Morgunblaðið - 01.09.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
Jón Bjarnason sjávarútvegs-ráðherra hefur hrint í fram-
kvæmd loforði forvera síns á ráð-
herrastól og eigin flokksformanns,
Steingríms J. Sigfússonar og ráðið
Guðjón A. Kristjánsson fv. alþing-
ismann til sérstakra verkefna í sjáv-
arútvegsráðuneytinu.
Steingrímur J. hringdi í Guðjón A.eftir að ljóst var orðið að Guðjón
var fallinn af þingi og nefndi við
hann að ef hann yrði eitthvað lengur
í sjávarútvegsráðuneytinu væri
viðbúið að hann hóaði í hann.
Arftaki Steingríms hefur sem séhóað í Guðjón A. og ráðið hann
til starfa. Á heimsíðu ráðuneytisins
kemur fram að Guðjón Arnar muni
einkum sinna verkefnum sem snúa
að undirbúningi brýnna breytinga á
fiskveiðilöggjöfinni.
Ekki sér ráðuneytið ástæðu til þessað tilgreina í hverju þær breyt-
ingar eiga að vera fólgnar, enda hef-
ur ráðherrann skipað vinnuhóp
ólíkra hagsmunaaðila í sjávarútvegi
og dagskipan hans til vinnuhópsins
var sú að hópurinn skilaði einu áliti.
Á heimasíðunni segir orðrétt:„Guðjón Arnar Kristjánsson hef-
ur yfirgripsmikla þekkingu á ís-
lenskum sjávarútvegi og telur sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jón Bjarnason, sérstakan feng fyrir
ráðuneytið að fá að njóta starfs-
krafta hans og mikillar reynslu.“
Ugglaust allt satt og rétt, en tíminn
á svo eftir að leiða í ljós hvaða sam-
leið formaður Frjálslyndra á með
núverandi ríkisstjórn.
Jón
Bjarnason
Arftaki Steingríms hóar í Guðjón
Guðjón A.
Kristjánsson
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 12 léttskýjað Lúxemborg 26 heiðskírt Algarve 27 léttskýjað
Bolungarvík 5 rigning Brussel 27 heiðskírt Madríd 35 léttskýjað
Akureyri 7 rigning Dublin 15 skúrir Barcelona 27 skýjað
Egilsstaðir 8 rigning Glasgow 18 skúrir Mallorca 28 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað London 26 heiðskírt Róm 32 léttskýjað
Nuuk 5 skýjað París 30 heiðskírt Aþena 24 þrumuveður
Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 25 þoka Winnipeg 18 heiðskírt
Ósló 13 þoka Hamborg 24 heiðskírt Montreal 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað Berlín 25 heiðskírt New York 18 heiðskírt
Stokkhólmur 17 skýjað Vín 23 skýjað Chicago 19 léttskýjað
Helsinki 16 léttskýjað Moskva 17 skýjað Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
1. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.42 3,0 10.50 1,1 17.03 3,5 23.20 1,0 6:12 20:45
ÍSAFJÖRÐUR 0.46 0,8 6.41 1,7 12.47 0,7 18.58 2,0 6:09 20:57
SIGLUFJÖRÐUR 2.53 0,5 9.17 1,1 14.59 0,6 21.05 1,3 5:52 20:40
DJÚPIVOGUR 1.34 1,6 7.48 0,7 14.20 1,9 20.28 0,8 5:39 20:16
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Norðaustan- og austanátt, 3-8
m/s og dálítil rigning sunn-
anlands, en annars skýjað og
þurrt að kalla. Hiti 6 til 12 stig.
Á fimmtudag
Hæg norðlæg eða breytileg átt
og skýjað með köflum, en skýj-
að og dálítil rigning af og til
suðvestanlands. Hiti breytist
lítið.
Á föstudag
Sunnan- og suðaustanátt og
rigning sunnan- og vestanlands
en annars skýjað með köflum
eða bjartviðri. Hiti 8 til 14 stig.
Á laugardag og sunnudag
Sunnanátt með vætu, en þurrt
og víða bjart á Norður- og Aust-
urlandi. Milt í veðri, einkum
norðaustanlands.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Dregur úr vætu, úrkomulítið
síðdegis og styttir upp norð-
vestanlands. Hiti 5 til 15 stig,
hlýjast á Suðurlandi.
SPÁ um veðurfar þriggja næstu
mánaða, september til og með
nóvember, gerir ráð fyrir því að
fremur milt verði á landinu að
jafnaði þennan tíma. Heldur rign-
ingasamt um sunnanvert landið en
úrkoma ekki fjarri meðallagi norð-
antil.
Þetta kemur fram í veðurpistli
Einars Sveinbjörnssonar veð-
urfræðings. „Ef þessi spá gengur
eftir verður um að ræða ekki ólíkt
veðurlag og tvö síðustu tvö haust,“
segir Einar. Tvö síðustu haust
voru fremur rigningasöm sunn-
anlands og vestan. Sérstaklega
var september í fyrra úrkomusam-
ur og var þá um metúrkomu að
ræða á sumum stöðum. Í Reykja-
vík rigndi 25 daga í september í
fyrra og mældist úrkoman 174
millimetrar, sem var aðeins tveim-
ur millimetrum undir úrkomumet-
inu frá árinu 1887.
Lægðagangur við landið
Veðurlagsspá frá Evrópsku
reiknimiðstöðinni (ECMWF) er að
þessu sinni óvenju skýr og sjálfri
sér samkvæm, að sögn Einars.
Spáð er háþrýstifráviki yfir Bret-
landseyjum og fremur lágum loft-
þrýstingi suður og suðaustur af
Hvarfi á Grænlandi. Slík þrýs-
tifrávik séu ákveðin vísbending
um lægðagang hér við land, ekki
endilega syrpu djúpra lægða, en í
það minnsta mun leið raka loftsins
af Atlantshafi liggja nærri Íslandi.
„Þá rignir vitanlega talsvert og
jafnvel mikið sunnanlands samfara
vindáttum á milli SA og SV, en
lengst af verður úrkomulítið norð-
an heiða,“ segir Einar. Það sé þó
ekki að sjá að þar verði sérlega
þurrt, enda sé það svo þegar lægð-
ir verða nærgöngular að norðan-
vindur kemur fyrir með úrkomu
einnig norðanlands. Einar segir að
ef þessi spá rætist séu það góð tíð-
indi fyrir vatnsaflsvirkjanir í land-
inu eftir frekar snautlegt úrkomu-
sumar. Þá fyllist öll uppistöðulón af
ríkulegum haustrigningum.
„Verulegar líkur eru á því að hit-
inn á landinu öllu verði yfir með-
allagi tímabilsins september til
nóvember,“ segir Einar.
Stíga varlega til jarðar
Fram kemur hjá Einari að
Breska veðurstofan sé búin að gefa
út sína haustspá. Í henni sé stigið
mjög varlega til jarðar eftir bomm-
ertu sumarsins, en góðviðrisspá
fyrir júní til ágúst gekk engan veg-
inn eftir. Á Bretlandi rigndi nefni-
lega nær látlaust í allt sumar. Nú
segir veðurstofan breska að haust-
mánuðirnir verði aðeins hlýrri en í
meðallagi á Bretlandseyjum og í N-
Evrópu en ekkert sé hægt að segja
um úrkomu.
„Þriggja mánaða veðurlagsspár
gefa til kynna meðalveðurlag og
innan þess rúmast talsverður
breytileiki eins og gefur að skilja,“
útskýrir Einar. sisi@mbl.is
Úrkoma Sunnlendingar þurfa vænt-
anlega að bregða regnhlífum á loft.
Morgunblaðið/Jim Smart
Spáir mildu hausti
en votviðri syðra
Ekki ólíkt
veðurlag og tvö
síðustu haust
SKÓGRÆKT ríkisins fékk fyrir
helgi afhenta þrjá viðarvagna sem
nýta á til útkeyrslu á timbri í hinu
mikla grisjunarátaki sem nú stend-
ur yfir. Geta vagnarnir borið allt að
11 tonnum af timbri og veitir ekki
af því á næstu mánuðum er áætlað
að aka út um 2.000 tonnum af viði.
Skógrækt ríkisins hefur í sumar
þegar boðið út um tíu grisj-
unarverkefni og mun það vera
meira en nokkru sinni fyrr. Grisjað
verður m.a. í Hallormsstað, Skorra-
dal, Þórðarstaðaskógi, Haukadals-
skógi, Þjórsárdal og á Stálpa-
stöðum.
Viðarvagnarnir voru keyptir hjá
Búvélum Jötni á Selfossi og eru
finnskar að gerð, Nokka. Er krani á
vögnunum sem lyftir timbrinu í og
af þeim. Eldri gerð af Nokka-
timburvagni hefur verið til á Hall-
ormsstað um árabil og reynst vel,
segir á skogur.is. aij@mbl.is
Viðarvagnar keyptir
fyrir grisjunarátak