Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 15
Íbúafjöldi Peshawar er um 2,5
milljónir en borgin gegnir mikilvægu
hlutverki í baráttu hersins gegn tali-
bönum og stuðningsmönnum þeirra.
Tugþúsundir á flótta
Sameinuðu þjóðirnar áætla að um
180.000 óbreyttir borgarar hafi flúið
yfirráðasvæði talibana nærri landa-
mærunum að Afganistan og sest að í
Peshawar og nágrenni.
Handan landamæranna féllu
minnst sex starfsmenn SÞ í árás á
gistihús í afgönsku höfuðborginni
Kabúl. Óttast er að fleiri hafi fallið.
ríkjanna, til landsins en hún er æðsti
embættismaður stjórnar sinnar sem
sækir landið heim frá því að Barack
Obama varð forseti í janúar.
Líkt og í Afganistan hefur Banda-
ríkjastjórn lagt mikið undir í baráttu
sinni gegn hryðjuverkum í Pakistan,
þar sem 2.370 hafa látið lífið í
sprengjuárásum frá því í júlí 2007, að
sögn AFP-fréttastofunnar.
Þrátt fyrir óöldina fullyrða stjórn-
völd í Islamabad að talibanar eigi í
vök að verjast í héraðinu Suður-
Waziristan þar sem 30.000 manna lið
stjórnarhersins sæki að þeim.
Á SAMA tíma og fregnir af
ódæðinu í Peshawar fylltu
forsíður fréttavefjanna
greindi dagblaðið New
York Times frá því að Ah-
med Wali Karzai, bróðir
Hamids, forseta Afganist-
ans, hefði þegið greiðslur
frá Bandarísku leyniþjón-
ustunni (CIA) í um átta ár.
Blaðið hefur þetta eftir
fyrrverandi og núverandi
embættismönnum í Afganistan en
í frétt þess segir að málið setji
spurningarmerki við stefnu
Bandaríkjastjórnar í Afg-
anistan, enda sé Ahmed
Wali Karzai bendlaður við
ópíumsölu í landinu.
Uppljóstrunin bendi
þannig til að Bandaríkja-
stjórn sé ekki að gera nóg
í því að uppræta eitur-
lyfjaframleiðslu í Afgan-
istan, eina helstu tekju-
lind talibana, sem lýst
hafi forsetanum sem
strengjabrúðu CIA. Ahmed Wali
Karzai er m.a. greitt fyrir að ráða
hersveitir á mála hjá CIA.
Bróðir forsetans á mála hjá CIA
Ahmed Wali
Karzai
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
BRAKIÐ lá á víð og dreif og nær-
staddir leituðu í örvæntingu að fólki
sem komst lífs af eftir að öflug bíl-
sprengja sprakk á útimarkaði í pak-
istönsku borginni Peshawar í gær.
Heimamenn gruna talibana um
verknaðinn en enginn hefur lýst
ábyrgð á hendur sér.
Óttast er að tala látinna muni
hækka en síðdegis í gær var staðfest
að 92 hefðu beðið bana og 217 særst í
ódæðinu. Meðal hinna látnu voru
minnst 19 konur og 11 börn.
Tugir særðust í árásinni á mark-
aðinn, sem er sú mannskæðasta í
Pakistan í ár, en fjöldi kvenna og
barna var við sölubásana þar sem
meðal annars eru seld kvenföt.
„Það var gífurleg sprenging. Það
var reykur og ryk alls staðar. Ég sá
fólk deyja og öskra á götunni,“ sagði
sjónarvotturinn Mohammad Siddi-
que í samtali við AFP-fréttastofuna.
Hrina ódæðisverka
Mjög róstusamt er í Pakistan en á
undanförnum vikum hafa að minnsta
kosti 289 hermenn og óbreyttir
borgarar beðið bana í níu árásum frá
5. október síðastliðnum.
Ódæðið í Peshawar varpaði
skugga á opinbera heimsókn Hillary
Clinton, utanríkisráðherra Banda-
Blóðbað í Pakistan
Minnst 92 létu lífið í sprengjuárás á útimarkað í Peshawar
Hátt í 300 manns hafa fallið í árásum í Pakistan í október
Reuters
Örvænting Slasaður drengur er fluttur á brott frá útimarkaðnum þar sem bílsprengjan sprakk.
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009
FJÖLDI hermanna á vegum Banda-
ríkjahers og Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) sem fallið hefur í Afg-
anistan frá því að talibönum var
steypt af stóli haustið 2001 nálgast
nú 1.500 og hafa Bandaríkin misst
langflesta, eða rúmlega 900.
Eins og sjá má á súluritinu hér
fyrir ofan hafa aldrei jafnmargir
hermenn fjölþjóðaherliðsins fallið í
einum mánuði og nú í október.
Til samanburðar hafa 4.670 her-
menn Bandaríkjahers, breska hers-
ins og samstarfsríkja þeirra fallið í
Írak frá innrásinni vorið 2003.
Þar af hafa 4.352 bandarískir
hermenn látið lífið og hefur Banda-
ríkjaher því misst 5.257 hermenn í
Írak og Afganistan í hryðjuverka-
stríðinu. baldura@mbl.is
0
10
20
30
40
50
60
70
MANNFALL Í AFGANISTAN
Átta bandarískir hermenn féllu í sprengjuárás í suðurhluta Afganistans í fyrradag
í aðdraganda annarrar umferðar forsetakosninganna. Þar með höfðu aldrei jafn
margir bandarískir hermenn fallið í einum mánuði frá því að átökin hófust 2001.
Heimild: Reuters /icasualties
2002‘01 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
Frakkland*
36
Danmörk**
26
Spánn
26
Aðrar
þjóðir
108
Bretland
223
Bandaríkin
905
Kanada
131
Þýskaland***
36
Samtals
1,491
Mannfall í hersveitum NATO og Bandaríkjanna
í árásum og vegna slysa frá haustinu 2001 †
* Tölur frá franska hernum ** Tölur frá yfirstjórn danska hersins að einu sjálfsvígi meðtöldu *** Tölur frá
þýska varnarmálaráðuneytinu †Til og með 28. október
Júlí
2009
76
Mannfall í liði
Bandaríkjahers
í október †
54
Ágúst
2008
46
September
2006
38
Mannfall í fjölþjóðaher NATO/BNA
Mannfall í Bandaríkjaher
Aldrei jafnmargir fallið
VA LHÖL L BÁSAR
Mjúk kláðafrí ullarnærföt úr 100% Merino ull.
100% Merino ull sem heldur vel hita á
líkamanum og dregur raka frá húðinni.
fyrir börn fyrir fullorðna
Verð bolur: 5.800 kr.
Verð buxur: 4.500 kr.
Verð bolur: 10.500 kr.
Verð buxur: 9.100 kr.
Kláð
afrí
ull
Kláð
afrí
ull
SPÓI
Góð 100% Merino ullarnærföt sem halda
barninu þurru og hlýju.
fyrir ungbörn
Verð bolur: 3.200 kr.
Verð buxur: 2.800 kr.
Kláð
afrí
ull
Opið hús í Ingunnarskóla, þriðjud. 27. október, kl. 17.00 - 18.30
Umræður um framtíðarskipulag í þínu hverfi
Vinnuhópar með aðferðum Air Opera.
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, kynnir stuttlega
vinnu við nýtt aðalskipulag áður en umræður hefjast.
Hugmyndasmiðja
Hugmynda- og teiknivinna með
ungum arkitektum.
Vinnustofa fyrir börn
Undir stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík.
www.adalskipulag.is