Organistablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 17
TIL RITNEFNDAR ORGANISTABLAÐSINS
Úr einu í annað.
Ýmsir hafa undrast það framtak fámenns félags að halda gangandi
og óslitið um áraraðir félagsblaði því sem Organistablaðið er. Jafn-
framt hafa þeir undrast góðan frágang blaðsins og mikinn fróðleik á
fáum síðum þess. Sannarlega skal tekið undir ummæli þessi öll og
vissulega má ritstjórn blaðsins skrifa hjá sér þessi lofsyrði. — Hér
fylgja bestu óskir blaðinu til handa um að því auðnist að halda þess-
ari línu, sem kannski er nú kórónan á starfi organistafélagsins.
Teppalagnir í kirkjum.
Furðulegt er að engar stórfelldar mótmælaaðgerðir skuli hafa verið
við hafðar vegna þeirrar óáran á Islandi að teppaleggja þá fleti kirkn-
anna sem nauðsynlegast er að óteppalagðir séu vegna hljómburðar-
ins, en það eru vitanlega gólf kirknanna. Hér er um sambærilegan
hlut að ræða og að límd væri teppi ofan á hljómbotn flygilsins eða
innan í botn fiðlunnar, eða að ætlast til þess að söngvari með stopp-
aðar ennisholur syngi svo að nokkur mynd væri á. Ég veit að þessar
teppaframkvæmdir á kirkjunum eru gerðar með það sjónarmið að
fegra kirkjurnar og oft fyrir söfnunarfé velviljaðra aðila innan safn-
aðanna. En alvarlegur misskilningur hefur læðst inn í þessar fegr-
unarframkvæmdir. Það sem í kirkjunum er flutt, hvort sem um er að
ræða orð eða tóna, þarf að fá hljómgrunn í tilfinningum þeirra sem
kirkjuna sækja og með það að markmiði á að fegra kirkjurnar. Ekki
er leyfilegt að breyta lögun kirkju án leyfis fagmanna, en leyfilegt
virðist að eyðileggja hljómburð í kirkju en slíkar framkvæmdir þurfa
jú engan fagmann. Hér verður að snúa við blaðinu, og því fyrr því
betra. Ég skora hér með á söngmálastjóra, sem vakið hefur máls á
þessum hlutum, að beita sér af alefli fyrir þeim breytingum sem hér
þurfa á að verða og fá alla dugmikla aðila innan kirknanna til þess
að breyta húsunum aftur í kirkjur. Það búa nefnilega engir hér á
hæðinni fyrir neðan sem taka þarf tillit til og sá sem býr á hæðinni
fyrir ofan fyrtist áreiðanlega ekki yfir því sem upp berst, jafnvel
þótt af vanefnum sé gert.
ORGANISTABLAÐIÐ 17