Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 19

Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 Mótmælt á Bessastöðum Dramatíkin lá í loftinu þegar aðstandendur kjosa.is afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, undirskrift níu þúsund Íslendinga þar sem forsetinn er hvattur til að neita að staðfesta frumvarpið um Icesave. Enda margar staðreyndir sem hrella hugann þegar hugsunin nær alla leið til endaloka afleiðinganna af opnun Icesave-reikninganna í Bretlandi og Hollandi. Kristinn EFTIR að hafa setið og beðið úrlausna fyrir hinn venjulega húsnæð- iseiganda og lántakanda frá því síðasta vetur er ég við það að gefast upp og ég vil að stjórnvöld viti af því. Ég hef fengið nóg af því að hlusta á fullkomlega skilnings- vana ráðamenn bulla í fjölmiðlum! Ég er ein af þeim sem stóðu á Austurvelli laug- ardag eftir laugardag í vetur og kröfðust nýrra stjórnvalda, ég hef verið ánægð með margt sem gert hef- ur verið, ég hef beðið þolinmóð eftir úrlausn minna mála og ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum í end- urreisn landsins. Ég var sammála þegar gripið var til aðgerða og pen- ingar settir inn í bankakerfið til að bjarga þar sparifé fólks, þó að ég ætti ekki krónu þar sjálf. Ég vildi ekki að neinn tapaði sparifénu sínu, ég vil heldur ekki að við hin sem átt- um ekki sparifé heldur lán töpum okkar og ég skil ekki af hverju stjórnvöld sjá það ekki. Lántakendur, þ.e. fólk með húsnæðislán, er líklega að stærstum hluta fólk milli 25 og 45 ára, fólkið sem er að koma sér upp heimili, er á fullu á vinnumarkaði, að ala upp börnin sín … fólkið sem greiðir skatta þessa lands og á skilið sömu leiðréttingu og hinir! Fjölmiðlar fjölluðu allir um ástand- ið á heimilum landsins í vetur, en síð- ustu vikur hefur farið minna fyrir því. Umræðan um afnám verðtryggingar hefur gjörsamlega gleymst eins sví- virðilegt og það kerfi nú er. Og nú er eins og fólkið með lánin sé að gleym- ast líka, ég segi viljandi fólkið með lánin en ekki skuldarar, því það erum við ekki, eins og ég skil það orð. Flest viðtölin sem við sáum í vetur voru þó við fólk í mjög slæmri stöðu. Fólk sem hefur misst atvinnu, hús- næði o.s.frv. Samúð mín er öll með þeim og ég er svo sannarlega með þeim aðgerðum sem þarf til að reisa við atvinnumark- aðinn og viðhalda fé- lagslegum úrræðum. En ég vil að rödd okkar hinna heyrist líka. Okkar sem erum ekki atvinnu- laus, okkar sem erum ekki enn komin í greiðsluþrot, en römbum á barminum. Ég er ein þeirra. Ég er enn í ágætri vinnu og mað- urinn minn líka, við erum ekki í van- skilum ennþá. Við höfum borgað sam- viskulega alla reikninga og gjalddaga í vetur þrátt fyrir himinháar vaxtatöl- ur og ört hækkandi greiðslubyrði, bæði á íslensku lánunum og þeim er- lendu. Við höfum reynt að draga saman seglin, það hefur þó ekkert verið mikið til að spara. Við lifum sparlega, förum svo til aldrei út að borða og eigum hvorki flatskjá né Bens. Við keyrum um á Skoda, búum í íbúð með – að því er við héldum hagstæðum lánum – en við borgum um hver mánaðamót og það sér ekki högg á vatni. Lánin bara hækka og hækka, bæði hefðbundna verðtryggða húsnæðislánið og „litla“ erlenda lánið sem við tókum þegar við keyptum fyrir þremur árum – eftir að hafa þegið ráðgjöf frá bankanum. Við fór- um einmitt í greiðslumat hjá sama banka og komum mjög vel út, þótt- umst eiga vel fyrir öllum afborgunum og sumarleyfunum líka næstu árin. Við vorum ekki að taka neina áhættu, það stóð aldrei til. Við keyptum okk- ur íbúð með „hagstæðum“ verð- tryggðum lánum og fórum eftir öllum ráðleggingum bankanna! Einmitt þess vegna sitjum við í súpunni í dag. Er það sanngjarnt? Ég hef heyrt suma segja að þeir sem eru í greiðsluerfiðleikum séu bara vitleysingar sem hafa tekið alltof há lán og tekið áhættu sem þeir eigi bara að gjalda fyrir núna. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði eitthvað í þessum dúr sjálfur í sjón- varpinu í vor (4. maí), „bankarnir áttu aldrei að veita þessi lán og fólk átti aldrei að taka þau!“ … Það er svei mér auðvelt að vera vitur eftir á. Aðrar raddir segja mér að „þetta fólk“ sem sé í vandræðum með að borga eigi bara að leita til félags- málayfirvalda …! Ég segi nei, ég vil ekki þurfa að leita til félagsmála- yfirvalda. Ég hef enga ástæðu til þess, ég vil heldur ekki tilsjónarmann með mínum fjármálum. Ég hef full- komna stjórn á þeim, ég hef ekki gert neinar óraunhæfar áætlanir. Ég á ekki sök á því hvernig lánin mín líta út í dag, það eru bankarnir sem þurfa tilsjónarmanninn. Ég vil halda áfram að vera sjálfstæð og stolt, ég ætla ekki að láta brjóta mig niður og gera mig að skuldara fyrir lífstíð. Ég krefst þess einfaldlega að stjórnvöld grípi til aðgerða því ég og allir hinir sem eru í sömu stöðu komum okkur ekki sjálf í þessi vandræði og það er heila málið. Þetta eru ekki mín lán, þau skal ég greiða með glöðu geði eins og ég hef gert hingað til. Þessar upphæðir sem bankinn krefur mig um núna greiði ég ekki, einfaldlega vegna þess að ég sá aldrei þessa pen- inga. Eftir Sólveigu Sigríði Jónasdóttur » Þessar upphæðir sem bankinn krefur mig um núna greiði ég ekki, einfaldlega vegna þess að ég sá aldrei þessa pen- inga. Sólveig Sigríður Jónasdóttir Höfundur er mannfræðingur og er íbúðareigandi. Mér er nóg boðið – opið bréf til stjórnvalda Steypustöðin ehf. og forverar hennar hafa frá árinu 2000 átt far- sæl viðskipti við Aalborg Portland Íslandi ehf. Aal- borg Portland kom inn á íslenska markaðinn þar sem hafði ríkt ein- okun um langan tíma. Sementsverksmiðjan á Akranesi, sem þá var í eigu ís- lenska ríkisins, hafði þá verið ein á íslenskum sementsmarkaði frá stofnun hennar. Þessi nýja samkepnni var því kærkomin viðbót fyrir íslensk bygging- arfyrirtæki og húsbyggjendur almennt á Íslandi. Sementsverk- smiðjan á Akranesi var árið 2003 seld til einkaaðila og voru kaupendurnir Norcem í Noregi, Björgun, Framtak fjárfesting- arbanki og BM Vallá sem er aðalsamkeppnisaðili Steypu- stöðvarinnar. Það verður að segjast eins og er að það er ekki mjög aðlaðandi að kaupa hráefni af samkeppnisaðila sínum og þurfa svo að keppa við hann í verði á steypumarkaði. Það er þó svo að Steypustöðin hefur leitað til Sementsverksmiðj- unnar á Akranesi um verð á sementi undanfarið og nú síðast í janúar á þessu ári. Verðið sem Sementsverksmiðjan bauð Steypustöðinni var ekki sam- keppnishæft við það verð sem Aalborg Portland selur okkur sementið á og þess vegna var haldið áfram að versla við Aal- borg Portland. Einnig er rétt að benda á að þó að íslenska sementið sé orðið vel nothæft og búið að koma í veg fyrir ákveðna lesti á því með íblöndunarefnum, eru margir eig- inleikar danska sementsins eftirsóknarverðir. Má þar benda á að danska sementið hefur mjög lágt alkalíinnihald, brot- þolsstyrkur þess er hærri en á því ís- lenska, vatnsþörf er minni, hörðnun er hraðari og minna magn þarf per m2 til þess að ná sömu gæðum. Þetta eru að sjálfsögðu allt þættir sem nauðsynlegt er að skoða þegar ákvörðun er tekin um val á hrá- efni í framleiðslu okkar. Það er von okkar hjá Steypu- stöðinni að íslenskt sement á Akranesi komist yfir þessa brekku, sem allir á íslenskum byggingamarkaði þurfa að klífa um þessar mundir. Við erum þess fullvissir að samkeppni á sementsmarkaði sé komin til þess að vera og treystum á það að eigendur Sementsverksmiðj- unnar haldi áfram að selja sem- ent um ókomin ár, innlent og er- lent, eins og þeir hafa verið að bjóða hér á markaðnum á und- anförnum árum. Sannleikur um samkeppni Eftir Hannes Sigurgeirsson Hannes Sigurgeirsson »… það er ekki mjög aðlaðandi að kaupa hráefni af samkeppnisaðila sín- um og þurfa svo að keppa við hann í verði á steypumarkaði. Höfundur er forstjóri Steypustöðvarinnar ehf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.