Organistablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 8

Organistablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 8
NORRÆN ORGANISTAKEPPNI Eins og fram kemur annarsstaðar í blaðinu, verður norræn organ- istakeppni í Striingnás í Svíþjóð í tengslum við Orgelhátíð sem verður haldin þar í ágúst 1978. Þeir sem standa að þessari hátíð eru Dómkirkjusöfnuðurinn í Strángnás, Menningarnefnd Strángnás, Ríkiskonsertar og Kirkjutón- listarsamtök Strángnásstiftis. Keppnin fer fram í þremur umferðum, og þátttakendur eiga að leika eftirfarandi verk: 1. umferð Stig Gustaf Schönberg: Toccata corsentante 1954 J. S. Bach: Aria í F-Dur J. S. Bach: Preludium og fuga í a-moll. 2. umferð Fartein Valen: Preludium og fuga op. 33 J. S. Bach: Allein Gott (BWV 676) Eitt verk eftir Cesar Franck eða Max Reger. 3. umferð Otto Olson: Preludium og fuga í dís-moll Eitt orgelverk frá 16. eða 17. öld. Eitt norrænt orgelverk samið eftir 1940 eftir höfund aí öðru þjóðerni en keppandinn. Til að tryggja svo óvilhallan úrskurð sem unnt er munu kepp- endur keppa nafnlaust. Þeir sem verða í dómnefndinni eru: Enzio Forsblom, Grethe Krogh, Gotthard Ahrner, Rolf Stenholm ásamt einum organista frá Þýskalandi, Frakklandi eða Englandi. 1 sambandi við keppnina verða sýningar, hljómleikar, ferðalög og fyrirlestrar. 8 ORGANISTABLAÐIW

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.