Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 9

Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 38-56 Svartar buxur kvart, síðar og kakí Flauelsbuxurnar eru komnar Laugavegi 84 • sími 551 0756 Hæðasmára 4 • 201 Kópavogur Sími 555 7355 • www.selena.is Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. ÚTSÖLULOK Enn meiri verðlækkun 15% aukaafsláttur af útsöluvörum Eddufelli 2, sími 557 1730 Opið virka daga kl. 10-18. Allra síðustu dagar útsölunnar í Eddufelli 1.000 k r. 2.000 k r. 3.000 kr. TVEIR FYRIR EINN AF ÚTSÖLUVÖRUM BARA Í DAG Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 • www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 ALMANAK HÍ 2010 Komið í verslanir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HÚSBYGGJANDI, sem ekki vill láta nafns síns getið, þurfti að kalla til lögreglu svo undirverktaki rifi ekki fullgert þak af einbýlishúsi sem húsbyggjandinn er að byggja á höf- uðborgarsvæðinu. Húsbyggjandinn hafði ráðið verktaka til að byggja húsið og skila því á ákveðnu bygg- ingarstigi. Hann kveðst hafa borgað verktakanum samkvæmt samningi. Verktakinn hafði hins sleppt því að borga undirverktakanum sem gekk frá þakinu. Sömuleiðis þurfti hús- byggjandinn að tvíborga hluta af gluggabúnaði hússins. Húsbyggjandinn kvaðst hafa séð sig tilneyddan til að rifta samn- ingnum við verktakann. „Þegar ég sá að hann réði ekki við að klára þetta og allt var búið að vera stopp í tvo mánuði rifti ég samningnum,“ sagði húsbyggjandinn. „Húsið var ekki komið á það stig sem ég var í raun þegar búinn að borga fyrir.“ Húsbyggjandinn fór svo út á land með fjölskyldu sinni og meðan þau dvöldu þar hringdi nágranni úr nýja hverfinu. „Hann sagði að það væri verið að rífa þakið af húsinu okkar,“ sagði húsbyggjandinn. Hann hringdi um- svifalaust í lögreglu og lögfræðing sinn. Þegar komið var á staðinn var þar mannskapur með krana og var byrjaður að rífa upp þakið. Á húsinu er steinsteypt þakplata og þar ofan á einangrun, dúkur og svo möl. Þetta lið reyndist vera á vegum undir- verktakans sem gekk frá þakinu. „Undirverktakinn taldi sig vera í fullum rétti því hann hafði samið þannig við verktakann minn að ef hann hefði ekki fengið greiðslu eftir þrjá mánuði mætti hann fjarlægja þakið. Þennan sama morgun hafði hann hringt í verktakann minn sem þá var farinn af verkinu. Hann sagð- ist ekki geta greitt þakverktakanum sem mætti bara fara og fjarlægja þakið!“ Húsbyggjandinn sagði að þegar þakverktakanum varð ljóst að sá sem ekki borgaði hafði ekki verið að byggja fyrir eigin reikning heldur fyrir blásaklaust fólk hafi hann iðr- ast þess að skemma þakið. „Það voru komin um þrjátíu göt í dúkinn. Maðurinn bætti það allt saman og ég vona að þakið verði jafn gott,“ sagði húsbyggjandinn. Tvíborgaði hluta af efninu Verktakanum var sagt upp með bréfi og í því ítrekað að hann mætti ekki fjarlægja efni á byggingarstað sem ætlað væri í húsið. „Verktakinn lét samt gluggaverksmiðjuna koma og sækja allt efni frá þeim sem ekki var búið að setja í. Það voru m.a. rúður, rammar og gluggalistar,“ sagði húsbyggjandinn. „Ég fór í verksmiðjuna og samdi um að ég myndi kaupa af þeim allt sem hafði verið pantað en ekki afhent, aðallega hurðir. Ég hét því að borga fyrir það þótt ég væri í rauninni að borga það í annað sinn upp á að þeir myndu skila mér öllu hinu sem hafði verið tekið til baka. Þeir skiluðu bara því sem hafði verið sérsniðið í húsið en ekki gluggalistunum.“ Verktaki ætlaði að rífa þak af nýbyggðu húsi  Húsbyggjandi þurfti að kalla til lögreglu til að stöðva verknaðinn  Undirverktakinn hafði ekki fengið borgað Morgunblaðið/Kristinn Nýbyggingar Verktaki sem einstaklingur réði til að byggja fyrir sig ein- býlishús stóð ekki í skilum. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint. TVEIR karlmenn, ákærðir fyrir að hafa kveikt í húsi á Kleppsvegi 102 hinn 6. júní síðastliðinn, voru í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir til fangelsisvistar. Annar maðurinn í 3 ár og sex mánuði og hinn í 2 ár. Þriðji sakborningurinn var sýkn- aður. Jón Kristinn Ásgeirsson, 23 ára, var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir íkveikju og fyrir að aka á ungan mann á Laugavegi í janúar síðastliðnum. Jón Kristinn var dæmdur til að greiða unga manninum 2 milljónir króna í bætur og einnig hátt á aðra milljón króna í málskostnað. Ungi maðurinn hlaut alvarlega áverka og mun samkvæmt lækn- isvottorði aldrei ná sér að fullu. Jón Kristinn var að auki sviptur ökuréttindum ævilangt en hann var ölvaður þegar hann ók á manninn. Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, 31 árs, var dæmdur í 2 ára fangelsi fyrir aðild að íkveikjunni á Klepps- vegi en þriðji maðurinn var sýkn- aður. Ofsaakstur og íkveikja Eftir aðalmeðferð íkveikjumáls- ins við Kleppsveg hinn 31. júlí síð- astliðinn var atburðarásin orðin ljós. Mennirnir þrír voru staddir á skemmtistaðnum Goldfinger þegar þeir ákváðu að koma við á Klepps- vegi 102, en ástæða þess er ekki ljós. Þá barst lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu tilkynning frá öku- manni sem varð vitni að ofsaakstri á Sæbraut. Ekið var yfir á rauðu ljósi, ógætilega og hratt. Lögregla ætlaði að bregðast við en skömmu síðar barst tilkynning frá húsráðanda á Kleppsvegi 102. Hann bað um aðstoð lögreglu við að fjarlægja þrjá menn úr garði sínum. Nokkrum mínútum síðar barst þriðja tilkynningin. Í þetta skipti frá íbúa við Langholtsveg sem horfði á mennina þrjá kveikja í úti- dyrahurð hússins á Kleppsvegi 102. Dæmdir fyrir íkveikju á Kleppsvegi Hulinn Einn sakborninga ásamt verjanda sínum. Allir sakborningar voru viðstaddir og tveir þeirra huldu andlit sín áður en haldið var í réttarsalinn. Annar mannanna hlaut þriggja og hálfs árs dóm og hinn tveggja ára dóm AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl. og formaður Húseigendafélags- ins, sagði að menn sem ættu peningakröfu á hendur öðrum ættu að fara lögformlega leið við innheimtu hennar. Stefna og fá dóm fyrir henni í stað þess að fara og rífa hlutina sjálfir. Ger- tæki sé refsivert. „Ef þú ert bú- inn að láta einhvern fá hlut þá áttu peningakröfu á hann og átt að nota þau úrræði sem eru bundin við slíka kröfu,“ sagði Sigurður. Hann sagði að til væru óskráð- ar réttarreglur um viðskeytingu og smíði og þær byggðust m.a. á fræðikenningum og dóma- fordæmum um hvernig um eign- arréttinn færi. Sigurður taldi að það væri ólöglegt ef menn færu sjálfir á stúfana og tækju það sem búið væri að smíða. Hann sagði einnig að þegar harðnaði í ári og minna yrði af peningum gæfi augaleið að menn reyndu að ná sínu til baka með öllum tiltækum ráðum. Menn eiga að fara lögformlega leið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.