Morgunblaðið - 23.11.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 3. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
314. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
«FLUGAN FÓR Á STJÁ
LEIKRIT OG ULTRA
MEGA TÓNLEIKAR
«RÁÐSTEFNA UM KYN OG VÖLD
Missum forskot í
jafnréttisbaráttu
96
ára
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
EF jafnræðisregla samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið gilti þyrfti íslenska ríkið að
greiða Bretum milljarði evra, 185 milljörðum
króna, minna í vexti af Icesave-láni. Þetta segir
Daniel Gros, hagfræðingur og bankaráðsmaður
Seðlabanka Íslands, í álitsgerð.
Í álitsgerðinni varpar Gros fram þeirri spurn-
ingu hvort Bretum og Hollendingum beri að veita
Íslendingum sömu lánskjör og eigin trygging-
arsjóðum, í samræmi við jafnræðisreglu samn-
ingsins um Evrópska efnahagssvæðið. Það þýddi
að vaxtagreiðslur Íslendinga vegna hinnar svo-
kölluðu Icesave-skuldar við Breta yrðu allt að
einum milljarði evra minni en ella.
Gros segir að ríkisstjórnum Breta og Hollend-
inga hafi tekist að sýna fram á að Íslendingum
beri að tryggja innstæður í íslensku bönkunum
erlendis, ekki síður en á Íslandi. Þetta hafi við-
semjendur Íslands sýnt fram á með skírskotun í
jafnræðisreglu samningsins um Evrópska efna-
hagssvæðið. Eins og kunnugt er hafa ríkisstjórn-
ir Breta og Hollendinga lánað Íslendingum nærri
4 milljarða evra á 5,55% ársvöxtum.
„Það er staðreynd sem fáir hafa leitt hugann
að hingað til að innstæðutryggingakerfi bæði
Breta og Hollendinga eru af „ex post“-meiði, sem
þýðir að tryggingakerfin hafa ekki safnað nægi-
legu fjármagni, heldur fjármagna útborganir að
mestu með lánum frá eigin stjórnvöldum,“ segir
Gros í álitsgerðinni.
Því vakni spurningin hvaða lánskjör sjóðirnir
fái hjá ríkisstjórnum Breta og Hollendinga. Svar-
ið fyrir Bretland sé að sjóðurinn fái lán á LI-
BOR-vöxtum, að viðbættum 30 grunnpunktum,
sem þýðir 1,5% um þessar mundir. Þetta sé fjór-
um prósentustigum undir lánskjörum Íslendinga,
sem eru 5,55% sem fyrr segir. Þetta samsvari um
100 milljónum evra á ári, eða samanlagt yfir 1
milljarði evra á lánstímanum með uppsöfnuðum
vöxtum.
Hámarksgreiðslur fimm milljónir evra?
Þá hafi breska fjármálaráðuneytið að auki
ákveðið að á næstu þremur árum greiði breskar
fjármálastofnanir ekki meira en einn milljarð
punda í ársvexti af lánum sem breski trygging-
arsjóðurinn fái frá fjármálaráðuneytinu. Það
samsvari því að hámarksgreiðslur íslenska rík-
isins væru fimm milljónir evra á ári, enda sé
efnahagslíf Bretlands u.þ.b. 200 sinnum stærra
en Íslands.
Gæti sparað Íslend-
ingum 185 milljarða
Daniel Gros spyr hvort Bretum og Hollendingum beri að veita Íslandi lán á
sömu vöxtum og eigin tryggingarsjóðum Skírskotar til jafnræðisreglu EES
» Samkvæmt jafnræðisreglu
EES ber Hollendingum og Bret-
um að veita Íslandi sömu láns-
kjör og sjóðum sínum.
JAKOB Jóhann Sveinsson fór mikinn á Íslands-
meistaramótinu í sundi í Laugardalslaug um
helgina. Hann sigraði í 50, 100 og 200 metra
bringusundi og stórbætti Íslandsmetin í öllum
tilfellum. Hann varð fyrstur Íslendinga til þess
að synda 100 m bringusund á skemmri tíma en
einni mínútu, synti á 58,91 sekúndu. Það er næst-
besti árangur í Evrópu á þessu ári og annar besti
árangur Norðurlandabúa frá upphafi. | Íþróttir
Morgunblaðið/hag
JAKOB JÓHANN ANNAR BESTUR Í EVRÓPU
LÖGMAÐUR Þjóðarhags, hóps
fjárfesta sem áhuga hafa á að kaupa
smásölukeðjuna Haga af Arion
banka, fundaði með stjórnendum
bankans í gær og fékk þau svör að
leitað væri lausna með fyrrverandi
eigendum Haga.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segir mikilvægt að stjórnendur Ar-
ion skýri hvort sú regla gildi að fyrri
stjórnendur hafi forkaupsrétt í fyrir-
tækjum sem bankinn leysir til sín.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að enn
skorti á nauðsynlegt traust þjóð-
arinnar gagnvart bankakerfinu.
Magnús Orri Schram, þingmaður
Samfylkingar, segir að illgerlegt sé
fyrir stjórnmálamenn að tjá sig um
ákvarðanir ríkisbankanna sem snúa
að einstaka viðskiptavinum. | 2
Leita ekki
lausna með
Þjóðarhag
Arion banki ræðir
við fyrri eigendur
Íslandsmeistaralið HK ætlar sér
stóra hluti í kvennablakinu en liðið
tapaði ekki leik á síðustu leiktíð.
Meistaralið Þróttar er enn án sig-
urs í karlaflokki.
ÍÞRÓTTIR
Meistaralið Þrótt-
ar enn án sigurs
Nýliðar Fjölnis fögnuðu sigri gegn
Hamri í Iceland Express-deildinni í
körfubolta karla. Keflavík vann
„Suðurnesjaslaginn“ gegn Grinda-
vík. Sigur ÍR á FSu var auðveldur.
Keflvíkingar unnu
„grannaslaginn“