Organistablaðið - 01.10.1980, Síða 21
Fundur var haldinn IFÍ04. maí 1980. Aðal-
mál fundarins var að Jón Stefánsson lýsti
störfum nefndar sem skipuð var 1978 og
samið hefur handrit um nýtt messuform
sem lagt verður fram til ákvarðanatöku á
kirkjuþingi í haust.
Jón skýrði frá helstu væntanlegum breyt-
ingum sem verða myndu á messunni og
lagði fram messuskrá sem Langholtskirkja
hefur notað og er með álíka breytingum.
Síðan svaraði hann fyrirspurnum um þetta
efni.
Önnur mál á dagskrá voru:
Glúmur Gylfason minntist á fund áhuga-
manna um Gregorssöng á íslandi sem hald-
inn hefur verið á lofti Dómkirkjunnar í Rvk.
og lagði fram dagskrá á fyrirhuguðum
stof nfundi þess félags í Skálholti 7., 8. og 9.
júlí 1980.
Ýmislegt fleira bar á góma og spjölluðu
félagar saman um orgel og virtist áhugi fyrir
að halda sérstakan fund um það efni.
Nokkur umræða varð einnig um launamál.
Kristskirkja: 15. júní 1980 hélt Ragnar
Björnsson orgeltónleika í Kristskirkju. Á
efnisskránni var La Nativité du Seigneur
eftir O. Messiaen, en það hefur ekki verið
flutt í heild áður hér á landi.
Skálholtskórinn og Kirkjukór Selfoss héldu
tónleika 15. maí. Einsöngvari Aðalheiður
Jónasdóttir, alt. Meðal verka á efnisskránni
voru eftirtalin lög frumflutt: Móðirmín eftir
Auðunn Friðriksson (texti, Einar Ben.),
Bókin og Barnasálmur eftir stjórnandann,
Glúm Gylfason (texti M. Jochumsson),
Vormótetta eftir Lars Kruse, organista í
Silkiborg (textaþýðing Guðm. Ó. Ólafsson).
Kór Barnaskólans á Selfossi, stjórnandi
Björn Þórarinsson, Samkór Selfoss, stj.
Björgvin Þ. Valdimarsson, Kirkjukór Sel-
foss, stj. Glúmur Gylfason, Skólahljpmsveit
Tónlistarskóla Árnessýslu og Karlakór Sel-
foss, stjórnandi beggja, Ásgeir Sigurðsson,
héldu tvenna jólatónleika í Selfosskirkju sl.
jól og gáfu aðgangseyrinn til kaupa á píanói í
safnaðarheimili kirkjunnar, sem er í
smíðum.
4. jan. 1980 hélt Antonio D. Corveiras
orgeltónleika í Selfosskirkju. Á efnisskrá
voru eftirtalin verk.
Guilain
Suite du Second Ton.
J.E. Bach
Fantasie und Fuge F-Dur
G.Frescobaldi
Bergamasca.
C. Franck
Pastorale, op. 19
J. Langlais
La Nativité.
P. Hindemith
Sonata II
Ch. N. Widor
Symphonie nr. 6, op. 42 (Allegro)
Antonio D. Corveiras organisti Haflgríms-
kirkju hélt nýlega Ijósmyndasýningu í Gall-
erí Suðurgötu 7, Rvk. Á sýningunni voru
svart/hvítar Ijósmyndir frá átthögum lista-
mannsins.Asturias á norðurströnd Spánar.
Kór Langholtskirkju hélt 9 tónleika á sl.
starfsári. Meðal þeirra voru tónleikar í
Fíladelfíukirkjunni á föstudaginn langa,
sem kórinn hélt ísamráði viðSibyl Urbancic,
en tónleikar þessir voru helgaðir minningu
föður hennar, dr. Victors Urbancic. Hún
spilaði sálmforleiki eftir J.S. Bach, Jo-
hannes Brahms og Anton Heiler, en kórinn
söng á milli tilheyrandi sálmalög í útsetn-
ingu J.S. Bach.
í byrjun maí söng kórinn í Selfosskirkju,
Skálholtskirkju og Háteigskirkju verk eftir
Gunnar Reyni Sveinsson, Þorkel Sigur-
björnsson, norska tónskáldið Sverre Bergh
og sálmalög í úts. J.S. Bach.
ORGANISTABLAÐIÐ: Útg. Félag Islenskra organleikara.
Formaöur: Kristján Sigtryggsson, gjaldkeri: Flelgi Bragason, ritari: Jón Stefánsson.
Blaönefnd: Glúmur Gylfason, Smári Ólason ábm, Þorvaldur Björnsson.
Afgreiöslumaöur blaösins: Þorvaldur Björnsson, Efstasundi 37, Reykjavlk.
Prentaö I Borgarprenti.
ORGANISTABLAÐIÐ 21