Vilji - 01.12.1927, Qupperneq 20

Vilji - 01.12.1927, Qupperneq 20
50 V I L J I þann hluta greinar minnar, þar sem jeg „fetti fingur“ út í reglur skólans. Þar kemst hann svo að orði: „Kenn- ir þar margra grasa, og sumra ekki sem fallegastra. Mest þykir mjer bera þar á vanþekkingu ritstj. og of- drambi hans“, Það skal viðurkent að allstórir gallar væru hjer taldir ef Ó. Þ. færði, það sem kalla mætti rök fyrir þessu hanagali sínu. — „Þú sjerð flísina í auga bróður ]>íns, en ekki bjálkann í þínu eigin auga“, mætti segja um hugsunarhátt Ó. Þ. í grein hans „Málæði æskunnar“. Hann segir mig ekki aðeins rugla saman reglugerð Mentaskólans og reglum fyrir nemendur skólans, „held- ur veður hann dýpra í vitleysunni með því að halda að til sjeu mai'gar gildandi reglugerðir fyrir skólann“, það setur hann neðanmáls „reglugerða; reglugerðanna“. Þessi vaðall Ó. Þ. er vægast talað útúrsnúningur, og sje Ó. Þ. ekki því ófróðari um það hvernig þær reglur, sem jeg vitna í eða reglugerð, mjer er sama hvoru nafninu það nefnist, hljóða, þá ætti honum að vera það kunnugt að jeg vitna ávalt í grein minni í sömu regl- urnar, og sýni fram á það með rökum, að að miklu leyti er gildi þeirra ekkert, hvort heldur *þær eru nefndar reglugerð Mentaskólans eða reglur fyrir nemendur skól- ans. Viðvíkjandi neðanmálsorðum Ó. Þ. „reglugerða; reglugerðanna“, hefi hvorki jeg nje aðrir, sem jeg hefi átt tal við um það, getað komist að neinni niðurstöðu um það hvað höf á við með þeim. Viðvíkjandi því sem Ó. Þ. segir um 1. gr. regln- anna, skal þess getið, að mjer var það fyllilega ljóst, að breyting á henni hafði verið tilkynt við skólasetn- ingu, en ástæðan fyrir því, að jeg drap á þá grein reglnanna er sú, að mjer hefði fundist það sjálfsögð varúð hjá rektor, að í'ita þessa breytingu á reglunum út á spássíuna, til þess að enginn þyrfti á þeim að vill- ast, því að ávalt vantar eitthvað á að allir nemend- urnir sjeu við skólasetningu. En þar sem að yfirvöld skólans krefjast þess að nemendur breyti eftir reglunum,

x

Vilji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.