Morgunblaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 9 7 9 1 4 2 4 8 9 7 1 6 4 2 8 5 3 8 9 3 6 4 9 4 2 1 3 9 5 8 6 6 2 3 5 2 6 3 1 3 1 1 4 4 5 9 5 8 7 9 7 5 7 5 3 8 9 7 3 5 9 3 2 6 1 1 6 4 4 6 8 1 7 5 4 3 6 8 9 2 1 9 3 2 5 7 1 8 6 4 6 8 1 9 2 4 5 3 7 8 2 5 1 9 6 7 4 3 4 6 7 8 3 2 1 9 5 3 1 9 4 5 7 2 8 6 1 4 6 7 8 9 3 5 2 2 9 3 6 1 5 4 7 8 5 7 8 2 4 3 6 1 9 3 1 9 5 8 2 4 6 7 5 2 4 7 6 9 3 1 8 7 6 8 1 4 3 5 9 2 8 4 3 2 9 1 7 5 6 1 5 7 4 3 6 8 2 9 2 9 6 8 5 7 1 4 3 4 3 2 9 1 8 6 7 5 6 7 1 3 2 5 9 8 4 9 8 5 6 7 4 2 3 1 7 6 9 4 3 8 5 2 1 1 5 3 7 2 9 8 4 6 2 8 4 6 5 1 9 3 7 5 9 2 3 6 4 7 1 8 8 4 1 9 7 5 3 6 2 6 3 7 1 8 2 4 9 5 9 2 5 8 1 3 6 7 4 4 7 8 2 9 6 1 5 3 3 1 6 5 4 7 2 8 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 29. október, 302. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í sam- anburði við þá dýrð, sem oss mun op- inberast. (Rm. 8, 18.) Þeir eru sjálfsagt fáir í dag semmuna eftir Slésvíkurdeilunni, en um miðja 19. öld var hún við- kvæmasta og erfiðasta deilan í sam- skiptum stórveldanna í Evrópu. Tvö stríð brutust út um þetta hertoga- dæmi sem er á landamærum Dan- merkur og Þýskalands. Einhverju sinni lét þáverandi ut- anríkisráðherra Bretlands svo um- mælt að það væru aðeins þrír menn í heiminum sem skildu Slésvíkurdeil- una. Einn þeirra væri þýskur pró- fessor sem væri orðinn geðveikur, annar væri dáinn og þriðji maðurinn væri hann sjálfur en hann væri hins vegar búinn að gleyma smáatriðum deilunnar. x x x Viðkvæmasta og erfiðasta póli-tíska deilumálið á Íslandi er Icesave. Að mörgu leyti minnir það á Slésvíkurdeiluna. Fáir skilja það til botns og það hvarflar að manni að það geti haft vond áhrif á geðheilsu fólks geri það tilraun til að skilja alla anga málsins. Það er hins vegar ljóst að það skiptir miklu máli fyrir þjóðina hvernig þetta mál endar. Málið er vont sama hvernig á það er litið. Mörg mistök hafa verið gerð frá því það kom upp, en stærstu mistökin voru gerð þegar þessum reikningum var hleypt af stað. x x x Heimili og skóli hafa hleypt afstað nýju átaki gegn einelti í skólum. Það er óhugnanlegt að heyra lýsingar fólks sem hefur orðið fyrir einelti. Viðtal sem Rík- isútvarpið átti við Sindra Viborg í gær var mjög sterkt. Sindri þurfti að ganga í gegnum ótrúlegt einelti sem birtist bæði í líkamlegu og andlegu ofbeldi. Sindri sagði frá því að skól- inn hefði ekki skynjað vandann og að nokkru leyti litið á hann sjálfan sem vandamál. Það er örugglega þannig að börn sem upplifa einelti bregðast við ofbeldinu á þann hátt að fram- koma þeirra verður óhefluð. Starfs- menn skólans verða hins vegar að hafa þekkingu á einelti og skilja eðli þess. Aðeins þannig geta þeir tekist á við það. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 dramb, 8 hrá- slagaveður, 9 stjórnar, 10 söngflokkur, 11 bág- indi, 13 fífl, 15 gljái, 18 blæja, 21 litla tunnu, 22 kaka, 23 heldur vel áfram, 24 hryssingsleg orð. Lóðrétt | : 2 eyja, 3 karl- fugls, 4 gabba, 5 grjót- skriðan, 6 lof, 7 vex, 12 gyðja, 14 andi, 15 opi, 16 frægðarverk, 17 skraut, 18 stíf, 19 fæðunni, 20 kvenmannsnafn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 tálkn, 4 benda, 7 lýgur, 8 ræman, 9 tek, 11 iðni, 13 frír, 14 loppa, 15 full, 17 rugl, 20 orf, 22 getur, 23 orlof, 24 nunna, 25 kenna. Lóðrétt: 1 tálmi, 2 lögun, 3 nart, 4 bark, 5 nemur, 6 ann- ir, 10 espir, 12 ill, 13 far, 15 fegin, 16 látin, 18 ullin, 19 lyfta, 20 orga, 21 fork. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12. d5 Bd7 13. b3 Re8 14. Rbd2 g6 15. Rf1 Rg7 16. Rg3 Rb7 17. a4 b4 18. cxb4 cxb4 19. Be3 Hac8 20. Bd3 a5 21. Ba6 Db8 22. Rd2 f5 23. exf5 gxf5 24. Bh6 Hc7 25. Rc4 Rc5 26. Bb5 Bxb5 27. axb5 Dxb5 28. Hxa5 Dd7 29. Rh5 Bf6 30. Ha8 De7 31. Hxf8+ Dxf8 32. f4 e4 33. He3 Hf7 34. Hg3 Dd8 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedóníu. Enski stórmeist- arinn Michael Adams (2683) hafði hvítt gegn Þjóðverjanum Oliver Kniest (2324). 35. Rxg7! Bxg7 36. Da1! svartur er nú varnarlaus. 36…Df8 37. Rxd6! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Að hrökkva eða stökkva. Norður ♠ÁD9763 ♥108754 ♦10 ♣7 Vestur Austur ♠2 ♠K54 ♥932 ♥– ♦KD72 ♦ÁG643 ♣ÁG964 ♣D10852 Suður ♠G108 ♥ÁKDG6 ♦985 ♣K3 Suður spilar 4♥. Augljóslega er létt verk að vinna 4♥, en þegar litið er yfir allt sviðið vekur mesta athygli sú hæverska AV að gefa eftir samninginn þegar slemma vinnst í þeirra átt. Hvað kom til? Spilið er frá leik Þjóðverja og Svía í undanúrslitum Meistaradeildar Evr- ópu. Á báðum borðum opnaði suður í fyrstu hendi á 1♥, á hættu gegn utan hættu. Pass í vestur og 4♥ í norður. Stóra stundin. Á austur að blanda sér í sagnir? Þjóðverjinn Smirnov passaði og sagnir dóu út í 4♥, slétt unnum. Hinum megin bauð Bertheau upp á láglitina með 4G. Eftir snarpa sagn- baráttu á fimmta þrepi enduðu sagnir í 6♣ dobluðum, sem unnust með svín- ingu fyrir trompkóng. Sveifla upp á 17 stig (impa), sem segja má að ráðist af ákvörðun austurs yfir 4♥. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er alltaf gaman að geta komið öðrum á óvart og þú skalt láta það eftir þér. Vendu þig af því að keyra skoðanir þínar ofan í aðra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú finnur hjá sér sterka hvöt til þess að komast eitthvað í burtu eða gera eitt- hvað óvenjulegt í dag. Gættu þess að sýna rausnarskap og hafðu trú á getu þinni og stöðu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það væri viturlegast að forðast hvers kyns árekstra í dag. Umbætur eru það sem þú ert að leita eftir. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú leggur þig fram við að gera heimili þitt huggulegra á næstunni. Gríptu gæsina á meðan hún gefst og ekki láta tækifærin framhjá þér fara. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Ræddu málin til hlítar, það getur komið þér í koll ef þú ætlar að skauta bara á yfirborðinu. Aðrir þurfa líka að leggja sitt af mörkum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Allt sem snýr að peningamálum vekur athygli þína í dag, hvort sem það er að auka tekjur þínar eða eyðsla á fé. Slak- aðu á og hugsaðu vel hvert stefnir. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Hættu að velta þér upp úr mistök- unum. Slepptu fram af þér beislinu og farðu í bíó, íþróttir eða skemmtu þér með vinum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Samband fer í gegnum hægar breytingar. Ef þú ert viss um eigin tak- markanir munu þær hamla þér, en það er þitt að ákveða hvers þú ert megnug/ur. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú skilgreinir vináttu mjög vítt og getur þess vegna átt marga vini. Hafðu það í huga að vel unnin verk vekja athygli. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Raunverulegt frelsi í fjármálum er ekki að eiga meiri peninga, heldur það að lifa ekki um efni fram. Nú þarf að taka af skarið og komast að niðurstöðu í pen- ingamálum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Veltu heilsunni fyrir þér í dag. Það er betra að verða rólegur og bíða frekar en gera kröfur og heyra eitthvað sem þú vilt ekki heyra. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er sjálfsagt að sýna öðrum kurteisi þótt þú sért ekkert á þeim bux- unum að kynnast þeim nánar. Stjörnuspá 29. október 1919 Alþýðublaðið kom út í fyrsta sinn, undir ritstjórn Ólafs Friðrikssonar. Lengst af gaf Alþýðuflokkurinn blaðið út en útgáfunni var hætt 1997. 29. október 1922 Elliheimili tók til starfa í hús- inu Grund við Kaplaskjólsveg í Reykjavík. Morgunblaðið sagði að þetta hefði verið fyrsta „gamalmennahæli“ hér á landi en vistmenn gátu verið rúmlega tuttugu. Hús elli- heimilisins við Hringbraut var vígt átta árum síðar. 29. október 1925 Íslenskir einnar og tveggja króna peningar voru settir í umferð. „Þessir nýju peningar eru víst úr nikkel og kopar,“ sagði Morgunblaðið. Tíeyr- ingar og tuttuguogfimmeyr- ingar voru komnir þremur ár- um áður. 29. október 1934 Breski togarinn MacLeay strandaði í Mjóafirði eystra. Skipbrotsmönnum var bjarg- að í land, en þeir höfðu beðið björgunar á hvalbak skipsins í sextán klukkustundir. 29. október 1936 Tjón varð af sjávarflóði suð- vestanlands. Elstu menn á Sel- tjarnarnesi mundu ekki annað eins flóð. Brimið braut sextíu metra langan sjóvarnargarð í Gróttu. 29. október 1968 Tilkynnt var að „kaþólskur biskupsdómur“ hefði verið endurreistur á Íslandi og að Páll páfi sjötti hefði skipað Hinrik Frehen biskup í Reykjavíkurbiskupsdæmi, sem nær yfir land allt. Jafn- framt var ákveðið að Landa- kotskirkja yrði dómkirkja. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … ALBERT Ríkharðsson, fyrrverandi grunnskóla- kennari, á 65 ára afmæli í dag. Hann segir óákveð- ið hvað hann taki sér fyrir hendur á þessum merk- isdegi, en það eitt sé öruggt að hann fari í sund. Albert starfaði síðast í Laugarnesskóla þar sem hann kenndi myndmennt og smíði. Það kemur því ekki á óvart að helstu áhugamál hans séu tengd kennslugreinum hans. „Ég teikna mikið og sker svolítið út, það er mjög mikið áhugamál hjá mér,“ segir Albert sem segist lítið mála en aðallega teikna með blýanti. „Ég teikna t.d. mannamyndir og munstur og ýmislegt fleira. Svo sker ég dálítið mikið út í timbur, aðallega munstur sem ég teikna sjálfur.“ Albert segist hafa kennt nokkrum nemenda sinna útskurð. „Ég sigtaði út krakka sem höfðu gott vald á blýantinum og höfðu áhuga á honum og kenndi þeim útskurð og það gekk vel. Það er forsenda að kunna eitthvað í teikningu til að geta náð árangri í útskurði.“ Þó að Albert sé hættur kennslu hefur hann nóg fyrir stafni á daginn. „Ég er heimavinnandi afi í gæslu,“ segir hann en sonur Alberts og eiginkon- unnar Elínar Vigfúsdóttur, sr. Vigfús Bjarni Albertsson, á þrjú börn. „Við erum að gæta þess yngsta og það er töluvert starf.“ ylfa@mbl.is Albert Ríkharðsson, fyrrv. kennari, 65 ára Barnagæsla mikil vinna Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.