Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 6
36
V I L J I
Nokkur orð.
Einn af snjöllustu ræðumönnum þessa lands kvart-
aði nýlega undan ]>ví í ræðu, sem hann hjelt, hve lítið
menn yrðu varir við æsku og æskufjör hjer á landi. Og
varla verður ofsögum sagt af þeirri deyfð, sem hvílir yfir
ungum mönnum þessa bæjar. Að vísu væri synd að segja,
að hjer væri ekki nóg af fjörugum skemtunum og því-
líku, sem ungir menn sækja trúlega og láta trauðla fi'am
hjá sjer fara, en andlegt líf og fjör þeirra virðist ekki
vera í rjettu hlutfalli við fótamentina og aðra ment, sem
þarf til þess að sækja þessar ágætu skemtanir. Enginn
skilji mig þó svo, að jeg sje að bannfæra allan gleðskap,
nei, síður en svo; glaumur og gleði hafa altaf verið, eru
og verða vonandi altaf sjálfsagðir fylginautar æskunnar
— og ]>ví meiri og heilbrigðari sem gleðin er, því betra.
En jeg segi heilbrigð, en heilbrigð hættir hún að vera,
meðal annars, þegar hún er orðin ])annig, að hún úti-
lokar menn frá allri sjálfstæðri andlegri iðju.
Og því miður vii'ðist skemtanalífi ])essa bæjar vera
yfirleitt |>annig farið, að það taki óskiftan ]>ann hluta
hugar hins unga manns, sem dagleg skyldustörf láta eft-
ir, en sem ættu að skiftast milli gleðinnar og einhverrar
andans iðju, sem hann af sjálfsdáðum tæki sjer fyrir
hendur, sjálfum sjer til ]>roska. Og oft og með mörgu
móti er hægt að láta þær takast í hendur, svo að í gleð-
ina geta menn sótt andlega þjálfun og í starfið gleði.
En á jafnvægi milli ]>essa tvenns virðist mjög skorta,
])ótt raunar sje hægt að finna heiðarlegar undantekning-
ar, og vítaverðastir eru, hvað ]>etta snertir, hinir ungu
mentamenn. Hjer í bænum er fjöldi ýmiskonar skóla,
sem veita sæmilega mentun hver á sínu sviði, og þangað
sækja hundruð ungra manna mentun sína og andlegt við-
urværi, og í öllum ]>essum skólum eru fleiri eða færri
menn, sem eru ágætum hæfileikum gæddir. Væri nú
ekki trúlegt, að bæjarlífið fengi einhvern svip af þessu?