9 6
1 7
8 1 3 4
7 4 6 5
7 4
7 8 6 2 5
6 5
4 6 2
9 8
7 8 5 1
8 7 1
3 2 8 5
2 6
7 3 1 6 9 8 2 5 4
9 6 8 2 4 5 3 1 7
4 2 5 3 1 7 8 9 6
2 8 3 1 5 6 7 4 9
6 1 7 4 2 9 5 8 3
5 4 9 8 7 3 6 2 1
3 7 4 9 8 2 1 6 5
8 9 6 5 3 1 4 7 2
1 5 2 7 6 4 9 3 8
5 6 7 1 8 9 2 4 3
4 9 1 6 3 2 5 7 8
2 3 8 4 7 5 6 1 9
6 1 4 2 9 3 7 8 5
8 5 3 7 1 6 4 9 2
7 2 9 5 4 8 3 6 1
3 4 2 9 6 1 8 5 7
9 8 6 3 5 7 1 2 4
1 7 5 8 2 4 9 3 6
7 1 9 6 8 4 2 5 3
8 3 6 5 1 2 4 9 7
5 4 2 3 9 7 6 8 1
1 2 5 8 7 6 3 4 9
4 6 7 2 3 9 8 1 5
3 9 8 1 4 5 7 2 6
2 7 4 9 5 3 1 6 8
6 5 1 7 2 8 9 3 4
9 8 3 4 6 1 5 7 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 9. júlí,
190. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Lækna mig Drottinn, að
ég megi heill verða; hjálpa mér, svo að
mér verði hjálpað, því að þú ert minn
lofstír. (Jer. 17, 14.)
Sagt var frá því í blöðunum í vor aðnú væri kjörinn tími til að sinna
viðhaldi húsa og ráðast í viðgerðir
sem setið höfðu á hakanum vegna
annríkis iðnaðarmanna. Nú þegar
engar stórframkvæmdir væru fram-
undan hefðu þeir tíma fyrir smáverk-
in, sem margir fúlsuðu við áður. Ekki
aðeins þýddi fjöldi atvinnulausra
verkamanna að auðveldara væri að fá
einhvern í verkin heldur væri það
hægt á hagstæðari kjörum en áður.
Það hefur hinsvegar komið í ljós að
sökum fyrrnefnds annríkis og hrað-
ans sem áður var í byggingar-
geiranum hefur fjöldi galla fundist í
byggingum og hafa iðnaðarmenn, þá
sérstaklega múrarar samkvæmt ný-
legum fréttum, í nógu að snúast með
að lagfæra hús sem byggð voru síð-
ustu árin. Óneitanlega minnir þetta á
það uppbyggingarstarf í efnahags-
málum sem nú þarf að fara í gang eft-
ir óráðsíuna og græðgina sem víða
var að finna fyrir ekki svo löngu. Að
finna iðnaðarmenn á lausu er því ekki
eins auðvelt og ætla mætti.
x x x
Ástæðan fyrir því að Víkverjirausar nú um húsaviðgerðir er
sú að málshátturinn Sjaldan er ein
báran stök er honum afar hugleikinn
um þessar mundir. Nýlega þurfti að
skipta um klóakrörið í öllu húsi Vík-
verja enda frá tímum síðari heims-
styrjaldar og fyrr í sumar var þakið
tekið í gegn – það var einnig frá svip-
uðum tíma. Þegar upp á þakið var
komið uppgötvaðist að steyptur þak-
kantur var afar illa farinn (gangi Vík-
verja vel að finna múrara í verkið) og
að viðurinn í gluggapóstunum væri
svo illa farinn að skipta þyrfti um
sem fyrst. Hver viðgerðin rekur aðra
og Víkverji óttast að sjá ekki fyrir
endann á þessu öllu saman. Hvað
ætli gerist næst?
x x x
Báran er svo sannarlega sjaldanstök og þó ekki sé útséð um
hvort fleiri viðgerðir bíði Víkverja
vonar hann að fleiri efnahagsbárur
skelli ekki fullum þunga á landinu –
nóg hefur gengið á nú þegar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 yfirbragð, 4
misseri, 7 flík, 8 ber
ábyrgð á, 9 elska, 11
hóta, 13 bein, 14 hetja,
15 lappa upp á, 17 týna,
20 skar, 22 opnar vatni
leið, 23 sjúkt, 24 land-
spildu, 25 líffærin.
Lóðrétt | 1 rúmsjó, 2
tuskan, 3 frumstætt ljós-
færi, 4 himna, 5 krama, 6
bölva, 10 sárkaldur, 12
keyra, 13 skynsemi, 15
hranaleg, 16 heimskingi,
18 svarar, 19 ójafnan, 20
lof, 21 ógæfa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 stagbætir, 8 stýra, 9 teigs, 10 fáa, 11 meina, 13
renna, 15 hress, 18 snæða, 21 kát, 22 kalla, 23 alinn, 24
einfaldur.
Lóðrétt: 2 trýni, 3 grafa, 4 æstar, 5 iðinn, 6 ósum, 7
aska, 12 nes, 14 ern, 15 haki, 16 efldi, 17 skarf, 18 stagl,
19 ætinu, 20 Anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Rc3 Rf6 6. Bc4 e6 7. Bb3 b5 8.
O-O Be7 9. f4 b4 10. Rce2 Rxe4 11. f5
e5 12. Bd5 Ha7 13. Bxe4 exd4 14.
Dxd4 Hc7 15. Dxg7 Bf6 16. Dg4 Rd7
17. Rf4 Bd4+ 18. Kh1 Rf6 19. Df3 O-O
20. Rh5 Rxh5 21. Dxh5 f6 22. Bh6 He8
Staðan kom upp á helgarskák-
mótinu á Ísafirði/Bolungarvík sem fór
fram árið 1980. Jóhann Hjartarson
hafði hvítt gegn Ægi Páli Friðberts-
syni. 23. Bc6! Hee7 24. Dg4+ Kh8 25.
Dxd4 Hxc6 26. Dxf6+ Kg8 27. Hae1
Hcc7 28. He3 og svartur gafst upp
enda fátt til varnar. Jóhann var 17 ára
þegar skákin var tefld en þetta sama
ár varð hann bæði Íslandsmeistari í
skák og hraðskákmeistari Íslands.
Hann átti síðar eftir að verða stór-
meistari og stigahæsti skákmaður Ís-
landssögunnar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gulrótarbragðið.
Norður
♠Á76
♥K8
♦K10976
♣1064
Vestur Austur
♠G9 ♠10854
♥G10976 ♥54
♦Á2 ♦543
♣KG75 ♣Á932
Suður
♠KD32
♥ÁD32
♦DG8
♣D8
Suður spilar 3G.
Á þeim tíma mannkynssögunnar
þegar asnar voru farartæki voru gul-
rætur notaðar sem „cruise control“ –
til að halda dýrinu stöðugu á veginum.
Nú eru gulrætur mest notaðar við
spilaborðið. Suður fær út ♥G gegn 3G.
Samhliða því að sækja tígulásinn
þarf einhvern veginn að sannfæra
vörnina um að halda sig við hjartalit-
inn. En þetta er varla rétti tíminn til að
spila laufi í fælingarskyni. Skárra er að
taka á ♥K og spila tígli á drottningu.
Ef vestur reiknar með ♦G hjá makker
sínum gæti hann freistast til að halda
áfram með hjartað. Og þó.
Nei, það þarf gilda gulrót í þetta
verkefni. Best er að taka á ♥K og
leggja drottninguna undir heima! Spila
svo tígli. Vestur býst við ♥ÁD tvíspili
og verður fljótur að þruma út öðru
hjarta.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hressandi nærveru hrútsins er
óskað á mannamóti. Allt sem þú gerir til
að lífga upp á heimilið kemur sér mjög
vel.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér finnst þú ekki nógu opin/n
þessa dagana. Vertu uppörvandi í sam-
skiptum við aðra. Stattu hins vegar fast
á þínum rétti hvað sem á dynur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stundum er hvorki staður né
stund fyrir gamansemi og ekkert er eins
óheppilegt og að segja brandara á
skökku augnabliki.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú vekur meiri athygli í sam-
félaginu en venjulega um þessar mundir.
Njóttu afrakstursins áhyggjulaus.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sýndu samstarfsmönnum þínum
skilning þegar vinnuáætlanir þeirra falla
ekki alveg saman við þínar. Leitaðu ráða
hjá vini um hvað gera skuli í framhald-
inu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert óvenju viðkvæmur þessa
dagana. Forðastu ákvarðanir í stórum
málum og umfram allt reyndu að ná
jarðsambandi aftur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ástvinir þínir elska klikkaðar hug-
myndir eins og þú. Ef þú verður svo
heppin/n að grípa þær og halda áfram
opnaðu hjarta þitt fyrir möguleikunum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ferill þinn mun ná hámarki
á næstu árum. Gerðu frekar eitthvað
sem gefur þér sanna lífsfyllingu og gleði
og gakktu brosandi til allra þinna verka.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér væri hollt að hlusta á
fjármálaráðleggingar fagmanna. Gerðu
allt sem þú getur til þess að bregða út af
vananum í dag.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú skalt hafa það markmið
þennan mánuðinn að vera skýr í sam-
skiptum. Ef þú lætur óttann ekki ná tök-
um á þér mun allt fara vel.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Að segja að þú sért fylginn
þér eru engar ýkjur. Fáðu hlutlausan að-
ila til aðstoðar því hann sér málið öðrum
augum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það kæmi sér betur fyrir þig að
leyfa öðrum að ráða ferðinni og halda
þér til hlés um tíma. Einhver ókunnur
kemur með erindi sem þú þarft að
bregðast við.
9. júlí 1946
Skemmtigarðurinn Tivoli var
opnaður í Vatnsmýrinni í
Reykjavík. Þar voru meðal
annars bílabraut, hringekja,
parísarhjól og danspallur.
Starfseminni var hætt árið
1964.
9. júlí 1976
Mesti hiti í Reykjavík á tutt-
ugustu öld, 24,3°C, mældist
þennan dag. Hitinn var meiri
en tuttugu stig frá hádegi og
fram á kvöld. Aðalfyrirsögn
Vísis daginn eftir var: „Íslensk
hitabylgja.“ Metið var slegið í
ágúst 2004 og aftur í lok júlí
2008.
9. júlí 1994
Síldarminjasafn var formlega
opnað í Roaldsbrakka á Siglu-
firði, en safngripir höfðu um
skeið verið til sýnis í öðru
húsi. „Það ríkti hátíðarstemn-
ing á Siglufirði,“ sagði í Degi.
9. júlí 1998
Leikritið Hellisbúinn var
frumsýnt. Rúmu ári síðar
höfðu 57.106 leikhúsgestir séð
það, sem var aðsóknarmet hér
á landi.
9. júlí 2005
Fyrstu stúdentarnir voru út-
skrifaðir frá Menntaskólanum
Hraðbraut, eftir tveggja ára
nám.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„MAÐUR trúir þessu varla sjálfur,“ segir Jón Jóns-
son fiskifræðingur sem er níræður í dag og þakkar
móður sinni fyrst og fremst langlífið. „Hún varð 100
ára svo ég hef sennilega fengið genin hennar.“
Jón starfaði sem forstjóri Hafrannsóknarstofn-
unar í 30 ár og var því í hringiðu þorskastríðanna á
sínum tíma. „Ég hafði ekki frið fyrir Mogganum í
gamla daga út af landhelgismálinu,“ segir hann og
hlær. Hann sótti svo um að hætta í starfi 65 ára. „Ég
sagði við ráðherrann að ég vildi heldur skrifa bæk-
ur en reikninga.“ Jón stóð við stóru orðin því eftir
hann liggur m.a. saga hafrannsókna á Íslandi í
tveimur bindum og rit um fiskveiðar við Ísland frá 1300 til 1900.
Eftirminnilegasta afmælið segir Jón hafa verið þegar hann varð átt-
ræður. „Þá heimsótti ég dóttur mína í Þýskalandi sem bauð mér á
einkasýningu á „Dinner for one“. Það er frægur einleikur um greifafrú
sem býður vinum sínum í áttræðisafmælið sitt en gallinn er að þeir eru
allir dánir. Þjónninn hennar leggur samviskusamlega á borð fyrir alla
og neyðist til að skála fyrir þeirra hönd við frúna, og verður býsna
drukkinn fyrir vikið.“ Jón segist heldur betur hafa getað hlegið að
þessu á eigin áttræðisafmæli. „Þetta var stórkostleg skemmtun.“
Jón Jónsson fiskifræðingur er níræður í dag
Drukkinn þjónn vakti bros
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is