Organistablaðið - 01.12.1977, Page 46
Skálholt.
Sunnudaginn 12. ágúst 1977 voru
haldnir orgeltónleikar í Skálholts-
kirkju. Þar lék Glúmur Gylfason
partítu fyrir orgel eftir Hallgrím
Helgason — Faðir vor sem á himnum
ert, og tríósónötu nr. 5 í C-dúr efitr
J. S. Bach. — Einnig lék Ólafur Sig-
urjónsson chaconnu í f-moll eftir
Johann Pachelbel.
Síðastliðið sumar voru haldnir
„sumartónleikar" í Skálholtskirkju á
tímabilinu frá 16. júlí til 7. ágúst,
alls 8 tónleikar. Fimm flytjendur tóku
þátt í þessum tónleikum. Camilla
Söderberg, sem lék á blokkflautu,
Manuela Wiesler á þverflautu, Snorri
Örn Snorrason á gítar og lútu, Helga
Ingólfsdóttir á sembal og tenorsöngv-
arinn Hubert Seelow. Flutt var tón-
list eftir ýmsa meistara.
Hvað segja blöðin?
Morgunblaöið 11. nóv.: Gagnkvæm
viðskipti nauðsynleg. Viðtal við Ragn-
ar Björnsson dómorganista. Ennfrem-
ur sýnishorn af dómum sænskra gagn-
rýnenda um frammistöðu hans. —
— 17. nóv.: Jón Ásgeirsson: „Sinfoníu-
hljómsveitin. — 19. og 20. nóv.: Atli
Heimir Sveinsson: „Um Sinfoníu-
hljómsveit íslands“. Vér getum um
þessar greinar tónskáldanna þó að þær
séu kirkjutónlistinni óviðkomandi.
Útlendar fréttir
Mannalát.
Prófessor YValter Kraft, Liibeck
fórst í hótelbruna í Amsterdam S. maí
sl. Hann var fæddur í Köln 9. júní
1905. Árið 1929 varð hann organleikari
við Maríukirkjuna í Liibeck. — Sem
organleikari og tónskáld var hann í
fremstu röð þýskra kirkjutónlistar-
manna. Hann lék fjölda tónverk inn
á plötur m. a. öll orgelverk Bachs og
Buxtehudes.
Ameríski organleikarinn Edward
Power Biggs lést 10. mars sl. 1 Boston.
Hann var fæddur 29. mars 1S06 í West-
cliff-on-Sea. Essex, Englandi. E.P.B.
hélt fjölda orgeltónleika og spilaði inn
á fjöldann allan af hljómplötum.
Hann frumflutti tónverk fjöldamargra
nútímatónskálda, þ. á m. eru Sower-
by, Piston, Harris, Hanson, Porter —
og enn fleiri mætti nefna.
Power Biggs kom tvívegis til íslands
og hélt orgeltónleika í Dómkirkjunni
í Rvík og Landakirkju 1 Vestmanna-
eyjum. Hann spilaði einnig á Akur-
eyri. Hann spilaði inn á band í Hall-
grímskirkju, Rvík og Landakirkju. —
Voru þær upptökur gerðar íyrir út-
varpsstöðvar vestan haf.
Prófessor Jiri Reinberger, Praha,
C. S. R. lést 28. maí sl. Hann var ætt-
aður af Mæri (Moravia), fæddur 14.
apríl 1913. Hann hélt fjölda orgeltón-
leika og lék inn á fjölda margar hljóm-
plötur. Gömul orgelverk lék hann inn
á plötur á gömul og góð orgel í Praha
og víðar. Hann lék öll orgelverk
Bachs inn á plötur, ennfremur verk
eftir Buxtehude, Lubeck, Böhm,
Franck, Poulenc, Messiaen og ítalska
meistara.
Auk tónleika í Tékkóslóvakíu hélt
hann tónleika í Svíþjóð, Ítalíu, Rúss-
landi, Póllandi, Afríku, Hollandi og
Kanada. Hann var talinn 1 allra
fremstu röð tékkneskra organleikara.
Athygli skal vakin á auglýsingu og
grein um organistakeppni í Stráng-
nás í Svíþjóð á næsta ári.
46 ORGANISTABLAÐIÐ