Organistablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 46

Organistablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 46
Skálholt. Sunnudaginn 12. ágúst 1977 voru haldnir orgeltónleikar í Skálholts- kirkju. Þar lék Glúmur Gylfason partítu fyrir orgel eftir Hallgrím Helgason — Faðir vor sem á himnum ert, og tríósónötu nr. 5 í C-dúr efitr J. S. Bach. — Einnig lék Ólafur Sig- urjónsson chaconnu í f-moll eftir Johann Pachelbel. Síðastliðið sumar voru haldnir „sumartónleikar" í Skálholtskirkju á tímabilinu frá 16. júlí til 7. ágúst, alls 8 tónleikar. Fimm flytjendur tóku þátt í þessum tónleikum. Camilla Söderberg, sem lék á blokkflautu, Manuela Wiesler á þverflautu, Snorri Örn Snorrason á gítar og lútu, Helga Ingólfsdóttir á sembal og tenorsöngv- arinn Hubert Seelow. Flutt var tón- list eftir ýmsa meistara. Hvað segja blöðin? Morgunblaöið 11. nóv.: Gagnkvæm viðskipti nauðsynleg. Viðtal við Ragn- ar Björnsson dómorganista. Ennfrem- ur sýnishorn af dómum sænskra gagn- rýnenda um frammistöðu hans. — — 17. nóv.: Jón Ásgeirsson: „Sinfoníu- hljómsveitin. — 19. og 20. nóv.: Atli Heimir Sveinsson: „Um Sinfoníu- hljómsveit íslands“. Vér getum um þessar greinar tónskáldanna þó að þær séu kirkjutónlistinni óviðkomandi. Útlendar fréttir Mannalát. Prófessor YValter Kraft, Liibeck fórst í hótelbruna í Amsterdam S. maí sl. Hann var fæddur í Köln 9. júní 1905. Árið 1929 varð hann organleikari við Maríukirkjuna í Liibeck. — Sem organleikari og tónskáld var hann í fremstu röð þýskra kirkjutónlistar- manna. Hann lék fjölda tónverk inn á plötur m. a. öll orgelverk Bachs og Buxtehudes. Ameríski organleikarinn Edward Power Biggs lést 10. mars sl. 1 Boston. Hann var fæddur 29. mars 1S06 í West- cliff-on-Sea. Essex, Englandi. E.P.B. hélt fjölda orgeltónleika og spilaði inn á fjöldann allan af hljómplötum. Hann frumflutti tónverk fjöldamargra nútímatónskálda, þ. á m. eru Sower- by, Piston, Harris, Hanson, Porter — og enn fleiri mætti nefna. Power Biggs kom tvívegis til íslands og hélt orgeltónleika í Dómkirkjunni í Rvík og Landakirkju 1 Vestmanna- eyjum. Hann spilaði einnig á Akur- eyri. Hann spilaði inn á band í Hall- grímskirkju, Rvík og Landakirkju. — Voru þær upptökur gerðar íyrir út- varpsstöðvar vestan haf. Prófessor Jiri Reinberger, Praha, C. S. R. lést 28. maí sl. Hann var ætt- aður af Mæri (Moravia), fæddur 14. apríl 1913. Hann hélt fjölda orgeltón- leika og lék inn á fjölda margar hljóm- plötur. Gömul orgelverk lék hann inn á plötur á gömul og góð orgel í Praha og víðar. Hann lék öll orgelverk Bachs inn á plötur, ennfremur verk eftir Buxtehude, Lubeck, Böhm, Franck, Poulenc, Messiaen og ítalska meistara. Auk tónleika í Tékkóslóvakíu hélt hann tónleika í Svíþjóð, Ítalíu, Rúss- landi, Póllandi, Afríku, Hollandi og Kanada. Hann var talinn 1 allra fremstu röð tékkneskra organleikara. Athygli skal vakin á auglýsingu og grein um organistakeppni í Stráng- nás í Svíþjóð á næsta ári. 46 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.