Organistablaðið - 01.12.1977, Page 45

Organistablaðið - 01.12.1977, Page 45
sonar, en hann hefði orðið 100 ára á þessu ári. Á samkcmunni voru flutt tvö erindi. Sigrún Gísladótt- ir flutti erindi um Sigfús Einarsson og Haukur Guðlaugsson flutti crindi um Pétur Guðjohnsen. Á samkomunni var einnig flutt ión- list. Dómkórinn söng 7 lög úr sálma- söngsbók Pétur Guðjohnsen og 4 sálmalög eftir Sigfús Einarsson. — Einnig lék Rut Ingólfsdóttir Lvö lög á fiðlu við undirleik Ragnars Björns- sonar. Að lokum flutti Dómkórinn ásamt Elínu Sigurvinsdóttur tvö vcrk fyrir kór og orgel eftir Sigfús, ,,Pét- ur Guðjohnsen" og Lofgjörð. Stjórn- andi tónlistarinnar var Ragnar Björns- son. Aðalfundur F.Í.O. Aðalfundur F.Í.O. var haldinn 1.. október 1977 í Safnaðarhsimili Lang holtskirkju. Fundarstjóri var kosinn Geirlaugur Árnason. Ritari las fundargerðir og gjaldk^ri gerði grein fyrir reikningum 'élagsins. Formaður félagsins, Guðni Þ. Guð- mundsson, ræddi um Norræna Kirkju- tónlistarmótið í Finnlandi á kcmandi ári. Skýrði hann frá fundi, cr hann sat í Helsingfors, þar sem rædd voru ýmis mál, er varðaði undirbúning fyrir mótið. Þá greindi formaður frá íundi, er stjórn félagsins sat með organistum á organistanámskeiði í Skálholti í september sl. Kom þar fram ósk bát.t- takenda um inngöngu í félagið og áskrift að Organistablaðinu. Var hér um að ræða starfandi organista víðs- vegar að af landinu. Formaður las nöfn hinna nýju félaga, og voru beir samþykktir samhljóða í félagið. Félagsgjöld voru samþykkt óbreytt, en áskrift blaðsins hækkuð í krónur 1000,00 á ári. Þá fór fram stjórnarkjör. Var stjórn og varastjórn endurkosin, en stjórnina skipa: Guðni Þ. Guðmunds- son, formaður, Árni Arinbjarnarson, ritari, Glúmur Gylfason, gjaldkeri. — Varastjórn: Jakob Tryggvason, Danicl Jónasson og Haukur Guðlaugsson. Endurskoðendur: Gústaf Jóhannesscn og Geirlaugur Árnason. Söngmálastjóri, Haukur Guðlaugs- son, sagði fundarmönnum frá organ- istanámskeiðinu í Skálholti og ræddi um B-próf í orgelleik frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Gat hann um kröfur og verkefni fyrir B-próf. Hvatti hann organista að þreyta B-próf og öðlast réttindi með B-próf í orgelleik Árni Arinbjarnarson. Úr bæ og byggð Húsavík. Kirkjukór Húsavíkur hélt tónleika 10. apríl 1977. Stjórnandi var Sigríður Schiöth, undirleikari Björg Friðriks- dóttir, kynnir Páll H. Jónsson, ein- söngvari Ingvar Þórarinsson og Sig- ríður Schiöth og Hólmfríður Bene- diktsdóttir sungu dúett. Tónleikarnir byrjuðu með því að sungið var Gloria Tibi úr Þjóðlaga- safni sr. Bjarna Þorsteinssonar útsett af Jóni Ásgeirssyni. Síðan voru lög eftir Áskel Jónsson, Pál H. Jónsson, Sigfús Einarsson (2 lög), Pál ísólfsson, Sigurð Sigurjónsson og Carl Möller (útsetning og texti) og ennfremur spánskt, sænskt og tvö rússnesk þjóð- lög. ORGANISTANLAÐIÐ 45

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.