Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 42
er; sinfonisk ljóð: Hamlet (fyrir píanó og hljómsveit), John Gabriel
Borkman, Tanken, Jesus i Getsemane, De dödes nat; piano-konsert í
C-dúr; fiðlukonsert; piano-kvintett; Reformations-kantate; tveir strok-
kvartettar; fiðlu-sonötur; sönglög; pianó-lög (Vaarbrud, Drikkevise);
Operurnar Thora fra Rimol og Fiskeren).
Iver Holter (1850—1941). —
Þegar Erling Kjelsen sagði frá
þessari öldnu kempu datt mér í
hug dálítil frásögn. Árið 1935
var haldið landsmót norskra karla-
kóra í Osló og mót sænskra bland-
aðra kóra í Stokkhólmi. Sigfús
Einarsson og frú Valborg voru
fulltrúar íslands á þessum mót-
um. Sigfús skrifaði greinar um
þessi mót í ,,Heimir“, sem Sam-
band ísl. karlakóra gaf þá út. Og
nú kemur frásagan:
„Meðal þeirra, er sátu við
,,mitt“ borð, var Iver Holter
tónskáld, sem margir söngmenn
kannast eflaust við. Hann er nú kominn yfir áttrætt, en þó ern vel.
Var hann heiðurssöngstjóri mótsins, en hæfilegt tillit hafði verið
tekið til aldurs þessa nafnkunna sæmdarmanns, því að verkefni var
honum ekki ætlað annað en það að slíta mótinu með því að stjórna
síðasta laginu, sem fara átti með: „Ja, vi elsker dette landet“. Ég
hafði séð Iver Ilolter í Kaupmannahöfn fyrir 30 árum. Var hann
sendur út af örkinni 1905 — skilnaðarárið — með „Handelsstand-
ens Sangforening“, og mun tilgangurinn hafa verið sá að kynna er-
lendum þjóðum norska söngmenningu og þá einkum úrval úr norsk-
um karlakórsbókmenntum, enda voru á söngskránni ýmis hinna
glæsilegustu verka af því tagi eftir þá Nordrák, Grieg o. fl. Allmörg
lög voru sungin á mótinu eftir hið aldna tónskáld, og voru sum
þeirra tvímælalaust meðal þess bezta, sem þar mátti heyra.“
Og seinna í greininni segir Sigfús:
„Pegar kom að síðasta laginu — þjóðsöngnum — gekk hinn aldni
42 ORGANISTABLAÐIÐ
V