Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 11

Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 Verðsssprengja! MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG Ýsuflök m. roði 1.140,- Ýsuflök, roðl. og beinl. 1.280,- Þorskflök m. roði 1.140,- Rauðsprettuflök 1.090,- Bleikjuflök 1.490,- Raspaðir ýsubitar 1.280,- Reykt ýsa 1.470,- Fiskibollur 1.090,- Plokkfiskur 1:090,- Sigin grásleppa 1.190,- Gellur –nýjar og nætursaltaðar 1.340,- Kinnar –nýjar og nætursaltaðar 1.340,- Marineruð löngusteik 1.090,- Steinbítssteikur 1.190,- – Parmesan – Indversk – Sinneps & grasl. – Karrý og kókos – Béarnaise Ýsaísósu:1.150,- FLÖK STEIKUR ÝMISLEGT HEITUR MATUR Í HÁDEGINU Matseðill dagsins Soðin ýsa m. hamsatólg og kartöflum Pönnusteikt bleikja m. kryddjurtarjóma, hrísgrjónum og salati Ekta plokkfiskur m. rúgbrauði og tilheyrandi Djúpsteiktur fiskur, kartöflur, sósa og salat Nr.1 Bjóðum kaffi og “meððí”milli kl. 16 og 19 mánud. og þriðjud. Gildir á meðan birgðir endast! Nr.2 Nr.3 Nr.4 Bryggjuhúsið, Höfðabakka 1, 110 Reykjavík • Opið virka daga frá 10:00 - 19:00 • Sími: 587 5070 VIÐ GULLINBRÚ Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is „HLUTVERK þessa vinnuhóps er fyrst og fremst að fara yfir löggjöf- ina eins og hún er hjá okkur og bera hana saman við tilsvarandi lög- gjöf hjá ná- grannalöndum okkar, t.d. Dan- mörku og Nor- egi,“ segir Jóns Bjarnason sjáv- arútvegs- og landbún- aðarráðherra um skipan vinnu- hóps, sem endurskoðar núgildandi jarða- og ábúðarlög. Eins og fram kom í blaðinu sl. laugardag, hefur stjórn Lands- samtaka landeigenda á Íslandi gagn- rýnt skipan vinnuhópsins. Telja landeigendur að engin ástæða sé til þess að breyta gilandi lögum og vilja að viðskiptafrelsi ríki áfram á mark- aði fyrir bújarðir líkt og með fast- eignir yfirleitt. Jón Bjarnason segir að umræður um fæðu- og matvælaöryggi þjóða séu mjög í deiglunni um þessar mundir. Bendir hann í því sambandi á greinar í nýjasta Bændablaðinu, sem hann hvetur alla til að lesa. Þar sé t.d. að finna þýdda grein úr er- lendu blaði um þá hörðu baráttu sem er um ræktunarland víða í heim- inum. Einnig komi þar fram að Al- þjóða viðskiptastofnunin, WTO, telji það forsendu nýrrar stefnu, að hvert land hafi rétt og skyldur til að geta brauðfætt þegna sína. Því telji hann tímabært, einmitt núna, að láta skoða þessi mál. Jón telur eðlilegt, að landeigendur komi sínum sjón- armiðum á framfæri, en áréttar að þessi vinna sé rétt að fara af stað. Búnaðarþing 2008 samþykkti ályktun, þar sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var hvattur til að skipa nefnd sem fengi það hlut- verk að finna leiðir til þess að tryggja varðveislu góðs rækt- unarlands til framtíðar. Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra, skipaði nefnd um þetta málefni í des- ember sl. undir forystu Þórólfs Hall- dórssonar, sýslumanns í Keflavík. Var hlutverk nefndarinnar „að meta hvort þörf sé á að endurskoða ákvæði laga í þeim tilgangi að tryggja betur en nú er, að land sem nýtanlegt er til matvælaframleiðslu verði ekki tekið til annarra nota með varanlegum hætti.“ Að sögn Jóns Bjarnasonar er von á áliti nefndarinnar áður en langt um líður og muni nýskipaður vinnu- hópur hafa álitið til hliðsjónar í störfum sínum. Þá kom fram hjá Erni Bergssyni, formanni Landssamtaka landeig- enda, gagnrýni á það hverjir skipuðu vinnuhópinn. Sagði Örn að flestir nefndarmenn væru flokksbræður landbúnaðarráðherrans. Jón Bjarnason sagði að vissulega væru tveir alþingismenn Vinstri grænna í vinnuhópnum, þeir Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason. Sagði Jón að enginn gæti efast um fag- þekkingu þeirra. Atli væri virtur lögmaður og Ásmundur Einar bóndi. Bændasamtökin hefðu til- nefnd þrjá fulltrúa í vinnuhópinn og hann hafi ekkert skipt sér af því hvar það fólk stæði í pólitík. Ráðherra segir að matvæla- öryggi sé mjög í deiglunni Nefnd hefur skoðað varðveislu ræktunarlands og skilar áliti innan skamms Morgunblaðið/RAX Túnin slegin Baráttan um landið hefur verið í deiglunni, bæði hér heima og erlendis. Áhersla er lögð á það að hver þjóð geti brauðfætt þegna sína. Jón Bjarnason Í DAG tekur gildi reglugerð sem kveður á um að ferskar matjurtir í verslunum skuli merktar á um- búðum með upp- lýsingum um upprunaland. Sama á að gilda um vörutegundir úr ferskum matjurtum, þar sem þeim er bland- að saman og/eða þær skornar nið- ur. Þegar um er að ræða vöruteg- und, þar sem ferskar matjurtir hafa uppruna í fleiri en einu landi, skal tilgreina nafn hverrar matjurtar og upprunaland hennar á umbúðum. Bjarni Jónsson, framkvæmda- stjóri Sambands garðyrkjubænda, segir það fagnaðarefni að þessi reglugerð taki nú gildi. Þetta hafi verið baráttumál íslenskra garð- yrkjubænda lengi. Hann segir að allt íslenskt grænmeti sé rækilega merkt, og þá fyrst og fremst með fánalitunum. Hins vegar hafi verið brögð að því að innflutt grænmeti hafi ekki verið merkt uppruna- landi. Bjarni hvetur neytendur til að fylgjast vel með því að verslanir fari eftir hinni nýju reglugerð. „Ég verð með þeim fyrstu í búðirnar til að fylgjast með því að farið sé eftir reglunum,“ segir Bjarni. sisi@mbl.is Skylt að merkja matjurtir Reglugerð um upp- runaland tekur gildi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.