Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 6
KRISTJÁN JÓNSSON
Hinn 18. ágúst sl. varð Kristj-
án Jónsson, fyrrv. skólastjóri í
Hnífsdal áttræður að aldri. Hann
er fæddur að Eyri í Seyðisfirði
vestra, sonur þeirra hjóna, Jóns
Jakobssonar og Kristjönu Kristj-
ánsdóttur, sem fædd voru og upp-
alin norður í Grunnavíkurhreppi,
en fluttu úr heimabyggð sinni á
hið forna höfuðból, Eyri.
Ólst Kristján upp við alla al-
genga vinnu þar vestra, bæði á
sjó og landi, unz hann settist í
Flensborgarskóla og síðan í Kenn-
araskólann og útskrifaðist þaðan
vorið 1919. Hugur hans hneigist
að hljómlist og veturinn 1917—1918 tók hann að nema af eigin
rammleik tónfræði og orgelspil. I Kennaraskólanum hugði hann að
fá tilsögn í organleik hjá Sigfúsi Einarssyni, tónskáldi, sem þá kenndi
söng við skólann, en þá var hvergi hljóðfæri að fá að láni til æfinga.
Varð hann þá af þeirri kennslu og því varð organleikur hans sjálfs-
nám eingöngu, því áfram hélt hann að æfa sig eftir því sem föng
voru á.
Haustið 1919 tók hann við skólastjórn barnaskólans í Hnífsdal og
var það óslitið til 1967, að hann hætti fyrir aldurs sakir. Og þegar
Hnífsdalur varð sérstök sókn gerðist hann organleikari við guðs-
þjónustur og aðrar kirkjulegar athafnir 1926 og hélt því starfi þar
til fyrir fjórum árum, en allt fram á þennan dag hefur hann kennt
söng við skólann, eins og alla skólatíð sína. Við organleikarastarfinu
tók hann vegna nauðsynjar og vöntunar á kirkjuorganleikara. Og
kennslu og samfylgdar, hún lifir í ritverkum hans, og hún lifir lengst
í sönglögum hans, sem margir íslenzkir tónlistarmenn hafa flutt og
margir tekið við þau tryggð. í nóv. 1977. Bjarnt Guðráðsson.
6 ORGANISTABLAÐIÐ