Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1956, Blaðsíða 25

Skólablaðið - 01.02.1956, Blaðsíða 25
- 104 - unarvara, jafnt lærdómur sem annað. Menn eru hættir að spyrjap hvort eitthvað sé gagnlegt, heldur hvort hægt se að græða á því. Læknar og lögfræðingar eru orðnir nokkurs konar verzlunarmenn og gott ef prestar fara ekki bráðum að "praktisera" líka. Meðan sá hugsunar- háttur, sem felst á bak við spurninguna: græðir maður á þessu? ríkir alls stað- ar, er ekki undarlegt, þótt sumir fari að hugsa sig um tvisvar, áður en leggja ut í langt og erfitt nám án nokkurs öryg^is um "sæmilega vel borgað starf" að nami loknu, þegar þeir geta ef til vill fengið strax starf, sem krefst lítillar menntun- ar og er bara "vel launað". Meðan þjóð- félagið verðlaunar menn svona fyrir að mennta sig ekki, er engin furða, þótt skoðuri afturhaldss ömu "skólamannanna" okkar um að of margir unglingar leggi ut á braut langskólanámsins eigi miklu fylgi að .fagna meðal almennings. En samt skulum við vona, að hér á okkar landi verði manngildið og gildi menfitunarinnar meir metið í framtíðinni en gildi peninganna. Ef svo verður, þurfum við litlu að kvíða. ÚTÞRA Þýðir á vori vindar sefa úfinn sjá. Bárurnar gjálpa og glotta í fjörunni, vita þó, að bátur minn er brotinn niður í vör. Þíðir á vori vindar sefa úfinn sjá, en æði mitt og angur mitt augu djúp og blá. BLEKSLETTUR, frh. af bls. 101. EITT SINN BIRTIR næði fram að ganga, yrði ríkisstj. ástsæl hjá öllu landsfólki. Var henni því bráður bani búinn og var að henni mikill mannskaði. Lykur hér að segja af þeirri ráðstefnu en ÞÁ SAKAR EKKI AÐ GETA ÞESS, að er nokkuð hægðist um, voru frómir hugsjónamenn staðnir að verki við stofnun bindindisfélags, og þótti það firn mikil í Reykjavíkur lærða skóla. Að sinni var þó einungis um tilraunastarfsemi að ræða, en mjög merkilega, þó ekki væri nema vegna þess, að hún virðist ætla að takast. Það er heldur fátítt í seinni tíð að ný- græðlingar skjóti kolli upp úr því "andans eyðimerkur og örfokalandi", er menntlingar hafa vetursetu í, og hyggjum vér því gott til glóðarinnar að fylgjast með, hversu þessum farnast. Fylgja hon- um því allar góðar óskir, er hann heldur ut á hinar hálu brautir mannlífsins. Senn mun birta, bjarma aí sól á glugga, og fölleit andlit eygja nýja von í ókomnum degi. En aftur mun syrta, án þess að nokkuð gerist, falla að utan óttans kviku skuggar og enn þá svefn. En eitt sinn birtir öðruvísi en fyrr, og opnast nýir vegir. Ggr. J. B

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.