Morgunblaðið - 01.09.2009, Page 33
SÉRSTAKUR flokkur á Alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem
stendur frá 17.–27. september, er til-
einkaður heimildarmyndum. Í Docs
In Focus má finna fjölbreyttar
myndir og margverðlaunaðar.
Fórnarlömb auðsins eftir Kal
Toure fjallar um ólöglega innflytj-
endur sem ferðast yfir Gíbralt-
arsund frá Marokkó til Spánar.
Efnispiltar er gerð af Kimberly
Reed og segir frá ferð hennar í
heimabæ sinn í Bandaríkjunum til
að taka þátt í útskriftarafmæli í
gamla skólanum eftir 20 ár. Þá var
hann stjarna í fótboltaliði skólans,
en lifir nú sem kona.
Kæri Zachary: Bréf til sonar um
föður hans gerði Kurt Koenne um
Andrew Bagby sem var myrtur af
kærustu sinni sem gekk þá með
barn hans.
Í Börnin í eldinum skráir Rajesh
S. Jala sögu sjö barna í Indlandi.
Fæddur handalaus eftir Eve Nor-
vind fjallar um leikarann og tónlist-
armanninn José Flores, sem fæddist
handalaus.
Í Gleymskunni eftir Heddy Hon-
igmann er sjónum beint að Perúbú-
um í Lima. Bill Rose fylgir eftir há-
skólaprófessor sem hefur upp á
gömlum nemanda í Orð í sandinn.
Persona non grata eftir Fabio
Wuytack fjallar um Frans Wuytack
sem var hundeltur byltingarmaður
og dáður listamaður.
Í Móðirin eftir Antoine Cattin og
Pavel Kostomarov er sögð saga
Lyubu, sem flýr undan ofbeldis-
fullum eiginmanni.
Gan Chao leitar svara við því
hvernig hlúð er að persónuleika
barna hjá kínversku íþróttahreyf-
ingunni í Rauða keppnin.
Í myndinni Burma VJ eftir And-
ers Østergaard segir frá hóp 30
fréttamanna í Búrma sem í laumi
kvikmyndar óréttlætið í landinu.
Ríki bróðirinn eftir Ins Onken
segir frá Ben sem hefur nýhafið feril
sinn sem atvinnuboxari.
Í Ófræging eftir Yoav Shamir eru
birtingarmyndir gyðingahaturs nú á
tímum skoðaðar.
Umoja: Þorpið þar sem karlar eru
bannaðir eftir Jean-Marc Sainclair
og Jean Crousillac segir frá þorpi í
Kenýa sem konur stofnuðu árið 1990
eftir að þeim var nauðgað af bresk-
um hermönnum og afneitað af eig-
inmönnum sínum í kjölfarið.
Daninn Janus Metz er með tvær
myndir, Ást í heimsendingu og Far-
seðill til Paradísar, sem segja báðar
frá konum frá Taílandi sem giftast
dönskum körlum.
Íslenska myndin Edie og Thea:
Óralöng trúlofun eftir Grétu Ólafs-
dóttur og Susan Muska segir frá 42
ára trúlofunarsambandi Edie og
Thea. Í Á vegum tvíkynhneigðra at-
huga Brittany Blockman og Josep-
hine Decker hvaða augum landar
þeirra líta tvíkynhneigð.
Í Sweethearts of the prison rodeo
eftir Bradely Beesley er fjallað um
kvenkyns fanga sem fara á kúreka-
sýningu. Sekur uns sakleysi er sann-
að eftir Roberto Hernández Ruiz er
saga um mann sem var rangur mað-
ur á röngum stað á röngum tíma.
Heimildarmyndum
gert hátt undir höfði
Ást í heimsendingu Segir frá taílenskum konum sem giftast Dönum.
Morgunblaðið/Eggert
Hjaltalín Leikur á Réttum.
MIÐASALA hefst í dag kl. 12 á tón-
leikaseríuna Réttir sem fer fram í
Reykjavík dagana 23.-26. september
í samvinnu við Reykjavik Int-
ernational Film Festival (RIFF) og
ýmsa þátttakendur í hinni al-
þjóðlegu You Are in Control-
ráðstefnu.
Lögð verður áhersla á íslenska
tónlist og fjölbreytni á Réttum. Með-
al þeirra tónlistarmanna og hljóm-
sveita sem koma munu fram eru
Mugison, Hjálmar, Hjaltalín, FM
Belfast, Agent Fresco, Dikta, Retro
Stefson, Bloodgroup, Sykur, Bernd-
sen, Sudden Weather Change og
Fallegir menn. Fleiri hljómsveitir og
listamenn verða kynnt til leiks á
næstu dögum og vikum. Tónleikarn-
ir verða á Nasa, Sódómu og Batt-
eríinu.
Miðasala hefst í dag og fer fram á
Midi.is og í verslunum Skífunnar.
3.500 kr. kostar á alla dagskrána en
miðar á stök kvöld kosta 2.000-2.900
kr.
Miðasala á Réttir hefst í dag
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
60.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
STÆRSTA BÍÓOPNUN Í ÁR!
YFIR 47.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
FRÁSAM RAIMI
LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN
MYNDANNA SEM ER Í TOPPFORMI Í SINNI
BESTU KVIKMYND TIL ÞESSA!
GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI:
ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100
LOS ANGELES TIMES- 100/100
WALL STREET JOURNAL - 100/100
WASHINGTON POST - 100/100
FILM THREAT - 100/100
20.000 MANNS
FRÁ FRUMSÝNINGU
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
HEIMURINN ÞARF
STÆRRI HETJURHHHH
– IN TOUCH
HHH
„HITTIR Í MARK.“
-S.V. MBL
30.000
MANNS FRÁ
FRUMSÝNINGU
HERE COMES THE BRIBE ...
THE
PROPOSAL
BÓNORÐIÐ
SANDRA BULLOCK
RYAN REYNOLDS
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:40 L
UP m. ensku tali kl. 8 - 10:20 L
G-FORCE m. ísl. tali kl. 6 L
THE PROPOSAL kl. 8 L
DRAG ME TO HELL kl. 10 :20 16
/ KEFLAVÍK
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 6 - 8 L
FUNNY GAMES kl. 10:10 18
THE PROPOSAL kl. 8 L
CROSSING OVER kl. 10:20 16
G - FORCE kl. 6 L
/ SELFOSSI
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 - 8 L
G.I. JOE kl. 8 - 10:20 12
THE PROPOSAL kl. 5:50 L
PUBLIC ENEMIES kl. 10:20 Sýnd í síðasta sinn 16
Eftir Dag Gunnarsson
dagur@mbl.is
HEYRST hefur að Birgir Örn Stein-
arsson betur þekktur sem Biggi í
Maus hafi samið texta fyrir Selfoss-
popparana í Skítamóral. Þótt ótrú-
legt megi virðast eru tuttugu ár síð-
an hljómsveitin Skítamórall var
stofnuð þó að meðlimir sveitarinnar
séu rétt skriðnir yfir þrítugt. Af því
tilefni efnir sveitin til tónleika sem
verða teknir upp og er meiningin að
gefa afraksturinn út bæði á afmæl-
isgeisladiski og dvd-mynddisk.
„Þetta á að verða svona jólapakka-
kandídat,“ sagði Arngrímur Fannar
Haraldsson, gítarleikari hljómsveit-
arinnar og umboðsmaður, um þessa
sjöundu skífu hljómsveitarinnar.
„Við leituðum til Bigga því við telj-
um hann vera mjög góðan textahöf-
und, hann brá skjótt við og þetta á
eftir að koma skemmtilega á óvart,“
sagði Arngrímur.
Skátar leysa hnúta
„Sálarflækjuskáti“ nefnist lagið
og verður það eina nýja lagið sem
flutt verður á tónleikunum en annars
verða spiluð eldri lög í nýjum útsetn-
ingum. „Textarnir hjá Skítamóral
voru gjarnan svona ástarsöngvar
þar sem mér og þér var látið ríma og
mig langaði að semja kannski aðeins
andlegri ástaróð fyrir þá,“ sagði
Birgir í stuttu spjalli. „Sálarflækju-
skáti“ mun vera ástaróður til æðri
máttarvalda. „Það er bara svona
smá gospel í þessu,“ sagði Birgir.
Arngrímur Fannar sagði að tón-
leikarnir yrðu haldnir 8. október í
Rúbín í Öskjuhlíðinni og að miðasala
hæfist nú í vikunni.
Um „Sálarflækjuskátann“ sagði
hann: „Þetta er nú titill sem við
myndum kannski ekki nota svona
alla jafna og við eigum eftir að taka
endanlega ákvörðun um heitið á lag-
inu en textinn fjallar um mann sem
er að reyna að leysa úr ýmsum hnút-
um í hans lífi og segist hann til dæm-
is sjá eftir því að hafa ekki verið öfl-
ugri í skátahreyfingunni á sínum
yngri árum til að ná að leysa þessa
hnúta.“
Þeir Skítamóralsmenn hafa und-
anfarið æft stíft fyrir tónleikana
ásamt hinum fjölmörgu gestum sem
þar munu koma fram, Samúel oft
kenndur við Jagúar mun stýra blás-
arasveit og Roland Hartwell
strengjasveit og Kristjana Stef-
ánsdóttir djasssöngkona og Stefán
Gunnlaugsson úr Buffinu munu taka
undir í bakröddunum þannig að ljóst
má vera að boðið verður upp á mikla
Skímó-veislu í Öskjuhlíðinni.
Biggi í Maus samdi
ástaróð við lag Skímó
Skímó Tuttugu ára hljómsveit.
Einn af skemmtilegri sér-
viðburðum Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í
Reykjavík í ár er „Mánu-
dagsmyndir – vídeókvöld
hjá leikstjórum“, en þá
blása þrír þjóðþekktir og
margverðlaunaðir ís-
lenskir kvikmyndaleik-
stjórar til vídeókvölds,
hver í sínu heimahúsi.
Leikstjórarnir eru þeir
Friðrik Þór Friðriksson, Hilmar
Oddsson og Ragnar Bragason.
Mánudagskvöldið 21.
september kl. 20 ætla
þeir að efna til óvissusýn-
ingar á bíómynd sem
hver þeirra velur sjálfur
en meira fæst ekki gefið
upp fyrr en myndirnar
hefjast sjálfar.
Takmarkaður fjöldi
miða er í boði. Hægt er
að kaupa miða á skrif-
stofu Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík og
gegnum síma 411 7015.
Vídeókvöld hjá leikstjórum
Friðrik Þór
Friðriksson