Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1956, Qupperneq 9

Skólablaðið - 01.02.1956, Qupperneq 9
- 88 - senn mannlegur og brjóstumkennanLegur og mjög svo skoplegur. En mér virtist leikur Bernharðs ekki nógu heilsteyptur, annað veifið jaðraði við að hann ofléki„ hitt veifið var eins og hann dytti ut ur hlut- verkinu : Jordan burgeis var á bak og burt, en Bernharður Guðmundsson stóð eftir í buxunum hans„ En hlutverkið er stórt og eflaust erfitt viðfangs, og þrátt fyrir þessa annmarka held ég, að Bern- harður hafi gert því ánægjuleg skil eftir því sem vænta mátti. Ólafur B„ Thors leikur Kleont einkar smekklega„ Hann er gervilegur á sviði og fer vel með hlutverk sitt„ ÞÓ gæti hann sýnt sterkari innlifun, stórbrotnara skap, Jon E. Ragnarsson leikur jón E. Ragn- arsson þénara vel og lystilega eins og hans var von og vísa, og verður þar hvergi lát á„ Ragnar Arnalds leikur skálkinn Dórant greifa„ Ragnar ber sig vel á sviðinu og er hinn karlmannlegasti, en leikur hans er með nokkrum viðvaningsbrag, og hann er ekki ýkja sannfærandi elskhugi. Þá kann ég ekki við hið stöðuga glott hans, greifar uti í Frans glotta varla sisona dag út og dag inn. Maddömu jórdan leikur Holmfríður Gunnarsdóttir. Holmfríður er eins og sköpuð í þetta hlutverk, hún typtar bónda sinn svo röggsamlega, að hún virðist aldrei hafa haft annan starfa en aga óstýrilátan karlpening. Raddbeiting HÓlm- fríðar er þó ekki góð, ræða hennar verð- ur mónótón á köflum. Máski hefði leik- stjóri getað bætt úr þessu. LÚsílu dóttur hjóna leikur Auður Inga Óskarsdóttir. Auður er fögur og glæsileg á sviðinu, svo sem byrjar einni heima- sætu, en hún fær ekki tilefni til leiks, svo að vart verður séð, hvað í henni býr„ Ragnheiður Torfadóttir er Dorímena markgreifaekkja. Ragnheiður er einkar glæsileg í framgöngu, en leikur hennar er kuldalegur og stirður um of, hið suðræna blóð markgreifaekkjunnar ólgar ekki nægj- anlega í æðum hennar. Brjnja Benediktsdóttir leikur Nikólínu og syndi einhvern bezta leik kvöldsins. Brynj'a er létt og eðlileg á sviðinu, kátína henna.r og röskleiki ósvikin. (Þo voru hlátursköst hennar ekki alltaf sem eðli- legust, leikstjóri hefði átt að geta bætt úr því. ) í meðförum Brynju varð þernan Nikólína ein geðfelldasta og skemmtilegasta persóna leiksins. Einkum var samleikur þeirra jóns Ragn- arssonar góður„ Minni hlutverk eru söngkennari og nemandi hans, dansmeistari, heimspek- ingur, skylmingameistari, skraddari og þénarar, sem Jakob Möller, Atli Heim- ir Sveinsson, ísak Hallgrímsson, Þor- kell Sigurbjörnsson, Þor Benediktsson, jón Jakobsson, Óttar Halldórsson og Auðólfur Gunnarsson leika. Af öllum þessum var Jakob Möller söngkennari einna beztur„ Sætir furðu, að svo goður gamanleikari skuli ekki hafa leikið í skólaleik áður. - Þorkell Sigurbjörnsson var bráðskemmtilegur heimspekingur og vakti einnig mikla kátínu í hinu kostulega gervi kokksins. Aðrir þeir heiðursmenn, sem upp voru taldir, fóru einnig vel með hlutverk sín, og gerði það sitt til að sýningin fengi góðan heildar svip. Söngur var nokkur í leiknum og allur heldur lítilmótlej;ur, en annar tónlistar- flutningur var góður svo og hinn lysti- legi menúett að leikslokum. Benedikt Árnason stjórnaði leiknum, og virtist mér, fáfróðum leikmanni, hann leysa starf sitt vel af hendi, þrátt fyrir smávægilegar misfellur. ÞÓ óprýðir það leik. margra leikendanna, að þeir eru óhæfilej*a þvöglumæltir, og hefði leik- stjóri att að geta ráðið bót á því„ Bjarni Guðmundsson þýddi leikinn vel og lipurlega. Ef litið er á sýninguna í heild, má segja, að hún hafi tekizt vel„ Goður hraði er í leiknum, einkum þegar á líður, og heildarsvipur sýningarinnar er góður. Einkum er atriðið milli elskendanna fjög- urra gott, svo og tyrkjaatriðið, og ber leikstjóra eflaust heiðurinn af því„ Dauðir punktar eru engir í leiknum, og leikendur standa sig yfirleitt vel, sumir meira að segja mjög vel á okkar mælikvarða„ Að öllu samanlögðu held ég, að þetta sé með betri menntaskólasýningum. Hafi svo leiknefnd og allir þeir, er að sýningunni unnu, þökk fyrir gott starf„ 3„febr. 1956. ÓL.AFUR JÓNSSON

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.