Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1958, Blaðsíða 14

Skólablaðið - 01.03.1958, Blaðsíða 14
GUÐJÖN GUÐMUNDSSON : 134 - íéiM 'i imfú'úvmn í skolum þeim„ er ég heimsotti í vesturför minni síðastliðinn vetur, gafst mér tækifæri til aö ræða við ýmsa skólamenn, bæði kennara og skólastjóra. Og að sjálísögðu var umræðuefnið oftast skólamálo Sérstaklega er mér minnis- stætt samtal, sem ég átti við kennara einn í gagnfræðaskóla (high school ) í NoY. fylkio 'Kennari þessi hefur þann starfa að vera ráðunautur nemendanna (guidance teacher) í ýmsum málum, er námið varða. T.d„ aðstoðar hann nemendur, sem hyggj- ast stunda háskólanám, við að fá inngöngu í skóla við þeirra hæfi. Fyrrnefndur kennari hefur að því leyti yfirgripsmeiri þekkingu á skólamálum en margir aðrir bandarískir kennarar, að hann hefur stundað nám við ýmsa háskóla í Evrópu, m. a. við Sorbonneháskóla. Umræðuefnið í samtali okkar var uppá- haldsumræðuefni hans, þ.e. kostir og gallar skólakerfa Bandaríkjanna og ýmissa Evrópulanda. Hann hélt því fram, að kost- ir bandaríska kerfisins væru meiri, þó að ekki væri það gallalaust. Og hann kvað þessa kosti birtast bezt í þjóðfélagshátt- um Bandaríkjamanna. Ekki bæri þó að skilja þetta svo, að bandarískir háskólar utskrifuðu betri verkfræðinga, lækna, lögfræðinga o. s.frv. en háskólar í Evr- ópu. Hann taldi, að oft væri reyndin hið gagnstæða. Hins vegar kvað hann banda- ríska kerfið veita þjóðinni í heild hald- betri almenna menntun en skólakerfi Evrópuþjóða veittu þeim. Gagnfræða- skólamenntun bandarísks iðnaðarmanns væri t. d. haldbetri en menntun iðnaðar - manns í Evrópu, sem ekki ósjaldan næmi iðnina af föður sínum og fengi einungis barnaskólafræðslu sem almenna menntun. A hinn bóginn taldi hann iðnaðarmenn í Evrópu síður en svo verri verkmenn. Þá kvað hann yfirburði bandarxska kerfis- ins birtast í því, að menntamenn einangr- uðust síður frá öðrum stéttum þjóðfélags- ins, þar eð allir sæktu sömu skólana allt fram til 18 ára aldurs. Þannig væru meiri Jíkur til þess í Bandaríkjunum en í Evrópu, að börn verkamanna og iðnaðar- manna öfluðu sér æðri menntunar. Hin ríka stéttaskipting, sem væri við lýði í svo mörgum Evrópulöndum, þekktist svo til ekki i Bandaríkjunum. Þetta taldi hann eiga rót sína að rekja til þeirrar fé- lagshyggju ( team-spirit), semandrums- loftið í skólunum skapaði. Skólaíþróttirn- ar ættu ekki hvað minnstan þátt í þessu, því að þær sköpuðu ekki einungis sam- stöðu meðal þátttakendanna, heldur meðal allra nemendanna í hverjum skóla. Og að síðustu kvað hann þessa félagshyggju eiga mikinn þátt í því, hversu langt Banda- ríkjamenn hefðu komizt í tækni og vísind- um, því að bandarískir verkfræðingar og vísindamenn stæðu starfsbræðrum sínum í Evrópu að engu leyti framar. Þó að mér þættu þessar skoðanir að ýmsu leyti athyglisverðar, gat ég ekki að öllu leyti fallizt á þær. T. d. gat ég ekki fallizt á, að ísland,sem eitt Evrópulanda, stæði Bandaríkjunum að baki, hvað alþýðu- menntun snerti, eða að stéttaskipting væri meiri á Tslandi en þar. Vinur minn, kenn- arinn, viðurkenndi fúslega, að svo þyrfti ekki að vera í jafnlitlu þjóðfélagi og hinu íslenzka, en við það tók ég aftur gleði mína og lét gott heita, þó að ég sé smeyk- ur um, að ýmsar þjóðir, t. d. frændur okkar á hinum Norðurlöndunum, hefðu ekki sætt sig við þessi málalok. En, hvað sem öllum skoðunum og kenn- ingum líður, er víst, að skólakerfi Banda- ríkjanna er að ýmsu leyti athyglisvert og fróðlegt fyrir íslendinga og aðra Evrópu- bua að kynnast því og bera saman við sín eigin kerfi. Ég ætla nú hér á eftir að reyna að miðla svolítið af minni litlu þekk- ingu á þessum málum. í Bandaríkjunum er skólaskylda frá 6 ára aldri. Barnaskólar (elementary schools ) eru 8 ára skólar, frá 6 til 14 ára aldurs. Þessir skólar eru svipaðir og gegna sama hlutverki og samsvarandi skól- ar á íslandi og í öðrum Evrópulöndum, þó að kennsluaðferðir séu að ýmsu leyti frábrugðnar. En þar sem ég hef ekki haft náin kynni af þeim, mun ég ekki ræða þá frekar, heldur snúa mér beint að skólum þeim, er taka við af barnaskólurn. Þrettán til fjórtán ára að aldri fara

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.