Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 17
Y 1L J I
47
reglugerðir fyrir skólann.1 2 3) Ekki hefir honum heldur.
verið kunnugt um, að 1. gr. reglnanna var breytt af
stjórnarráðinu, eftir tillögum rektors og kennara, árið
1925, og að rektor tilkynti ]>að við skólasetningu þetta
sama ár. Hefði ekki verið vanþörf á, að ritstj. hefði
kynt sjer eitthvað af þessu, áður en hann tók að gagn-
rýna reglurnar opinberlega, ásamt því, hvernig rita skai
ísl. tungu stórlýtalaust.-)
Þótt fleira megi til færa, þá sýna nefnd dæmi nægi-
lega þekkingarleysi S. H. og er það að vísu fyrirgefanlegt,
en þá fyrst tekur út fyrir allan þjófabálk, þegar að
hann, 18 ára unglingur, sem ekki enn hefir hlotið gagn-
fræðamentun, flytur ]>ann fagnaðarboðskap, að hann
muni nánar minnast á þetta mál (sem hann þekkir svo
vel til!) í grein, er muni bera nafnið ,,gildi námsins“.
Dramb ritstj. lýsir sjer í stóryrðum ]>eim, er hann
velur sjer eldri og vitrari mönnum; meira að segja mönn-
um, sem hann heíir orðið að auðmýkja sig fyrir. (Þetta
skal jeg sanna með rökum, ef S. H. krefst þess, en jeg
hlífi honum að sinni).
Því fer svo fjarri, að jeg ætli mjer þá dul, að halda
því fram, að reglur Mentaskólans sjeu í öllu haldnar.
Jeeg veit ]iað jafn vel og S. H., að ]>ær eru í mörgu
brotnar. En svo er um öll lög og verða þau síst fyrir
þá sök ,,úrelt“.-) Ef við S. H. legðum nú af stað, í byrjun
æsku okkar, og leituðum að ]>eirri lagagrein, sem aldrei
liefði veriö brotin, þá er jeg þess fullviss, að við yrðum
orðnir gamlir menn og „gengnir upp að hnjám“, áður
en við fyndum hana.
Jeg ætla að gera S. H. svo hátt undir höfði, að álíta,
að hans skoðun sje, að lög sjeu til þess, að þeim sje
framfylgt, en ekki til hins gagnstæða. En því í ósköpun-
um veitist maðurinn ]>á að rektor Mentaskólans fyrir bað.
D Sbr.: reglugerða; reglugerðanna.
2) Sbr. rit- og hugsanavillur S. H. í greinum hans.
3) Sjá: „Vilji“ bls. 20.