Morgunblaðið - 23.11.2009, Side 4
Í HNOTSKURN
» Jóhanna segist viss um að hindrunumverði rutt úr vegi Suðvesturlínu svo fram-
kvæmdir við hana geti hafist í sumar.
» Kærufrestur vegna úrskurðar Skipulags-stofnunar um að línan þurfi ekki að fara í
sameiginlegt mat rennur út 4. desember.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
UMMÆLI Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra þess efnis að hindrunum verði rutt úr vegi
Suðvesturlínu hafa vakið mikla athygli, og litla
hrifningu hjá sumum flokksmönnum Vinstri
grænna.
Von er á stjórnsýslukæru frá Náttúruvernd-
arsamtökum Íslands vegna úrskurðar Skipulags-
stofnunar um að línan þurfi ekki að fara í heild-
stætt umhverfismat með tengdum
framkvæmdum, og telja margir að forsætisráð-
herra sé með orðum sínum að setja þrýsting á um-
hverfisráðherra um að fella ekki úrskurð Skipu-
lagsstofnunar aftur úr gildi.
Ummæli Jóhönnu féllu á flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar, en þar sagðist hún jafnframt
gera ráð fyrir að framkvæmdir við álver í Helgu-
vík færu á fullt í vor og að á sama tíma hæfist
vinna við Búðarhálsvirkjun.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir
Jóhönnu verða að skýra ummæli sín. Yfirlýsingin
kom Svandísi á óvart, enda hefur ekki verið rætt
um Suðvesturlínu innan ríkisstjórnarinnar frá því
að umhverfisráðherra felldi úr gildi fyrri úrskurð
Skipulagsstofnunar um að línan þyrfti ekki að
fara í sameiginlegt mat.
Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður
Vinstri grænna, er einnig undrandi á ummælum
Jóhönnu. „Málið er einfaldlega í tilteknu ferli og
ekki heppilegt að tjá sig með þessum hætti á með-
an svo er.“
Skýri hvaðan orkan á að koma
Árni Finnsson, formaður Náttúruvernd-
arsamtaka Íslands, segist gera ráð fyrir að Jó-
hanna sé með ummælum sínum að setja þrýsting
á VG. Hann segir Jóhönnu verða að skýra hvaðan
orkan vegna álvers Norðuráls í Helguvík eigi að
koma. Sem kunnugt er hefur Ólafur G. Flóvenz,
forstjóri Íslenskra orkurannsókna, sagt að vænt-
anlega verði á næstu árum ekki hægt að útvega
orku fyrir álver af þeirri stærðargráðu sem Norð-
urál stefnir að í Helguvík.
Árni Finnsson segir ummæli Jóhönnu stangast
á við hugmyndina að baki rammaáætlun rík-
isstjórnarinnar um nýtingu vatnsafls og jarð-
varma, en markmið áætlunarinnar er að leggja
mat á og flokka virkjunarkosti.
Hissa á forsætisráðherra
Umhverfisráðherra segir forsætisráðherra verða að skýra ummæli sín um
Suðvesturlínu Þingflokksformaður VG segir ummæli Jóhönnu vera óheppileg
Morgunblaðið/RAX
Háhitasvæði Suðvesturlína er orðin að hitamáli.
Morgunblaðið/Ómar
Kaupþing Starfsmaður hefur verið
kærður fyrir fjárdrátt og fleira.
MÁLI konu sem lengi starfaði við
eignastýringu hjá Kaupþingi hefur
verið vísað til efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra en hún er grunuð
um stórfelldan fjárdrátt. Konan er
einnig grunuð um fleiri brot, svo sem
umboðssvik, að sögn Jóhannesar
Rúnars Jóhannessonar sem situr í
skilanefnd Kaupþings.
Í fréttum ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi sagði að sá fjárdráttur sem
konan er grunuð um nemi hundruð-
um milljóna króna. Jóhannes vildi í
samtali við Morgunblaðið ekki stað-
festa þá tölu né heldur upplýsa
hvernig málið komst upp, enda sé
það komið til lögreglunnar.
Mál þetta kom upp í sumar og var
konunni þá þegar sagt upp störfum.
Hún hafði starfað um hríð hjá Kaup-
þingi og hafði auk þess langa starfs-
reynslu af verðbréfamarkaði og naut
þar af leiðandi fyllsta trausts yfir-
manna og viðskiptavina. sbs@mbl.is
Dró sér fé hjá Kaupþingi
Kærð til lögreglu Grunur er um
umboðssvik Naut fyllsta trausts
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
Kanarí
2 fyrir 1 til
Verð frá 39.000
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Allra síðustu sætin!
Nú bjóðum við allra síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 24. nóvember í
25 nætur á frábæru tilboði. Þú bókar 2 fllugsæti en greiðir aðeins fyrir 1.
Gríptu tækifærið og smelltu þér til Kanarí á hreint ótrúlegum kjörum.
24. nóv
Verð kr. 39.900
Netverð á mann. Flugsæti
báðar leiðir með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1 tilboð.
MANNINUM, sem slasaðist lífs-
hættulega þegar hann féll á steypu-
styrktarjárn, er haldið sofandi í önd-
unarvél á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi.
Maðurinn, sem er á fertugsaldri,
var í sumarbústað við Efra Langholt
í Hrunamannahreppi ásamt foreldr-
um sínum og systkinum. Um tvöleyt-
ið aðfaranótt sunnudagsins féll hann
rúma fjóra metra af svölum bústað-
arins á botn tengibyggingar og fékk
sjö steypustyrktarjárn í gegnum lík-
amann.
Var með meðvitund
Lögreglu- og björgunarsveitar-
menn voru kallaðir á vettvang til að
losa manninn. Saga þurfti járntein-
ana í sundur með slípirokk en ekki
var talið óhætt að losa járnið úr
manninum á staðnum.
Hann var með meðvitund fyrst um
sinn en tók að hraka meðan verið var
að losa hann. Eftir að það tókst var
hann fluttur um borð í þyrlu Land-
helgisgæslunnar og lenti hún á
Landspítalanum á fjórða tímanum.
Var maðurinn þá umsvifalaust send-
ur í aðgerð sem lauk seinnipartinn í
gær.
Haldið sofandi
í öndunarvél
Alvarlega slasaður eftir að hafa fengið
steypustyrktarjárn gegnum líkamann
Morgunblaðið/Júlíus
Veitti aðstoð Þyrla Landhelgis-
gæslunnar flutti manninn á Land-
spítalann. Myndin er úr safni.
MARGT má læra af efnahagskreppunni sem gekk yfir
þjóðina á árunum 1967 til 1969, sagði Styrmir Gunn-
arsson, fyrrverandi ritstjóri, í ræðu á 80 ára afmæl-
ishátíð Sjálfstæðisflokksins í gær. Sérstaklega yrði að
hafa í huga, að góð tengsl forsætisráðherrans Bjarna
Benediktssonar við verkalýðshreyfinguna réðu úrslit-
um um að ríkisstjórninni tókst að stýra þjóðarskútunni
í höfn.
„Mér er minnisstæður fundur sem [Bjarni] átti með
kaupmönnum í Reykjavík … sem þá voru í uppreisn
vegna verðlagsákvæða sem ríkisstjórnin hafði ákveðið
að beita sér fyrir,“ sagði Styrmir. Bjarni hafi látið
kaupmennina heyra það, og fært rök fyrir því að þeir
þyrftu að taka á sig kjaraskerðingu eins og aðrir.
„Þessi fundur hefur rifjast upp fyrir mér aftur og aftur
á undanförnum áratug, þegar mér hefur þótt for-
ystumenn Sjálfstæðisflokksins of hallir undir viðskipta-
lífið og hagsmuni þess.“
Í umræðum í kjölfarið sagði Styrmir að með fullri
virðingu fyrir Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins, væri það ekki eðlilegt að fela
atvinnurekendum alfarið að reisa við efnahagslífið, en
Vilhjálmur var fyrr á árinu settur yfir endurreisn-
arnefnd Sjálfstæðisflokksins. Uppbyggingarstarfið
þyrfti að byggjast á breiðari grunni, og ætti að fara
fram í góðu samstarfi við verkalýðshreyfinguna.
Inga Jóna Þórðardóttir, viðskiptafræðingur og
fyrrv.borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hélt einnig
ræðu á afmælishátíðinni. Sagði hún meðal annars að
flokkurinn þyrfti að taka sig á til að höfða betur til
ungra kvenna.
Vegna lítillar þátttöku þurfti að blása af uppboð sem
halda átti á munum í eigu flokksins. Meðal þess sem
bjóða átti upp voru stólar úr fyrsta þingflokksherbergi
flokksins og gömul kosningaveggspjöld.
hlynurorri@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gagnrýninn Styrmir sagði forystumenn Sjálfstæðisflokks oft hafa verið of hallir undir hagsmuni viðskiptalífsins.
Samstarf við verkalýðs-
hreyfingu nauðsynlegt
Hægt að læra margt af kreppunni í lok sjöunda áratugarins
„ÞAÐ er ánægju-
legt að hún hafi
upplýsingar úr
sínum herbúðum
um að ekki verði
frekari tafir á því
verki,“ segir
Árni Sigfússon,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar,
um þau ummæli
Jóhönnu Sigurðardóttur að ekki
verði frekari hindranir í vegi fyrir
Suðvesturlínu. „Suðvesturlína er
auðvitað forsenda þess að hægt sé
að flytja orku í þau verkefni sem
við erum að byggja hér upp.“
Því hefur verið haldið fram að
ekki sé til næg orka fyrir álver
Norðuráls í Helguvík, og því sé
Suðvesturlína ekki nægileg til þess
að framkvæmdir við álverið geti
hafist. Við því segir Árni: „Það hlýt-
ur að vera mál Norðuráls hvort þeir
treysta sér til að ráðast í uppbygg-
ingu álvers án þess að vita fyr-
irfram hvort þeir afla sér nauðsyn-
legrar orku.“
hlynurorri@mbl.is
Fagnar orð-
um Jóhönnu
Árni Sigfússon