Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 21
Þegar fram liðu stundir fækkaði fundum í Kaupangskirkju. Urðu
þá ýmsir til þess að bjóða félaginu húsnæði til æfinga án endurgjalds.
Var nú komið saman til æfinga að Garðsá, Ytra-hóli og víðar.
Vorið 1882 fluttist Ari Jónsson með fjölskyldu sína búferlum frá
Víðigerði að Þverá ytri, en það er yzti bærinn á Staðarbyggð. Kona
hans hét Rósa Bjarnadóttir. Voru þau hjón bæði mjög félagslynd,
gestrisin og góðgerðasöm. Þau unnu af alhug allri framfaraviðleitni,
bæði verklegri og andlegri. Þrjú elztu börn þeirra, Jón, Bjarni og
Elín, voru þá að mestu uppkomin. Voru þau hin mannvænlegustu
og ekki eftirbátar foreldra sinna í neinu.
Brátt varð góður kunningsskapur milli heimilanna Þramar og
Þverár. Var Þverárfjölskyldan listhneigð og söngelsk. Leit hún söng-
félagið brátt hvru auga, og félaginu varð fljótt Ijóst, að á Þverá var
kostur góðs liðsauka. I fyrstu var svo til ætlazt, að félagssvæðið
væri aðeins Kaupangssókn. En þó að Þverá tilheyrði Munkaþverár-
sókn, lét enginn það á sig fá. Hitt var verra, að áin, sem greindi
sóknirnar sundur (Þveráin), var nokkur farartálmi, því að hún var
þá óbrúuð. Það fór þó svo, að Þverársystkinin gerðust félagar, og
varð heimili þeirra upp frá því einn sterkasti þátturinn í sönglífi
sveitarinnar. Kirkjusókn þaðan var styttri að Kaupangi en Munka-
þverá, og sótti því Þverár-fólk aðallega Kaupangskirkju.
Aðstaða félagsins breyttist nú að ýmsu. Þegar hér var komið, var
ætíð opið hús fyrir söngæfingarnar í Þverárstofunni, og voru við-
tökur jafnan eins og komið væri í foreldrahús. Sigtryggur hafði lengi
haft hug á því að byrja hvern söngfund með því að svngja ljóð, sem
sérstaklega væri til þess gert. Ari tók að sér að yrkja ljóðið, og var
það upp frá því sungið með röddum í byrjun hvers fundar. Það var
á þessa leið:
Helgi söngva hljómur,
hjartans fagra mál,
æðri heima ómur,
unað veittu sál.
Þér af heilum huga
helgum þessa stund,
það skal bölið buga,
bægja sorg úr Iund.
Nú skal gleði glæða
glaumur hörpunnar,
lyfti hug til hæða
heim í fegurðar,
veki æðsta yndi,
ást til skaparans,
er oss blíðu bindi
bandi kærleikans.
ORGANISTABLAÐIÐ 21