Vilji - 01.12.1927, Side 7
V I L J I
37
Ójú, svo mun mörgum sýnast. Af öllum þessum hópi
ungra mentamanna ætti að geta staðið einhver hressandi
gustur, sem sópaði burt þeirri óheilbrigðu lognmóðu, sem
liggur yfir andlegu lífi bæjarins. Hvaðan væri hans ann-
ars að vænta? Hverjir ættu að láta í ljósi heilbrigðar og
hlutlausar skoðanir á mönnum og málefnum, skýrt og
skorinort, ef ekki ungir menn, sem notið hafa sæmilegrar
mentunar? Og hverjir ættu að hafa hug til þess eða
ástæður, að brjóta í bága við álit annara, hvort það
eru einstakir menn eða heilir flokkar, ef ekki einmitt
ungir menn? Jeg veit ekki vel! Að vísu er það full-
kunnugt, að sumir skólar deyfa mjög æskuþrótt og
starfslöngun manna, og miða að því, að gera þá að
þægum börnum þjóðfjelagsins, sem geri sig ánægða með
og lifi í sátt og samlyndi við alt og alla, sjeu „velmetnir
og skynsamir borgarar“, og varist að koma fram með
nokkuð það, sem nýtt geti kallast og brotið í bága við
gamlar og almennar venjur og geti reist bárur á lygnu
stöðuvatni hins andlegs lífs „velmetnu og skynsömu borg-
aranna“. En, ungu menn, hristið af ykkur okið! Látið
æskuna og æskufjörið njóta sín og koma að gagni landi
og lýð! Og nú er sá tími kominn, að þið getið sýnt,
hvers þið eruð megnugir. Því að fyrir skömmu hafa
nokkrir ungir menn gripið herlúður æskunnar, þeytt
hann og kallað aðra unga menn undir merki hennar.
Þeir hafa sem sje ráðist í að gefa út rit, sem vera skal
rit æskunnar og málgagn hennar. Þetta er ekki einungis
einstakt og aðdáunarvert fyrirtæki, heldur getur og
engum dylist, hversu þarft það geti orðið, ef vel og skyn-
semlega er á haldið.
Hjer gefst ungum mönnum færi á að æfa sig í því,
að koma skoðunum sínum fyrir á pappírnum og hjer
geta þeir ritað um áhugamál sín. Hjer er þeim haslaður
völlur til drengilegrar baráttu, þar sem þeir geta fundið
að því, sem þeim þykir aflaga fara og hjer geta ungu
skáldin birt Ijóð sín og sögur.
Jeg vil því hjer með skora á alla unga menn að
L