Morgunblaðið - 23.11.2009, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
YFIR 32.000 GESTIR
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
FRÁBÆR MYND UM UPP-
VAXTARÁR EINS ÁSTSÆLASTA
KÖRFUBOLTAMANN
SAMTÍMANS, LEBRON JAMES.
SÝND Í ÁLFABAKKA
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Jim Carrey fer gersamlega á kostum
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
HHHH
„STÓRKOSTLEGT SJÓNARSPIL“
- ROGER EBERT
„STÓRKOSTLEG
UPPLIFUN“
- C.G - AAS
„MEISTARAVERK, JIM CARREY
ER HREINT STÓRKOSTLEGUR“
M.S.A – CBS TV
JIM CARREY
Sýnd með íslensku
og ensku tali
Frá Robert Zemeckis, leikstjóra “Forrest
Gump” og “Back to the Future” myn-
danna kemur hið klassíska jólaævintýri
Charles Dickens.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
/ KRINGLUNNI
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL MY LIFE IN RUINS kl.5:50-8 L
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.5:503D -83D -10:103D ótextuð 7 3D-DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:10 L
PANDORUM kl.8 -10:20 16
L
16
/ ÁLFABAKKA
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:503D 7 3D DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 8-10:20 L
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 83D - 10:103D ótextuð 7 3D DIGITAL MORE THAN A GAME kl. 5:50 7
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:50 7 COUPLES RETREAT kl. 8 12
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 8-10:10 7 ALGJÖR SVEPPI.. kl. 6 L
PANDORUM kl. 5:50-8-10:20 16
HORSEMEN kl. 10:20 16
LAW ABIDING CITIZEN kl. 5:50-8-10:20 LÚXUS VIP
Eftir Atla Vigfússon
ÞAÐ var hátíðleg stund við Skriðu-
flúð í Aðaldal þegar Bubbi Morthens
afhenti Völundi Hermóðssyni, full-
trúa ábúenda á Nesbæjunum, eintak
af nýju bókinni sinni, Áin, beint úr
prentsmiðjunni. Glatt var á hjalla á
árbakkanum af þessu tilefni, en þar
voru, auk Bubba og Völundar, ljós-
myndari bókarinnar, Einar Falur
Ingólfsson, og útgefandinn Hildur
Hermóðsdóttir, sem fögnuðu tíma-
mótunum.
Það er Salka forlag sem gefur bók-
ina út og boðað var til útgáfukaffis í
félagsheimilinu Ýdölum til þess að
kynna útgáfuna og gleðjast yfir góð-
um árangri. Þar mætti margt fólk úr
Aðaldal til þess að fagna með þeim
sem hafa unnið að undirbúningi bók-
arinnar, sem óneitanlega hefur vakið
athygli.
Mikið af myndum úr bókinni var
sýnt í kaffinu, á tjaldi til kynningar,
og höfðu allir gaman af að sjá þær.
Mörg ný sjónarhorn sáust af landi og
úr lofti sem fólk hafði ekki kynnst áð-
ur.
Hildur Hermóðsdóttir, hjá Sölku
forlagi, ávarpaði gesti og sagði að á
bak við bókina væru margar vinnu-
stundir en margir hefðu lagt hönd á
plóginn. Hún sagði að sér hefði fund-
ist mjög viðeigandi að bókin yrði
fyrst kynnt í Aðaldalnum, þar sem
efnið á uppruna sinn, og þakkaði hún
samverkamönnum sínum fyrir
ánægjulegt og skemmtilegt samstarf
og var að vonum ánægð.
Draumur um stórfisk
Bubbi Morthens greindi frá til-
drögum þess að hann hóf verk þetta.
Hann sagði Völund Hermóðsson og
Árna Pétur Hilmarsson hafa hvatt
hann til þess að skrifa bókina þegar
hann fór að nefna það að ástæða væri
til að festa efnið á blað og þakkaði
þeim sérstaklega fyrir að kveikja
áhugann. Hann lýsti draumum sínum
um að landa stórfiski sem hann hafði
sett í og Nessvæðið sótti á hann eftir
að hann dvaldi þar í nokkra daga
sumarið 2007.
Ljóst er að það er mikil saga á bak
við fluguveiðina í Laxá í Aðaldal en
fyrstu fluguveiðimennirnir komu á
Nessvæði Laxár árið 1877 frá Bret-
landi. Ferðin var farin að frumkvæði
Charles H. Akroyd og það var Henry
Tollemache sem veiddi fyrsta flugu-
laxinn í Nesi. Allar götur síðan hefur
laxinn gengið upp ána og margar
sögur og ævintýri átt sér stað. Hver
sér ána með sínum augum og í nýrri
bók Bubba er mikill fróðleikur sem
ekki hefur áður birst almenningi.
Bubbi afhendir nýju
bókina á bökkum Laxár
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Lesið á bökkum Laxár F.v. Hildur Hermóðsdóttir, útgefandi hjá Sölku forlagi, Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari,
Bubbi Morthens og Völundur Hermóðsson, fulltrúi ábúenda á Nessvæðinu, en hann tók við fyrsta eintakinu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Kaffisamsæti Ábúendur á Nesbæjunum fengu bókina að gjöf ásamt leið-
sögumönnum sem unnið hafa við ána og koma margir hverjir við sögu.
Ef allt er týnt til; kvikmynd-ir, sjónvarpsmyndir og-þættir, trónir Jólasaga –A Christmas Carol á
toppnum hvað snertir fjölda mynd-
gerða. Í nýjustu útgáfunni heldur
Robert Zemeckis áfram á sömu
braut og við gerð myndarinnar Pol-
ar Express fyrir fáeinum árum. Hún
var leikin og tölvuteiknuð og fannst
mörgum sú tilraun mislukkuð þar
sem leikararnir voru allir auðþekkj-
anlegir, aðeins lítillega skrum-
skældir í tölvugrafinu. Tilgangurinn
lá ekki ljós fyrir. Síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar í tölvu-
tækninni, að þessu sinni styðst Ze-
meckis vissulega við leik, og einkum
Jim Carrey sem mannar ófá hlut-
verk, en nú hafa tæknimenn náð
betri tökum á hugmyndinni að baki
Polar Express og fleiri slíkum. Car-
rey er nánast óþekkjanlegur og hef-
ur hlotið forláta meðferð í höndum
tölvusnillinga Disney, sem umsnúa
leikurunum á allan hátt svo úr verða
dýrðlegar og fullkomlega ævintýra-
legar persónur. Aukinheldur er
Jólasaga í frábærri, nýrri þrívídd
sem slær út annað sem áður hefur
sést.
Stórfenglegt útlitið er aðeins einn
af stórum kostum myndarinnar,
„leikur“ Carreys og raddbeiting er
unun á að horfa og hlýða, við hverf-
um aftur til tíma Dickens og sagan
fær að halda öllum sínum einkenn-
um, í henni eru lítil sem engin frávik
sem hafa skaðað margar kvik-
myndagerðir verksins. Við fylgj-
umst með jólum nirfilsins Ebenesers
Scrooge og heimsóknum andanna
sem reyna að ýta við samvisku hans
með því að sýna honum hvers konar
afmán hann er og reyna hvað þeir
geta að leiða hann á rétta braut í líf-
inu.
Boðskapurinn er ætíð jafn góður
og gildur og hefur sjaldan verið
áhrifameiri en með hjálp tækni-
galdra nútímans. Myndin er dálítið
rosaleg í augum yngstu barnanna en
ég gat ekki betur séð en að þau sem
voru með mér á sýningunni
skemmtu sér konunglega – eftir
fyrstu andköfin.
Tæknivinnan er framúrskarandi
og hið sama verður sagt um tónlist
Alans Silvestri, töku og leik, ef við
höldum okkur við þá skilgreiningu á
frammistöðu leikaranna. Carrey er
engum líkur og fær einstakt tæki-
færi til að viðra sínar fjölmörgu
ásjónur og blæbrigði raddbeiting-
arinnar. Íslenska raddsetningin með
hinn sjóaða Hjálmar Hjálmarsson í
hlutverki Scrooge er að flestu leyti
óaðfinnanleg og Jólasaga stendur í
alla staði undir nafni og er ósvikin
jólamynd að öllu leyti. Það er mik-
ilvægt að velta sígildu efninu alvar-
lega fyrir sér, e.t.v. hefur það aldrei
verið jafn áleitið og nú.
saebjorn@heimsnet.is
Jólasaga „Boðskapurinn er ætíð jafn góður og gildur og sjaldan verið
áhrifameiri en með hjálp tæknigaldra nútímans.“
Sígild og mikil-
væg jólasaga
Sambíóin um allt land
A Christmas Carol – Jólasaga
bbbbn
Tölvuteiknuð/leikin með enskri og ís-
lenskri raddsetningu. Leikstjóri: Robert
Zemeckis. Aðalraddir, enska: Jim Car-
rey, Cary Elwes, Colin Firth, Gary Old-
man, Bob Hoskins, Robin Wright Penn,
Fionnula Flanagan. Aðalraddir, íslenska:
Hjálmar Hjálmarsson, Stefán Jónsson,
Atli Rafn Sigurðarson, Valdimar Flyger-
ing, Karl Ágúst Úlfsson, Magnús Jóns-
son. 95 mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND