Skólablaðið - 01.02.1956, Síða 6
- 85
af rúmlega 400 nemendum skólans sjá
sér fært að hlýða á.
Eða hafa fyrirlestrar þeir, sem fluttir
hafa verið, fjallað um svo ómerkileg
efni, að þeir hafa ekki verið áheyrnar
verðir ?
Framtíðin er ríkt félag á mælikvarða
skólans. Við tókum við nokkurri peninga-
eign í vor, sem síðan hefur aukizt af
árgjöldum og ágóða af árshátíð. Við
teljum rétt að verja þessu fé í þágu
nemenda, en láta það ekki verða að engu
í banka á þessum síðustu og verstu tím-
um verðbólgu og gengisfellingar. Keypt
hafa verið töfl og spil, sem lánuð eru í
selsferðir og samkomur. Kaup á segul-
bandstæki eru í bígerð svo og kaup á
ræðustól og fleiru.
Að lokum þetta :
Framtíðin er félag nemenda skólans
en ekki einkafyrirtæki stjórnarinnar.
Stuðlum öll að auknum hróðri þessa
"fjörgamla en síunga félags".
Berið fram gagnrýni á misfellum,
sem á verða, og stingið upp á nýj -
ungum, sem ykkur kunna að hafa
hugkvæmzt.
Eflum samheldni og áhuga félags-
manna - þá getum við "litið björtum
augum á Framtíðina" !
ÓLAFUR JÓNSSON, formaður Braga :
Hér í skóla er kennslu svo háttað, að
lítið tóm gefst til fræðslu um bókmenntir,
listir og önnur menningarmál. Fyrir þá
sök hafa nemendur sjálfir gengizt fyrir
stofnun félaga, er sinna skulu þeim mál-
um. Má þar til nefna bókmenntafélagið
Braga, svo og hið nýstofnaða myndlistar-
félag. Tilgangur þessara félaga er að
halda uppi kynningu á bókmenntum og
listum meðal nemenda og miðla þeim
svo skemmtan og nokkrum fróðleik. En
frumskilyrði þess, að félögin megi blóm-
^ast er, að nemendur almennt sýni áhuga
a starfi þeirra og sæki kvöldvökurnar,
sem þau gangast fyrir. Forystumenn
þessara félaga vinna mikið verk í tóm-
stundum sínum til undirbúnings og fram-
kvæmda við félagsstarfið. Séu verkalaun-
in aðeins auðir bekkir á samkomum fé -
laganna, er eðlilegt, að menn þreytist á
öllu þessu amstri og hvekkist á að fá
ræðumenn og upplesara til að þruma í
auðum salnum. Verkefnin eru ærin„ En
langlífi félaganna í skólanum byggíst
einvörðungu á góðum undirtektum alls
þorra nemenda.
Hér á eftir verður gerð stutt grein
fyrir starfsemi bókmenntafélagsins
Braga, það sem af er vetrar, svo og
framtíðaráætlunum félagsins.
Skólaárið 1955-5 6 er fjórða starfsár
félagsins. Undanfarin ár hefur félagið
starfað vel, einkanlega þó fyrsta árið,
enda hefur áhugi á starfi þess aldrei
verið meiri en þá„ Þá var m„a„ haldið
uppi leshring, en aðstæður hafa ekki
leyft, að þeirri starfsemi væri haldið
áfram, og er það mjög miður„ - í vetur
hefur félagið starfað á svi.paðan hátt og
undanfarin ár. Fram til jóla hélt það
þrjár kvöldvökur, er allar lánuðust vel„
Eftir hátíðarnar varð allmikil töf á
starfsemi félagsins af óviðráðanlegum
orsökum, en samt er í ráði að halda
3-4 kvöldvökur fram til vors„ Ekki er
tímabært að skýra nánar frá starfsáætl-
un félagsins, en þó má geta þess, að
innan skamms verður haldin skólaskálda-
vaka. Slíkt hefur aðeins verið gert éinu
sinni áður, en þarf að vera fastur liður
í starfi félagsins, eins og ungskáldavakan
á haustin er nú fastur liður. Að öðru
leyti mun félagið kosta kapps um að
þjóna tilgangi sínum eftir megni : kynna
íslenzkar og erlendar bókmenntir og
bókmenntastefnur sem bezt það kann„
Nokkur misbrestur hefur á stundum
orðið á aðsókn nemenda á samkomur
félagsins. T. d„ var síðasta kvöldvaka
fyrir jól svo fásótt, að tæpast var þar
messufært, Slíkt sinnuleysi er illþolandi
og getur vel orðið félaginu hættulegt.
Verði sú þróun málanna í framtíðinni,
að hverja kvöldvöku sæki aðefns Z0-30
manns, hlýtur það að leggjast niður fyrr
eða síðar. Þá verður þess skammt að
bíða, að allt féla^slíf menntlinga verði
hringsól á dansgolfi og fánýtar lysti-
reisur í Selið þá sjaldan að slíkt leyfist.
Nú getur hver og einn gert það upp við
sjálfan sig, hvort þá væri vel farið eður
eigi. Á þeim úrskurði nemenda veltur
líf eða dauði Braga og annarra slíkra
félaga hér í skóla. _ , ✓ , ,
B Frh„ a bls. 109.